Æskan - 01.04.1984, Page 16
u
HVAÐ SEGJA ÞAU UM SAMRÆMDU PRÓFIN?
Sigurður
Um miðjan febrúarmánuð sl.
gengust nemendur 9. bekkjar undir
samræmdu prófin. Rúmlega 3.800
unglingar um land allt voru skráðir í
þessi próf sl. haust en nokkrir helt-
ust úr lestinni; hættu námi eða for-
fölluðust.
Til að fá rétt til að setjast í 1. bekk
framhaldsskóla næsta vetur mega
nemendur ekki fá lakari útkomu úr
samræmdu prófunum en tvö D.
Auk þess þurfa þeir að fá 4 eða
hærra í skólaprófseinkunn. Það
skiptir því miklu fyrir þann sem
hyggur á framhaldsnám eftir 9.
bekk að standast lágmarkskröfur.
Æskan leitaði álits fjögurra nem-
enda í 9. bekk á samræmdu próf-
unum í ár.
Léttara en ég bjóst við
Sigurður Brynjarsson í 9. bekk
Snælandsskóla, sagði að sér hefði
fundist prófin léttari en hann átti
von á. „Mér gekk best í stærðfræð-
inni enda uppáhaldsgreinin mín,“
sagði hann og bætti við að enskan
hefði líka verið létt. Hann taldi að
flestum krökkum hefðu fundist próf-
in létt.
Álfheiður
- Finnst þér að 9. bekkur hafi
verið erfiður?
„Nei, alls ekki. En flestir segja að
það séu mikil viðbrigði að fara úr
honum og í 1. bekk framhalds-
skóla.“
- Hvað eru margir krakkar í 9.
bekk í Snælandsskóla?
„Þetta er tvær bekkjardeildir. 41
byrjaði en 2 hættu námi.“
Sigurður sagði að bókakostnað-
urinn hjá þeim sem þurftu að kaupa
allar bækur nýjar hafi verið 2.500
kr. í haust. Flestir keyptu notaðar
bækur og sumir fengu þær lánaðar;
það var allur gangur á því.
Kennararnir skipta miklu
máli
Álfheiður Gisladóttir í 9. IE, Ár-
bæjarskóla og Birna Bjarnason í
9. MT, Gagnfræðaskóla Mosfells-
sveitar, voru sammála Sigurði um
það að samræmdu prófin hefðu
verið léttari en þær áttu von á.
Birna: Mér fannst enskan léttust
en verst gekk mér í reikningi.
Álfheiður: Reikningur er hins
vegar uppáhaldsgreinin mín.
Birna
Birna: Mér finnst algjör vitleysa
að þurfa að læra reikning og eðlis-
fræði.
Álfheiður: Ég er sammála Birnu
um eðlisfræðina. Hins vegar finnst
mér gaman að læra líffræði og
reikning. Það getur líka farið mikið
eftir kennurunum hvort greinarnar
verða skemmtilegar.
Birna: Já, kennararnir skipta
miklu máli.
- Þið höfðuð tvo og hálfan tíma
til að leysa hvert próf. Nægði það?
Birna: Próftíminn mætti vera
lengri.
Álfheiður: Enskan var eina grein-
in sem ég lauk á tilsettum tíma. Ég
lenti í dálitlu tímahraki með hin
prófin. Sennilega er erfitt að finna
hinn gullna meðalveg fyrir alla.
- Hvað ætlið þið að gera næsta
vetur?
Birna: Ég ætla í MS.
Álfheiður: Ég er alveg óákveðin.
Samræmdu prófin
sanngjörn
„Kennararnir voru búnir að hrella
okkur svolítið fyrir þessi próf,"