Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1981, Blaðsíða 5

Æskan - 01.01.1981, Blaðsíða 5
Það var komið logn, og hann var hættur að snjóa. I sama mund og rauðir sólargeislar brutust út úr skýjum á austurhimni heyrðist blísturshljóð á veginum, sem lá í gegn um þorpið. Yu-ling skipti í flýti um skó, hún fór í gamla skógarma, og hnýtti snæri utan um buxnaskálmar sínar, um öklana, á meðan setti hún fæturna hvorn eftir annan upp á lítinn stól. Því næst vafði hún sjali um höfuð sér og lét á sig belgvettlinga. Yu-ling var aðeins ellefu ára, en þegar hún hafði klæðst þannig, líktist hún fullorðnum sameignar- félaga. Yu-ling var að útbúa sig til að hjálpa pabba og mömmu til að bera snjó á akrana. Tsaí litli yngsti bróðir Yu-lings var aðeins í fyrsta bekk í skólanum. Það var margt sem hann skildi ekki ennþá. Og sökum þess að það var ekki hann, sem ætlaði að fara að vinna, togaði hann í hönd systur sinnar og reyndi að fá hana til að vera kyrra heima og leika við sig. Hann setti stút á munninn, dansaði í kring um hana og muldraði: ,,Ef þú vilt ekki búa til snjókarl með mér, skal ég aldrei framar leika við þig." Yu-ling varð dálítið gröm. Áður en vetrarfríið hófst hafði hún og bekkjarsystkini hennar gert áætlun um hvernig því skyldi varið. Þau höfðu orðið ásátt um, eftir að þau höfðu lokið heimavinnu, sem kennarinn setti fyrir, að hjálpa til við flutninga á framleiðslunni. Á veturna var ekki mikið unnið við landbúnaðarstörf, • og flest af því, sem þurfti að láta vinna var ofviða börnum. Yu-ling hafði hugsað mikið um hvernig þau gætu fram- kvæmt áætlunina. Og nú þegar tækifæriö gafst ti! þess að hjálpa sameignarfélögunum til að bera snjó, vildi hún ekki láta neinn spilla því. Nú keppast allir við að setja alls konar heimsmet, allt á að vera það hæsta, lengsta, dýrasta, breiðasta, dýpsta og hvað það nú allt er. Það er alveg furðulegt hvað hægt hefur verið að safna saman miklu af undarlegum heimsmetum. Ekki vita menn, hvort snjókarlinn, sem þið sjáið hér á myndinni er heimsins stærsti snjókarl, en eins og þið sjáið er hann samt nokkuð stór, svo ekki sé meira sagt. Maðurinn við hlið karlsins er ekki stór á borð við snjókarlinn, enda reyndist hann vera fimm metra hár. Hann var búinn til og stóð á svokölluðu Roa-torgi í Osló frá jólum og nokkuð fram á nýárið, og þótti mönnum gaman að virða hann fyrir sér. ' 4* „Hlustaðu nú litli bróðir," sagði hún sannfærandi. ,,Bíddu heima, og þegar ég kem heim aftur frá vinnunni skal ég búa til stóran snjókarl með þér. Yrði það ekki dásamlegt?" ,,Nei, nei, snjórinn bráðnar áður en þú kemur heim aftur," mótmælti litli bróðir og hristi höfuðið. GALDUR í þennan galdur þarftu bara eina pappírsræmu, svo sem 4-5 sentimetra breiða og 1 meters langa. Nú átt þú að líma endana saman, en þó þannig að þú snýrð einu sinni upp á ræmuna áður en límt er saman (þetta mega þó áhorfendur helst ekki sjá). Nú ferð þú að klippa langa leið eftir hringnum endi- löngum (sjá mynd) og á meðan talar þú við áhorfendur um daginn og veginn. — Nú halda flestir að tveir pappírshringir sjái dagsins Ijós en það verður nú ekki aldeil- is, reynið bara sjálf. 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.