Æskan - 01.10.1981, Síða 18
ÆVINTÝRJ RttBÍNSONS KRÚSÓ
von um, að betur færi seinna. Því næst skoraði hann á
Róbínson að segja sér, hvað honum hefði gengið til far-
arinnar.
Róbínson vildi fyrst [ stað ekki segja honum það, en lét
þó að lokum til leiðast að skýra honum frá öllu því máli
eins og var.
Þá varð skipstjórinn æfur og kallaði: ,,Ó, að ég skyldi
hafa slíkan vandræða-grip á skipi mínu. Það er orsökin til
minnar miklu ógæfu.“ En smám saman varð hann rólegri
og tók að brýna fyrir Róbínson, að þaö væri hans heilög
skylda að fara til foreldra sinna og biðja þá fyrirgefning-
ar á hinni þungu skapraun, er hann hefði gert þeim. En
það kom fyrir ekki. Því þó hans eigin hugur segði honum
hið sama, þá var löngunin til að sjá sig um í víðri veröld
svo lifandi vöknuð í brjósti hans, að hann gaf henni alveg
lausan tauminn. Ferðapeninga fékk hann nóga hjá
mönnum þeim, er höfðu tekið hann til vistar og réð hann
af að fara fyrst til Lundúnaborgar og freista þar ham-
ingjunnar. Þremur dögum síðar kom hann allshugar-
glaður til Lundúnaborgar. Hann var fríður sýnum og
elskuverðugur [ umgengni, svo honum varð gott til vina.
Meðal fleiri manna kynntist hann skipstjóra nokkrum,
sem geðjaðist svo vel að honum, að hann bauð honum
far með sér til Guineu ókeypis, kvaðst aðeins vilja hafa
hann með sér elns og borðnaut og félagsbróður.
Þetta voru mestu kostaboó fyrir Róbínson, og tók hann
þeim fegins hendi, það því heldur sem skipstjórinn sagði
honum jafnframt, að ef hann vildi verja nokkrum pen-
ingum til vörukaupa, þá gæti hann grætt mikið fé í
Guineu með því að skipta á vörunum móti þarlendum
varningi, Róbínson skrifaði þá ýmsum ættingjum sínum
og herjaði út úr þeim samtals fjörutíu pund sterling-
Ferðin gekk Róbínson hið besta og fénaðist honum vel,
því hann kom aftur til Englands meðníu únsuraf skírum
gullsandi, og var allur auður hans samtals þrjú hundruð
pund sterling. Þar að auki hafði hann undir tilsögn skip-
stjórans, vinar síns, aflað sér talsverðrar þekkingu í
stærðfræði og siglingafræði.
Þetta var sú eina happaferð, sem Róbíson fór á allri
sinni ævi.
Næst: Þrældómur og flótti.
ÓMÖGULEGT? NEI
Er hægt að klippa út tvö ferköntuð göt í pappírs-
blaðið með aðeins einni lokun skæranna? Því
mundu margir neita, en brjóttu blaðið eins og sést
á 1,2, 3 og 4 og klipptu síðan, þá mun koma í Ijós
að tvö göt (sjá mynd 5) eru þegar komin á blaðið.
*-Z.
KLIP
í hverju blaði ÆSKUNNAR eru skemmtilegar myndasögur í litum.
18