Æskan - 01.01.1981, Blaðsíða 20
£
h
X
<
h-
C/)
&
,«» V4
Q
O
n
<
<
Arnhildur Valgarðsdóttir syngur og leikur íslenska þjóðlagið „Móðir mín í kví, kví“ á tónleikunum.
Á síðastliönu sumri tóku tveir norð-
lenskir unglingar þátt í alþjóðlegri
listahátið, sem haldin var í höfuðborg
Búlgaríu. Islensku fulltrúarnir voru
Arnhildur Valgarðsdóttir frá Akureyri
og Nils Gústavsson úr Mývatnssveit,
bæði 14 ára. Arnhildur kom fram á
tónleikum sem sjónvarpað var um alla
Austur-Evrópu og ætla má að mill-
jónir manna hafi fylgst með. Hún lék
einleik á píanó „Trolladans" eftir
Grieg og „Móðir mín í kví, kví“ i út-
setningu Jónasar Ingimundarsonar.
Nils átti myndverk á stórri myndlistar-
sýningu, auk þess sem frummyndir úr
bókinni ,,Börn“, sem Menntamála-
ráðuneytið gaf út í tilefni barnaársins,
voru sýndar. Fararstjóri unglinganna
var Þórir Sigurðsson, námsstjóri.
Á hinu alþjóðlega barnaári Sam-
einuöu þjóðanna 1979, var að frum-
kvæði Shivkova menningar- og
menntamálaráðherra Búlgaríu efnt til
hinnar fyrstu alþjóðlegu listahátíðar
barnanna. Þetta var einn þáttur af
framlögum Búlgaríu vegna hins al-
þjóölega barnaárs. Yfir 80 þjóð-
ir tóku þátt í þeirri listahátíð sem
hafði að einkunnarorðum ,,ein-
ing, sköpun, fegurð." Á dagskrá há-
tíðarinnar voru sýningar á barna-
myndum, margskonar tónlist, leiklist
og danssýningar og börn fluttu eigin
Ijóð og sögur. Þessi fyrsta listahátíð
þótti takast það vel, að afráðið var að
efna til annarrar listahátíðar 22, —30.
september s. I. Boð um þátttöku ís-
lenskra unglinga á hátíðina bárust til
Menntamálaráðuneytisins. Búlgösku
stjórnvöldin buðust til að greiða allan
kostnað af ferð tveggja unglinga og
umsjónarmanns.
Unglingar frá 88 þjóðlöndum tóku
þátt í þessari listahátíð, þar á meðal
unglingar frá öllum ríkjum Vestur- og
Austur Evrópu, Bandaríkjunum, Kan-
ada og fjöldamörgum ríkjum Afríku,
Asíu, Mið- og Suður-Ameríku og
Ástralíu. Frá flestum löndum komu
tveir unglingar, en frá nokkrum allt að
5. Dagskrá hátíöarinnar varð ákaflega
fjölbreytt, vönduð og skemmtileg.
Lokaathöfn hátíðarinnar fór fram
við minnismerki allra barna í heimin-
um. Hápunktur lokahátíðarinnar var
Nils og Arnhildur og með þeim er túlkur þeirra og leiðsögumaður, Antonia Kraeva.
18