Æskan - 01.05.1987, Qupperneq 44
Elstu félög hérlendis fyrir
börn og unglinga,
barnastúkurnar, starfa enn af
þrótti. Tvær þœr elstu, Æskan
í Reykjavík og Sakleysið á
Akureyri, feta nú fyrstu
skrefin inn í aðra öld
starfsins. Pær eru 101 árs um
þessar mundir. ífyrra
minntust þær aldarafmælis
með veglegum hátíðahöldum.
Merki heilbrigðra lífshátta var
hafið fyrir rúmri öld af félagsskap'
góðtemplara. í barnastarfi þeirra
hefur ætíð verið minnt á nauðsyn
þess að hafna tóbaki og áfengi og
öðrum vímuefnum. Þegar á þeim
tíma var mörgum ljóst hve skaðsöm
notkun allra slíkra efna er. Samt hef-
ur boðskapurinn átt misjafnlega
mikinn hljómgrunn meðal fólks. En
undanfarin ár hafa æ fleiri tekið und-
ir með bindindishreyfingunni, ekki
síst læknar og fólk úr öðrum heil-
brigðisstéttum. Frá öðrum þjóðum
berast fregnir um að þeim fjölgi
óðum sem temja sér að stunda
íþróttir, neyta hollrar fæðu og að
sjálfsögðu að forðast öll þau efni
sem koma í veg fyrir að náð verði því
marki sem hefur verið lýst með orð-
takinu : Heilbrigð sál í hraustum lík-
ama.
Tilgangur -tarfs barnastúkna hef-
ur þó ekki aðein« verið þessi.
Mikil áhersla hetur venð lögó á að
æfa félagana í að stjórna fundum,
koma fram á sviði og efla félags-
þroska þeirra. í því efni voru þær
líka á undan sinni samtíð. Nú taka
Forseti (slands ávarpar félaga bst. Æskunnar.
Til hægri eru Lilja Harðardóttir gæslum. og Sigþrúður Sigurðardóttir æt.
margir undir nauðsyn slíkrar þjálf-
unar og í skólastarfi og víðar er
kappkostað að veita tilsögn í þeim
atriðum.
Hér á eftir fylgja frásagnir af af-
mælishaldi og starfi í þeim stúkum
sem nýlega hafa átt stórafmæli.
Hátíð í fjóra daga
„Barnastúkan Æskan í Reykjavík
var stofnuð 9. maí 1886. Jafnframt
því að vera elsta barnastúka landsins
er hún einnig elsti félagsskapur
barna á íslandi.
Okkur sem stöndum að Æskunni
fannst því ástæða til að halda veglega
upp á afmælið fyrir ári,“ segir Lilja
Harðardóttir, gæslumaður stúkunn-
ar, í bréfi til blaðsins. Hún heldur
áfram:
„Fimmtudaginn 8. maí var farið í
heimsókn til forseta íslands að
Bessastöðum. Frú Vigdís tók á móti
okkur við kirkjuna og sagði sögu
hennar. Síðan bauð hún okkur að
þiggja veitingar. Hún rakti sögu
staðarins og leiddi okkur síðan um
neðri hæð hússins og nefndi mark-
verð atriði sem tengdust hverju
þeirra. Að lokum spilaði hún >
okkur á gamla spiladós. Höfðu a
mjög gaman af ferðinni. -
Föstudaginn 9. maí 1986 var
tíðafundur í fundarsal Templar^_
hallarinnar og hófst hann kl. 18- L
ir fundarsetningu bauð Lilja .
ardóttir, 1. gæslumaður. 8®
velkomna og þá sérstaklega fru -
dísi Finnbogadóttur og heiðurs ^
laga Æskunnar, þau Mörtu ou
jónsdóttur, Gissur Pálsson, 0
Hjartar og Ólaf Hjartar. Á fund'n
um las ritari, María Gunnarsdótö •
fyrstu fundargerð Æskunnar en þa
er hún nefnd barnamusteri.
Æðstitemplar, Sigþrúður Sigur
ardóttir, gaf frú Vigdísi orðið
mælti hún hlýlega til félaga Æsku'111
ar.^
Á fundinum voru veittar vit
kenningar fyrir góða fundarsókn- ^
afla nýrra félaga og vel unnin stör 1
liðnum árum. Þá voru kjörnir tjo'
nýir heiðursfélagar: Sigrún GisS
urardóttir, Sigurður Jörgensso •
Árni Norðfjörð og Gunnar Porlá s,
son, og þeim þökkuð störf Þe'rra,
liðnum áratugum. Einnig var Gre
ari Dalhoff þakkað fyrir orgelle'n ‘
fundum Æskunnar.
Fyrstu skrefin iní