Æskan - 01.03.1986, Page 26
Gagnvegir
Rætt við Steinunni Magnúsdóttur
KOKKUR
HJÁ OFFISERA
A FREYJUGOTU
Steinunn Magnúsdóttir fædd-
ist 25. maí 1898 á Eyrarbakka.
Foreldrar hennar voru Ingi-
björg Guðmundsdóttir og
Magnús Gíslason. Þegar hún
var tveggja ára fluttist hún til
Hafnarfjarðar. Pabbi hennar
var sjómaður. Hann var á skútu
sem hét Heimalæja. Fjölskylda
hennar var oft hrædd um hann
úti á sjó í vondum veðrum.
Steinunn heldur áfram:
„Við systkinin vorum sjö, þrjár
stelpur og fjórir strákar. Tveir dóu í
bernsku og nú er ég ein eftir. 1906
fluttumst við að Halldórsstöðum á
Vatnsleysuströnd. Þar gengum við í
skóla. Félagsskapurinn var mjög góð-
ur og enginn munur gerður á stelpu og
strák. Öllum kom vel saman.“
Þegar Steinunn var 12 ára fór hún
að Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd. Það
var kirkjustaður og var hún þar hjá
frændfólki sínu fram yfir fermingu.
Þar voru mörg börn sem léku sér sam-
an. Þau fóru í ýmsa leiki sem sjaldan
sjást nú, eins og t.d. stórfiskaleik, eitt
par fram fyrir ekkjumann, boltaleik,
kíló og sto.
„Árið 1914 skall fyrri heimsstyrjöld-
in á. Þá var ég 16 ára,“ segir Steinunn.
„Engir hermenn voru þá hér á landi.
Maður frétti bara af stríðinu. Því lauk
1918 og þá var orðinn skortur á mat-
vælum og urðu allir að fara að vinna
sem eitthvað gátu gert. Ég fór í vist
hér og þar.“
Árið 1919 giftist Steinunn Sigur,
Böðvarssyni en hann lést árið l^ •
Þau eignuðust fimm börn en e*ní
drengur dó sjö ára. Steinunn varð ^
að sjá ein fyrir börnum sínum
leggja hart að sér. Hún gekk í ýnl'
störf fram til 1937 en þá fékk h1"
vinnu á sjúkrahúsi og vann þar muSt'
næturvöktum.
Síðari heimsstyrjöldin braust 11
1939 og þá starfaði hún sem kokku
hjá offisera á Freyjugötu. Hún fe_
gott kaup og fjárhagurinn batnac
Eftir stríðið vann hún hjá heildsöla-
Nú eru breyttir tímar hjá Steinu1111'
Hún getur ekki unnið lengur en 1
alltaf að gera eitthvað í höndum1
t.d. prjóna, spinna og hekla. Hen
líður vel í ellinni. Hún dvelst hjá öó1
ur sinni í eigin húsi.
26