Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1981, Blaðsíða 31

Æskan - 01.01.1981, Blaðsíða 31
Skíðaíþróttin í sinni núverandi mynd er eitthvert stórtelldasta íþróttafyrirbrigði, sem sögur fara af, og er þá sama hvort litið er á hin geysilegu stökk (vel yfir 100 metra) eða hinar miklu kappgöngur (50 km), sem hvort um sig yfirgnaefir allt, sem til greina kemur í öðrum íþróttum. Skíðin eru einhver besta sam- gönguhjálp, þar sem vetrarríki er mikið, og er það hin mesta áhersla að fræða menn um allt, sem að því lýtur °g geta ferðast eftir landabréfi, og yfirleitt er það æðsta boðorð skíða- íþróttarinnar að menn kunni allt, sem að íþróttinni lýtur. Menn hafa komist að þeirri niður- stöðu, að skíðaganga sé einhver hin heilnæmasta íþrótt, sem á verður kos- ið, og hafa verið byggð fjöldamörg hressingarhæli, hátt í fjöllum uppi, þar sem vel hagar til og ,,vel snjóar", °g geta menn þar fengið bót við ýms- um kvillum, sem erfitt er að ráða bót á með venjulegum læknisaðgerðum. Er það sérstaklega gegn ýmsum kvillum, sem starfa af mikilli inniveru og ólofti, ryki og reykjarsvælu — ellegar óhentugri vinnu, en skíðaganga er heilnæm og miklum mun áhrifameiri en gönguferðir á auðri jörð, og er það sérstaklega snjóloftiö, sem hér kemur til greina. Það, sem öllum byrjendum í þessari íþrótt er þarfast að muna er það, að glannaskapur er enginn fræknleikur. Skíðamanni er það miklu nauðsyn- legra að kunna að detta svo að hann saki hvergi, heldur en aö geta sóðast niður brattar brekkur, ef hann hefur ekki meira vald á skíðunum en svo, að hann er eins líkiegur að steypast á höfuðið eins og að standa. Reglan á að vera: Vertu djarfur, en ekki fífl- djarfur. Það er dásamleg skemmtun að þjóta á skíðum um snævi þakin fjöll og firnindi. Notið ykkur hana rækilega, öll, sem eigið þess kost! SLEÐARENNSLI Af hverju renna sleðar og skautar svo létt yfir ísinn? Hafið þið nokkurn- tímann brotið heilann um það? Það hafið þið áreiðanlega. Hér fáið þið svarið: Þrýstingurinn á yfirborð íssins hefur það íför með sér að ísinn þiðnar og myndar því þunna himnu milli íss- ins og hlutarins — og þessi þunna himna hefur sömu áhrif og feiti, t. d. sápa. En um leið og þrýstingurinn hættir (þegar skautarnir eða sleðinn þjóta lengra) frýs vatnshimnan aftur. stofnað 7. júlí árið 1922 af K.F.U.M. Kvenskátafélög starfa yfirleitt á sama grundvelli sem drengjaskátafé- 'ög. í sumum löndum eru kven- og órengjaskátafélög undir sameigin- legri yfirstjórn, en í flestum löndum eru stúlkurnar sér, og hafa þær m. a. sitt eigið alþjóðabandalag, stofnað árið 1928. Framhald. BADEN-POWELL HEFUR SAGT: „Meðan þú lifir á jörðinni, áttu að reyna að láta eitthvað gott af þér leiða, er varanlegt gildi hefur eftir þinn dag. Gott er að VERA góður, en betra er að GERA eitthvað gott.“ 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.