Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1981, Page 14

Æskan - 01.10.1981, Page 14
Kennið bornnnnm að bjarga sér 1) Nafn og heimilisfang barnsins ætti að vera með því fyrsta, er þaó lærir er það fer að tala og er gott að æfa það daglega í að frambera það skírt og greinilega. Komi það fyrir að barnið villist að heiman er engin hætta á öðru en að það verði einhver til þess að fylgja því heim ef það getur sagt hvar það á heima. 2) Myrkfælin mega börnin ekki verða, enda engin hætta á því, séu þau ekki hrædd með grýlum og draugum, sem séu frammi í myrkrinu. Þá munu þau ekki á nóttunni hrökkva upp við vonda drauma eða gráta af hræðslu við myrkrið. 3) Hjálp barnanna við húsverkin skal ávallt vel þegin og ekki má taka hart á smá óhöppum eða klaufaskap, en hrósið þeim fyrir viðleitni þeirra það eykur áræði og dug. 4) Tennurnar ættu börnin sjálf að bursta, og kennið þeim að álíta það sem sjálfsagðan lið í ræstingu líkam- ans. 5) Starfsemi frá fyrstu bernsku er góður eiginleiki, og má með leikjum og leikföngum barnanna vekja til starfs, og ef til vill leiða í Ijós ákveðna getu og löngun til einhvers sem seinna verður viðfangsefni þeirra í líf- inu. 6) Viðgerð á leikföngum barnanna ættu þau sjálf að annast. í stað þess að sneypa barnið fyrir aö brjóta eða skemma leikfang sitt á maður að sýna því hvernig má gera við þau. Það veitir mikla gleði að sigrast á þeim erfið- leikum. 7) Stíla og reikningsdæmi ætti ekki aó leysa fyrir börnin, heldur benda þeim í áttina og láta þau sjálf finna lausnina. 8) Hirðuleysi um útlit sitt ætti að verða börnunum ógeðfellt. Segið þeim hversu Ijótt er að ganga með ógreitt hárið, óhrein um hendur og andlit, og með horinn ofan í munn, eða þá með sokkana á hælunum og óreimaða skóna, svartar rendur undir nöglunum o. fl. þess háttar. 9) Hugrekki er börnum nauðsyn- legt því að oft vill koma skráma á hné eða skeina á fingur, og er þá ómann- legt að skæla. Kennið þeim með til- sögn að aðstoða ykkur, við að binda um skeinu og bera sig mannalega. 10) Á ferðalögum ættu stálpuð börn ætíð að hafa sjálf tösku eða poka með nauðsynlegum hlutum til ferðarinnar og gæta þeirra sjálf á leiðinni. Smábörn eru oft hrædd við baðkerið eða bal- ann, sem þau eru þvegin úr. Láti maður handklæði á Óotninn verða þau rólegri og verða balans ekki eins vör, enda er þetta bæði á balanum og upp með hliðunum hlýrra og mýkra. Leikföng smábarna: Það ætti ekki að gera mikið að því að skemmta smábörnum, heldur að gefa þeim hringlu eða þessháttar og láta þau skemmta sér sjálf. Foreldrar gefa börnum oft leikföng, sem fremur eru þeim sjálfum til skemmtunar en börn- unum, og ofþreyta börnin. Hlaa- ið aldrei að börnum né gjörið gys að skrípalátum þeirra, og haldið þeim ekki á lofti. Komið eðlilega fram við börnin eins og hvern annan meðlim fjölskyldunnar. Túttur: Þegar stungið er gat á tútt- una er það oftast gert með heitum prjóni eða nál og finnur maður þá sterka lykt af brenndu gúmmíi. Því miður vill sú lykt haldast og veldur þá óbragði af mjólkinni. — Betra er að stinga eldspýtu innan í túttuna og þrýsta fast með henni, svo út komi tota og má þá stinga gatið á hana með kaldri nál. Börn kóngulóarinnar ferðast oft langar vegalengdir — jafnvel yfir haf og milli eyja. Þau spinna langan vef, sem líkist fallhlíf, sem berst svo með vindunum gegnum loftið. Mimosa er jurt, sem hegðar sér eins og hræddur maður. Þegar þú snertir hana eða stappar á jörðina nálægt henni, þá lokar hún blómum sínum. Aó sjálfsögðu er hún ekki hrædd, vegna þess að hún hefur ekki sömu tilfinningu og maðurinn, til þess liggja aðrarorsakir, sem þið lesið um seinna á lífsleiðinni. Stundum hjálpa dýr hvert öðru a margvíslegan hátt. Til dæmis er í út- löndum fugl nokkur, sem lifir á naut- gripum og týnir út litla orma og skor- dýr, sem setjast á nautgripina og eru þeim til ama. Margir sjófarendur hafa oft undrast hvar sjófuglar fái eiginlega ferskt vatn. Svarið erfað þeir fá það hvergi- Þeir drekka salt vatn og verður ekkert meint af. En aftur á móti geta margir þessara fugla ekki drukkið ferskt vatn, alveg eins og við mennirnir get- um ekki drukkið salt vatn. 14

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.