Æskan - 01.06.1986, Síða 18
Líf og fjör í Vogunum
Kæra Æska!
Ég á heima á Vatnsleysuströnd og
geng í Stóru-Vogaskóla. Félagslífiö
hér er ágætt. Diskótek eru hálfsmán-
aðarlega og þá er hægt að fara í tölvu-
leiki og borðtennis. Skákmót eru hald-
in í skólanum og s.l. vor var haldið
skólaíþróttamót. Keppt var í knatt-
spyrnu, körfubolta, hlaupi milli
bekkja og víðavangshlaupi. Að lokum
kepptu nemendur, einn til tveir úr
hverjum bekk, á móti kennurum.
Myndbandakvöld eru svo stöku sinn-
um.
í samkomuhúsinu Glaðheimum var
fyrir stuttu haldinn hinn árlegi kveðju-
dansleikur. í skólanum voru prófin
tekin fyrr en venjulega og þar á eftir
var svokölluð vinnuvika sem verið hef-
ur annað hvert ár. Núna voru starfandi
6 hópar. Þeir hétu: Alþingi, há-
skólinn, fjölmiðlar, íþróttir, tónlist og
náttúruvernd. Hóparnir kynntu sér
það sem felst í nöfnum þeirra. Þau
sem voru í fyrsttalda hópnum skoðuðu
Alþingi, kynntu sér sögu þess og starf-
ið sem þar er unnið. Fannst mörgum
fullmikið stjanað við þá alþingismenn
og má nefna að þarna mátti sjá
skóburstunartæki ásamt fleiru.
Nokkrir krakkar fóru og skoðuðu
aðalbyggingu háskólans. Þar voru allir
mjög vinsamlegir og tilbúnir til að
kynna þeim allt. Stúdentarnir ætluðu
einnig að bjóða okkur í fimm-bíó en
þeir fá ókeypis á fimm- og sjö-sýning-
ar. Og fyrst ég er að nefna bíó má geta
þess að s.l. vetur var farið með 6., 7.,
8. og 9. bekk nokkrum sinnum í bíó og
leikhús. Til dæmis var farið á hina
vinsælu Óskarsverðlaunamynd „Ama-
deus“ og skrifuðum við ritgerð um
hana á eftir.
Eins og þið hafið getað lesið þá er
alltaf líf og fjör hjá okkur unglingun-
um í Vogunum.
Bæ, bæ,
Anna Kapitola Engilbertsdóttir, 14 ára
Grímuball í Varmahlíð
Hæ, kæra Æska!
Mig langar til að segja þér frá því
hvernig er að vera í skóla í Varmahlíð.
Það er alveg ágætt. Yngri kynslóðin
fær oft diskótek og við fengum líka eitt
grímuball síðasta vetur.
Ég hef átt heima á Hólum í Hjalta-
dal og þá áttum við sjö kindur. Ég á
eina vinkonu sem heitir Guðný Klara.
Ég er oftast með henni.
Kær kveðja,
Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir
UTAN AF LANDI...UTAN AF LANDI
Fallegur og skemmtileguí
bær
Kæra Æska!
Ég heiti Kristjana Nanna og á heimá
á Akureyri. Félagslífið hér er ágseú-
Það er hægt að æfa badminton, hand-
bolta, körfubolta, sund og marg1
fleira. Svo eru spilasalir í bænum- ES
er í Barnaskóla Akureyrar. Þar eru
haldin böll fyrir 4., 5. og 6. bekk tvisv-
ar til þrisvar á vetri. 6. bekkur ser
algjörlega um þau. Svo fá þessir sömu
bekkir að halda bekkjarkvöld, hver •
sínu lagi, einu sinni á skólaárinu. Svo
eru haldin bekkjarpartý við og V1
heima hjá krökicunum. Ég er í
bekk.
Akureyri er fallegur og skemmú'
legur bær. Á veturna er hægt að gefa
ótal margt á hlýjum og sólríkum fr*'
dögum, t.d. að fara í fjallið. Það er
stutt þangað, fimm til tíu mínútnu
akstur. Fólkið fer þangað með rútu
Uppi á fjalli eru fjórar lyftur og
oft
mjög gott færi fyrir skíðafólk. ^er
finnst ofsalega gaman að vera þar-
Hér á Akureyri starfa skátar og
fleiri félög. Svo geta unglingar l*rt
tónlistarskóla. Ég er að læra á þve/'
flautu í Tónlistarskóla Akureyrar. og
er líka í blásarasveit. Allir krakkar
sem kunna eitthvað á blásturshljó(
færi eru í slíkri sveit. Krakkar sem efU
að læra á fyrsta vetri eru í svokallaðr
A-sveit, eftir tvo vetur fara þau 1 ^
sveit og í C-sveit eftir þrjá vetur-
Sveitin sem ég er í nefnist D-svet1-
Hún er fyrir krakka sem hafa l®rt
fjóra vetur eða lengur. Það er mj°r
gaman í tónlistarskólanum.
Að síðustu vil ég þakka fyrir mjöt
gott blað.
Bless, bless,
Kristjana Nanna Jónsdóttir,
Rauðumýri 8,
Akureyri
UTAN AF
lanp1.
18