Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1987, Qupperneq 28

Æskan - 01.05.1987, Qupperneq 28
Þrír Ijóskastarar í afmælisgjöf Elsku Æska! Ég sá í blaðinu að krakkar mættu skrifa og segja frá heimabyggð sinni eða skóla. Mig langar til að segja þér dálítið frá staðnum hér. Hann heitir Eiðar. Hér eru grunnskóli og al- þýðuskóli, báðir með heimavist. Alþýðuskólinn varð 100 ára fyrir tveimur árum og var það haldið há- tíðlegt með pompi og pragt. Hér er afar lítil kirkja. Hún er líka hundrað ára. Kirkjan fékk þrjá ljóskastara í afmælisgjöf. Þeir eru alltaf tendraðir á kvöldin og lýsa þá kirkjuna fagur- lega. Hér á Eiðum eru mjög margir kettir. Þeir eru flestir karlkyns en ég held að ein læða sé í hópnum. Hér líka eitt bóndabýli og þar eru hænur og kálfar — og ef til vill fleiri dýr. Varla er hægt að kalla Eiða kaup- tún því að hér er engin verslun. Við þurfum að aka 12-14 km til að kom- ast í búð. Grunnskólinn er mjög góður. Fé- lagslíf er ekki mikið á staðnum en við skólakrakkarnir gerum okkur ýmislegt til skemmtunar. Með þökk fyrir æðislegt blað, Lilja. Súkkulaðikúlur Kæra Æska! Ég er nýr áskrifandi að blaðinu. Mér finnst mjög sniðugt að þið skul- ið birta bréf frá lesendum. Ég á ágæta uppskrift að súkkulaðikúlum. Hún er svona: 100 g smjörlíki 3 dl hveiti 1 dl sykur 1 msk. hveitihýði 1 tsk. lyftiduft 1 msk. kakó. Öllu er blandað saman í skál. Síð- an er bætt í einu eggi og 1/4 tsk. af vanilludropum. Deigið er hnoðað og mótað í kúlur sem síðan er raðað á smurða plötu. Platan er látin í miðj- an ofninn og kúlurnar bakaðar í 10 mínútur við 200 C. Mig langar líka til að spyrja tveggja spurninga: 1. ÍCom Æskan fyrst út 1899? 2. Af hverju hafið þið ekki alltaf kynningu á hljómsveitum eða söngv- urum í blaðinu? Þökk fyrir, Birgir Ö. Steinarsson. Svör: 1. Nei, það varl897. Blaðið hefur komið út óslitið síðan að undan- teknum tveimur árum. Þess vegna er talað um 88. árgang blaðsins á þessu ári. 2. íhverju blaði er poppþáttur og þar er sagt frá hljómsveitum og söngvurum. Sérstakar hljómsveita- kynningar hafa verið annað veifið og í aðalviðtali eru oft hljómlistar- menn. Við þykjumst því gera þessu efnigóð skil. Óvenjuleg orðaskipti Kæra Æska! Ég er sammála Ölmu um að það mætti vera meira af efni fyrir ungl- inga í blaðinu og frásögnum af krökkum úti á landsbyggðinni. Hér kemur svo einn brandari: Maður nokkur kom eitt sinn að ÆSKUPÓSTURINN páfagauki í búri og horfði leng1 hann. Þá sagði páfagaukurinn: Á hvað ertu að glápa? Maðurinn varð þá mjög skömi1 ustulegur og sagði : - i 'lt Fyrirgefið þér, herra minn. ég11 að þér væruð fugl. Kær kveðja, Silla. Reyklaust ísland Kæra Æska! . Ég þakka þér fyrir æðislegt b og frábært viðtal við Kristján hC mundsson. En mig langar að bi J þig um veggmynd af íslandsmeisiu um Víkings í handknattleik. y hafa staðið sig svo frábærlega ve mér finnst æðislegt að enginn í ÞeS • góða liði reykir. Ég er líka á Þe' j skoðun að best sé að sígarettan ævilangt frí. jg Svo langar mig að spyrja V - þessa: m 1. Getur Æskan birt eitthvað u landsliðið í handknatttleik í hv’erJ tölublaði? n 2. Fá vinningshafar verðlaun* send heim? Með fyrirfram þökk fyrir birtiOS una, 7346-6044, einn aðdáenda Víkings■ Svör: 1. Við höfum valið þá leið a birta ítarleg viðtöl við handknatt- leiksmennina. Þegar hafa birst vw' töl við Kristján og Þorgils ^ttaT, — auk Kristjáns Arasonar þó a, nokkuð langt sé um liðið frá Pvl‘ Fleiri eru vœntanleg... 2. Já. Við erum þér að sjálfsögðu hjart’ anlega sammála hvað reykingaT varðar — enda hefur Æskan a’íl varað við skaðlegum áhrifnn1 þeirra. Lesendur mega hafa í huga að 1 stað „œðislegt“ má gjarna nota „einstaklega gott“, „afar gott“ og ýmislegt annað... a.m.k. Óðf hverju... 28

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.