Æskan - 01.06.1986, Side 45
FERÐAST MÁ VIÐA...
OAfsA' BK!
úr sundlauginni (Ljósm.: Unnar Agnarsson)
r 1
iji |P’
M'ftalffr
upp á körfuspjöldin, auk aragrúa
smærri mynda sem þöktu nokkra
veggi. Fjölmiðlunarhópurinn gaf út
blað um vinnuvikuna. Það hét að sjálf-
sögðu Fjöregg og í einni kennslustofu
sýndi hópurinn myndband um sama
málefni. Púðar og myndir frá
tauþrykkshópi voru hengd upp á vegg,
auk þess sem listaverkum frá skúlptúr-
hópi var komið fyrir meðfram veggj-
um, hringinn í kring um salinn. Svart-
ýmiss konar uppákomur. Á með-
gestir nutu þessarar samkomu gátu
gætt sér á mjólk og snúðum frá
. Jólkursamlagi SAH og Brauðgerð-
lnni Krútt.
^Klukkan átta byrjaði svo sýning í
^únnskólanum á því að fólki var vís-
jr ’í101 íþróttasal þar sem allir hóparn-
^ ^ndu afurðir sínar. Teiknihópurinn
fest tvær risastórar veeemvndir
hvíti hópurinn (ein af uppákomum
leiklistarhóps) sýndi hreyfilist með
mjög svo dularfullri tónlist og Hótel
Blönduós og Brauðgerðin Krútt gáfu
sinn átskúlptúrinn hvort! Seinna um
kvöldið fékk fólk að borða þá upp til
agna.
Því næst gekk fólk yfir í sundlaugar-
bygginguna. Hana hafði skúlptúrhóp-
urinn lagt að mestu leyti undir sig og
gat þar að líta m.a. neðansjávarhús
með rúmi, fatahengi, sófa og borði
sem var búið að leggja á eins og von
væri á gestum.
En samt stöldruðu augun við fyrir
framan björgunarbát úti í miðri sund-
laug. Þar var búið að koma fyrir
veisluborði fyrir tvo og gat maður séð
— inni á milli svífandi dreka og
ófreskja — tvær persónur vera að
halda upp á tíu ára brúðkaupsafmælið
sitt. Öðru hverju komu þjónar vað-
andi í vatni upp í háls og báru á borð
drykkjarföng, forrétt, aðalrétt og eft-
irrétt. Auðvitað voru þar á ferð félag-
ar leiklistarhóps með eina af stór-
snjöllum uppákomum sínum.
Sýninguna botnaði síðan einn kenn-
ara skúlptúrhóps með því að stökkva
út í laugina og hátta í rúmið í neðan-
sjávarhúsinu og vakti það mikla kátínu
viðstaddra.
Auk fastra kennara við skólann var
nokkuð af fólki með sérþekkingu á
málunum fengið til hjálpar og má þar
fremstan nefna Örn Inga, myndlistar-
mann frá Akureyri. Það má með sanni
segja að án hans hefði sýningin aldrei
orðið að því sem hún varð.
Einnig var veigamikill þáttur nokk-
urra nemenda frá Laugalandi í Eyja-
firði en þeir komu og sýndu nokkur
skemmtiatriði.
Var það álit flestra að sýningin hefði
verið vel heppnuð í alla staði og að
erfitt yrði að gera betur en í þetta
skiptið.
Hjörvar Pétursson, 14 ára,
Blönduósi
45
(Ljósm.: J.S)