Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.10.1981, Qupperneq 43

Æskan - 01.10.1981, Qupperneq 43
FLUGUR Erlendis er vinsælt að gefa út samansafnsplötur, — stundum kallaðar kokkteilplötur. Þetta eru plötur sem innihalda verk ýmissa flytjenda. Flest ykkar kannast áreiðanlega við ,,K-teel“ plöturnar, ,,Top og the Pops“ plöturnar eða hina ágætu ,,Good Morning America.“ Hérlendis hafa verið gefnar út nokkrar saman- safnsplötur. Því miður eru þær fæstar góðar. Platan ,,Flugur“ telst því til undan- tekningar. Þeir sem eiga lög á ,,Flugum“ eru m. a.: Laddi, Utangarðsmenn, Ólafur Haukur Símonarson, Björg- vin Halldórsson, Jakob Magnússon og fleiri. Lögin með Ladda (Skammastu þín svo) og Ólafi Hauki (Allur á iði) eru sönnun um ánægjulega þróun: Lög ætluð börnum eru orðin samkeppnisfær við lög ætluð unglingum og fullorðnum. Að vísu er lagið meö Ladda svolítió leiði- gjarnt. Það er nefnilega byggt á fáum en margend- urteknum laglínum. Þá mætti Laddi gjarnan vanda sig örlítið við textasmíðarn- ar. Og ekki bara Laddi, því texti Ólafs Hauks er eini frambærilegi textinn á allri plötunni! Lag Ólafs fellur vel að líf- legum textanum. Það er hressilegur rokkari með Stones-áhrifum. Ólafur syngur sjálfur, aldrei þessu vant, og tekst Ijómandi vel upp. Lagiö ereinnig aðfinna á bráöskemmtilegri plötu með Hatti og Fatti. Fleiri góðir rokkarar eru á ,,Flugum“. Vinsælasta hljómsveit landsins, Utan- garösmenn, er t. d. með Jakob Magnússon. fjörugt og kraftmikið lag, ,,The Big Sleep“, ætlað er- lendum markaði. Það er besta lag plötunnar ásamt nýrri og endurbættri útgáfu af einu vinsælasta lagi Ut- angarðsmanna, ,,Rækju- reggae“. ,,Flugur“ er ágæt plata fyrir þá sem vilja þroska músíksmekkinn. Þarna skiptast á léttir, auömeltir slagarar, fjörugir rokkarar og spilaöir rokk/djass- bræðingar. Söngleikaplötur eru fágætar hér- lendis. Enda er söngleikurinn ekki vinsælasta leikformiö. Fyrr á þessu ári náði rokksöngleikurinn ,,Grettir'‘ þó feiknavinsældum. Hann var sýndur í Austurbæjarbíói vikum saman. Og hefði getað gengiö mikiö lengur ef leikararnir hefðu ekki þurft aö fara í önnur hlutverk. Núna er söngleikurinn ,,Grettir“ kominn út á hljómplötu. Flytjendur eru þeir sömu og í leikuppfærslunni, þ. e. leikarar úr Leikfélagi Reykjavík- ur og hljómsveitin Þursaflokkurinn. Lögin eru eftir Egil Ólafsson söngvara Þursaflokksins og Ólaf Hauk Símon- arson. Egill semur þung lög og svolítið flókin. En þau venjast ágætlega. Ólafur semur aftur á móti létt og auð- lærð lög. Þetta eru lög sem bókstaf- Hlnn nýl Grettir (Kjartan Ragnarsson. IGRETTIRl lega heimta að hlustandinn syngi með! Textarnir eru eftir Ólaf Hauk og Þórarin Eldjárn. Þeir félagar semja ólíkt betri texta en aðrir sem fást við slíkt á íslenska dægurlagamarkaðin- um. í stuttu máli þá fjalla textarnir um unglingspilt, Gretti Ásmundsson, og félaga hans, sem eru grallarar margir hverjir. Grettir á líka óvini, sem hann þarf að glíma við. En allt fer vel að lokum. Allur hljóðfæraleikur og söngur er eins og best verður á kosið. Músíkin er bæði í hefðbundnum söngleikjastíl og eins í svokölluðum nýbylgjurokk- stíl. ,,Grettir“ er hiklaust í hópi bestu barna- og unglingaplatna sem út hafa komið. m Vinsældir Æ3KUNNAR aukast með hverju ári 39

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.