Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1981, Síða 23

Æskan - 01.10.1981, Síða 23
Það var einu sinni konungur, sem átti son, er aldrei var ánægður. Hann átti reiðhest, hann átti bát — já hann átti allt, sem hann gat óskað sér. En hann var hvorki glaður né hamingju- samur. Alltaf mátti sjá á honum fýlu- og óánægjusvipinn, hvar sem hann var staddur, og hvernig sem á stóð. Faóir hans fann upp ótal ráð og reyndi allt sem hugsast gat til þess að koma honum í gott skap, en ekkert dugði. Dag nokkurn kom vitringur til hall- arinnar. Þegar hann heyrði, hvernig ástatt var með prinsinn, kom hann að máli við konunginn og sagði: ,,Ég skal reyna að gera son yðar hamingjusaman." Og svo gerði hann nokkuð, sem vakti furðu þeirra, er á hlýddu. Fyrst skrifaði hann með einhverju hvítu efni stafi á pappírsörk. Enginn gat séð eða lesið, hvað þetta var. Síðan sagði vitringurinn prinsinum að fara inní dimmt herbergi. Þar skyldi hann kveikja Ijós og halda örkinni fast upp að Ijósinu, þá myndi hann geta lesið það, sem þar væri skrifað. Prinsinn gerði nú eins og vitri maðurinn hafði fyrir hann lagt, og beið nú með eftir- væntingu eftir því, sem hann nú fengi að sjá. Þegar hann bar örkina að Ijósinu, sá hann glöggt hina hvítu stafi eins og í bláleitum bjarma, og hann gat lesið mjög greinilega: ,,Gerðu daglega einhverjum meðbræðra þinna eða systra greiða." Prinsinn fylgdi ráði vitringsins, og brátt varð hann hamingjusamasti maður í öllu konungsríkinu. (lausl. þýtt H. T.) FJOLSKYLDUÞMTUR Í umsjá Kirkjumálanefndar Bandalags kvenna í Reykjavík. sem líta sömu augum á hlutina, það sem einum finnst gott, kæra aðrir sig kannski ekki um, eða finnst það lítils virði. Meira að segja í einni fjölskyldu væri ekki víst að allir væru á eitt sáttir með það, hvað sönn hamingja væri, eða í hverju hún væri fólgin. í fyrsta lagi skulum við gera okkur grein fyrir því, að sönn hamingja er afleiðing kærleika. Ekki bara að eign- ast heldur að gefa. Kærleikur verður aldrei pakkaður inn í pappír og merktur með gjafamiða. Við getum auðsýnt kærleika á svo margan hátt, kærleika sem aldrei verður hægt að meta til fjár. Þetta er nú ef til vill svolítið strembinn inngangur, í það minnsta fyrir börnin. En meiningin er nú að fjöl- skyldan ræði saman um þessi mál. Að veita og þiggja hamingju þarf að læra eins og hvað annað í þessu lífi, ekkert kemur af sjálfu sér. Það þarf að hugsa málið. Ég man eftir því að ég heyrði börn vera að tala saman, eitt þeirra sagði: ,,Ég skal gefa þér þetta, ef þú vilt gefa mér eitthvað í staðinn," Þetta eru býtti en ekki gjafir. ,,Ég skal gefa þér þetta af því ég þarf ekki á því að halda“ er heldur ekki nógu gott. ,,Ég skal gefa þér þetta af því að mér þykir vænt um þig, eða af því að mig langar til að gleðja þig“, er betra. Svo er líka hægt að sýna góðvild sína eða kær- leika með því að vera hjálpsamur, hlýlegur, kurteis, tryggur, nærgætinn, svo nokkuð sé nefnt. Þetta þurfum við öll að læra og tileinka okkur. Og svo æfum við okkur vel, við skulum segja til að byrja meö út þetta ár. Það eru ekki nema um 2 mánuðir þangað til kærleikshátíðin mikla gengur í garð — þá meina ég JÓLIN. Allt sem þér því viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. (Gal: 6,2) Hamingja Allir vilja vera hamingjusamir, á því er enginn efi. En hvernig öðlast menn hamingjuna, og þá á ég við hina sönnu hamingju — hamingju sem veitir frið, fögnuð og gleði, ekki bara um stundarsakir, heldur þá sem varir. Þessu svara menn líklega á mismunandi hátt, en svo verðum við einnig að taka til greina, að það eru ekki allir 23

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.