Æskan - 01.05.1984, Blaðsíða 40
GLÆSILEGT SUMARTILBOÐ
í tilefni Ólympíuleikanna, sem haldnir eru í Los
Angeles í sumar, bjóðum við áskrifendum Æsk-
unnar bók sumarsins, Ólympíuleikar að fornu og
nýju eftir Ingimar Jónsson námstjóra, með 30%
afslætti, þ. e. fyrir 553.30 kr.
Ólympíuleikarnir, með hinni ólýsanlegu spennu;
fögnuði yfir unnum sigri; vonbrigðum þess sem lýtur í
lægra haldi; óvæntum úrslitum; ótrúlegum afrekum;
eru stórfenglegur íþróttaviðburður sem öll
heimsbyggðin fylgist með. Þegar horft er fram til
leikanna og vöngum velt um væntanleg úrslit -
þegar hugurinn reikar til baka að þeim liðnum -
meðan fylgst er með keppninni í sjónvarpi - er
ómetanlegt að hafa í höndum bókina Ólympíuleikar
að fornu og nýju, fróðlega og fallega!
í bókinni er saga leikanna rakin, sagt frá íþrótta-
görpum og spennandi keppni um met og sigra. ítar-
lega er fjallað um þátttöku íslendinga fyrr og síðar.
Skrá yfir sigurvegara fylgir. Á annað hundrað mynda
prýða bókina og gera hana sérstaklega áhugaverða.
Áskrifandi — þetta er tilboð okkar fyrir alla
fjölskylduna. Ef einhver íþróttaunnandi er í fjöl-
skyldunni skaltu vekja athygli hans á því.
Athugið að tilboðið gildir aðeins til 15. júlí.
Hér að neðan er pöntunarseðill - en að sjálfsögðu
má skrifa sérstaka pöntun. Þess skal þá gætt að allar
upplýsingar komi fram.
Burðargjald leggst við verð bókarinnar sem að
þessu sinni verður send í póstkröfu.
ÚR BÓKINNI -
AFREK VILHJÁLMS EINARSSONAR
"Vilhjálmur var nú 13. í stökkröðinni (af 22, er komist
höfðu í aðalkeppnina). Keppendur virtust nú vanda
atrennu sína meira en um morguninn og leið talsvert
löng stund áður en kom að Vilhjálmi að stökkva. Loks
kom að honum, og hann stökk - ógilt, stökkdómar-
inn lyfti rauðu veifunni. Þetta var afleitt, því stökkið
virtist langt. Þá var að bíða þess næsta, því enginn
getur notið sín í þriðja stökki eftir tvö ógild. Nú höfðu
margir keppenda stokkið um og yfir 151/2 metra. Var
nokkur von um að hann yrði framarlega meðal allra
þessara frægu stökkvara? Um síðir kom aftur að
Vilhjálmi. Hann breytti atrennulengd sinni dálítið,
skokkaði hægt af stað, eins og hann var vanur, jók
hraðann og hitti plankann á fullri ferð. Hoppið virtist
ekki mjög langt og ég hélt að stökkið yrði ekki nema
svo sem meðalstökk, en skref hans var tröllslegt og
lyftingin og framsveifla fótanna í stökkinu eins og
best varð á kosið. Hann kom niður langt aftur í
gryfjunni. En hvað var þetta - rak hann ekki höndina
niður? Og stökkdómararnir voru í óða önn að athuga
stökkplankann. Til allrar hamingju kom svo hvíta
veifan og stökkið var gilt. Mér létti ákaflega. En
stökkið gat varla verið langt; höndin kom niður.
Mennirnir við töfluna settu einhverja tölustafi upp . . .
25 - þeir byrjuðu oft á öftustu stöfunum. Hvað voru
X
Ég erfélagi í Bókaklúbbi Æskunnar □
Ég óska að gerast félagi í Bókaklúbbi Æskunnar □
Ég óska að kaupa bókina
Ólympíuleikana að fornu og nýju □
Vilhjálmur í Melbourne. Hvað gerir Einar í Los
Angeles?
þeir að setja upp? 15 - eða var það 16? Ég þorði
ekki að trúa eigin augum, aö stökk, sem mælt var að
hendi, gæti verið svona langt. Ég spurði þann næsta
- og heyrði næstum samtímis rödd þularins í hátalar-
anum: “Number 638, mr. Einarsson of lceland, has
just set an Olympic Record by jumping 53 feet 4
inches’’ (16,25 meter - var seinna breytt í 16,26 m)-
Hjartað hoppaði í brjósti mér. Þetta var svo óvænt,
svo hrífandi, að ég gat naumast áttað mig á þessu."
(Lýsing Ólafs Sveinssonar fararstjóra)
Daginn eftir mátti lesa á forsíðu Morgunblaðsins
„íslendingur kom öllum á óvart” og síðan „Vilhjámur
Einarsson vann frábærasta afrek íslenskra íþrótta-
manna, er hann í gær varð 2. í þrístökkskeppni
Ólympíuleikanna.”
Nafn
Heimili Póstnúmer
Staðfestina foreldris Sími j J
40