Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1981, Side 17

Æskan - 01.01.1981, Side 17
Rauði liturinn sagði við þann bláa, ,,sjáðu hvað ég er fallegur." Og sá blái sagði við þann rauða, ,,sjáðu hvað ég er fallegur." Og þar sem þeir voru svona hrifnir hvor af öðrum, ákváðu þeir að giftast. Þeir eignuðust börn, og þau voru fjólublá. Börnin stukku og öönsuðu á sléttum litastriganum og hittu önnur litabörn. Þau voru græn. ,,En hvað þið eruð skrítin," sögðu þau fjólubláu. ,,Hverjir eru foreldrar ykkar?" „Faðir okkar heitir blár og móðir okkar gul." ,,Nú, við erum þá menningu Englendinga. Hann van- treysti skynsemishyggju og fræöi- kenningum, en taldi samúð og glað- værð æðstar allra dyggða. Þó vissi hann vel að glaðlyndi eitt nægir ekki til að útrýma örbirgð og spillingu, en hann fór leynt með þá skoðun sína. Dickens lést 1870. Líf hans hafði verið bjartur geisli í tímum gróðahyggju og miskunnarleysis. Hann fékk mennina á nýjan leik til að hlæja og vera vin- gjarnlegir og uppræta grimmdina í þjóðfélaginu, sem þeim hafði til þess tíma þótt sjálfsögð. Ferðalögin eyddu síðustu kröftum Dickens. Hann dó úr hjartaslagi 1870 frá ólokinni skáldsögu ,,The Mysiery of Edwin Drood." Hann hlaut heiðursgrafreit i Westminster Abbey í London. skyld," sögðu blá-rauðu börnin, og þau skemmtu sér öll saman. Pensill litlu stúlkunnar, sem var að byrja á nýrri mynd, titraði örlítið á lita- spjaldinu, sökkti sér svo í svarta hrúgu, aðgreindi hana og blandaði með hvítu og örlítið af rauðu og þá var kominn undurfagur roðalitur, eins og þegar sólin er að setjast við sjón- deildarhring. Síðan strauk litla stúlk- an þetta á stóra hvíta blaðið sitt. Rauður, blár, gulur, grænn, allir horfðu með eftirvæntingu á, hver yrði árangurinn úr þessari blöndu. Það var eitthvað undarlegt að gerast með alla þessa liti. ,,Við erum grænu túnin" hrópuðu gulu og bláu litabörnin fagnandi. ,,Og við erum fallegu fjólurnar" fögnuðu börnin sem áttu rauða móður. Mynd litlu stúlkunnar varð marglit og falleg eins og talandi ævintýri. Hver litablettur er eins og setning: þarna stendur hús, það er hvítkalkað með brúnar veggsvalir og fallega græna gluggahlera. Á veggsvölunum standa gulllit blómaker með marglitum blómum. Húsið stendur í grænum túnbletti. í húsinu býr glaðvær fjölskylda. Móðirin hefur hitað upþ í ofninum, sem sjá má því að reyk leggur uppúr skorsteininum. Fyrst stígur hann beint, liðast svo útá hlið og smáeyðist. Á túninu leika sér fimm börn, þrjár stúlkur og tveir drengir. Annar þeirra er svo ungur að hann staulast áfram, 4i & en ein systranna fylgir honum með útrétta handleggi viðbúin til stuðn- ings. Hin börnin kasta á milli sín brúnleitum bolta yfir þvottasnúru, þar sem þrjár skyrtur hanga til þerris. Börnin skemmta sér ágætlega, þau eru búin með lexíurnar sínar og kvöldmaturinn er ekki tilbúinn, þau eiga þessa stund sjálf og boltinn flýg- ur hátt upp í loft. Skógurinn er að rökkvast, frá þorp- inu lengra í burtu sjást einstaka Ijós í húsum. Létt þoka hvílir yfir akrinum. Litla stúlkan strýkur pensilinn sinn og virðir fyrir sér myndina, síðan heldur hún áfram að mála: Á veginum frá þorpinu kemur maður hjólandi, það er pabbi hennar. Hann kemur beint frá járnbrautarstöðinni, lestin sem hann kom með sést enn í fjar- lægð. Og nú bætir litla stúlkan mömmu sinni í myndina. Hún kemur út úr húsdyrunum og kallar til barnanna ,,pabbi ykkar er að koma og maturinn ertilbúinn, komið þið inn að borða!" En litla stúlkan er ekki alveg búin, hún málar í flýti fleira sem henni þykir vænt um inn í myndina. Þarna kemur hvítur hvolpur, röndóttur kettlingur, nokkrar hænur, nokkrir fuglar við vatnsskál og loks nokkur epli og perur á trjágreinarnar. Þá hefur hún notað alla litina, hver þeirra hefur eitthvað sérstakt að segja, því þeir túlka allir hugsun og óskir litlu stúlkunnar. Hún horfir gaumgæfilega á mál- verkið sitt, þvær síðan pensilinn og tekur af sér svuntuna. Hún labbar inní eldhús þar sem amma hennar situr við kaffibolla, fær sér mjólk í glas og brauðsneið og sest við borðið hjá ömmu sinni. (Höf.: Traudl Kulenkampff Þýð.: Halld. J.) 15

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.