Æskan - 01.06.1986, Síða 56
Spurt um
verðlaunaþrautir
Kæra Æska!
Ég þakka fyrir gott blað. Mig langar
að spyrja þig tveggja spurninga.
1. Ef maður fær verðlaun í getraun
hjá ykkur þarf maður þá að ná í þau
sjálfur?
2. Getur hver sem er sent lausnir við
getraunum? Er það ekki einungis
bundið við áskrifendur?
Mér finnst að krossgáturnar mættu
vera fleiri. Annars er þetta besta blað í
heimi.
Ein að norðan
Svör:
1. Nei, við sendum verðlaunin með
pósti hvort sem verðlaunahafarnir eiga
heima í Reykjavík eða úti á landi.
2. Allir geta tekið þátt í getraunum
blaðsins. Þar sem Æskan er einnig seld
í lausasölu er ekki hægt að binda þátt-
tökuna við áskrifendur.
Gaman í Digranesskóla
Kæri Æskupóstur!
Ég er í Digranesskóla og langar að
segja ykkur frá skólalífinu. Einstaka
sinnum eru haldin diskótek fyrir minn
aldurshóp. Svo eru haldnar kvöld-
vökur sem valdir krakkar sjá um.
Ýmis skemmtiatriði eru sýnd og dans-
að. Ekki má gleyma að minnast á
skíðaferðirnar upp í Bláfjöll. Það er
alltaf gaman að fara þangað í góðu
veðri og verða brúnn og sællegur.
Að lokum ætla ég að láta fljóta hér
með nokkra málshætti. Ég hef safna
þeim frá því að ég byrjaði að borða
páskaegg.
Enginn verður óbarinn biskup-
Meira vinnur vit en strit.
Fall er fararheill.
Betri er lítill fiskur en tómur diskur-
Fyrr má nú rota en dauðrota.
Anna
Draumaprins
á Egilstöðum
Hæ, kæra Æska!
Ég ætla að lýsa draumaprinsinum
mínum. Hann er ljóshærður með ljós-
ar strípur og meðalhár vexti. Hann
verður í 8. bekk í vetur og hefur
mikinn áhuga á badminton og knatt-
spyrnu.
Bless, bless,
Ein á Egilstöðum
Tamningaskóli
Kæri Æskupóstur!
Ég vil byrja á því að þakka fyrir
frábært blað. Mig langar til að spyrja
ykkur nokkurra spurninga.
1. í hvaða skóla getur maður lært
hestatamningar?
2. Hvað þarf maður að vera gamall?
Með bestu kveðju,
Eva Marin Hlynsdóttir,
Giljum, Vesturdal,
560 Varmahlíð
Svar: Hérlendis er ekki til neinn
sérstakur tamningaskóli. Hins vegnn
læra nemendur Bændaskólans a
Hvanneyri og Hólum í Hjaltadal un
irstöðuatriði hestatamninga. Til er fe'
lag tamningamanna sem gengst fyrir
námskeiðum. Formaður þess er Ragn,
heiður Sigurgrímsdóttir, Keldnaholh 1
Stokkseyrarhreppi. Ef til vill getur
hún veitt þér frekari upplýsingar'
Síminn hjá henni er 99-6306.
ÆSKUPÓST URINN
56