Æskan - 05.10.1987, Blaðsíða 18
Unglingasaga eftir Eðvarð Ingólfsson
Hún heitir Agnes, þessi kvika og leikna
stelpa í Fram. Hún er meðalhá og ljós-
hærð með dökkbrún augu. Algjör
súkkulaðidís!
Svenni er að horfa á leik Fram og íA
í íþróttahöllinni á Akranesi. Þóra systir
hans, sem er einu ári yngri en hann, 13
ára, leikur með síðamefnda liðinu.
Hann ætti auðvitað að halda með ÍA
eins og allir sannir Akurnesingar gera
— en hann segir ekki nokkmm manni
frá því að hann heldur með Fram þegar
Agnes er með boltann. Hann getur
ekki slitið augun af henni; hún er svo
sæt.
Þetta er í annað sinn sem Svenni sér
Agnesi keppa. í fyrra skiptið var það í
Reykjavík fyrir mánuði þegar liðin
léku saman í fyrri umferð í riðli sínum í
íslandsmótinu. Hann ætlaði ekki að
nenna á leikinn en Þóru tókst að draga
hann með, sagði að ekki veitti af stuðn-
ingsliði og bróðir sinn gæti því ómögu-
lega skorast undan. Margir skólafélag-
ar þeirra úr Gmndaskóla fóm til að
hvetja liðið og Svenna fannst svo sem
ágætt að fá frí í skólanum til að skreppa
í bæinn. Hann sá ekki eftir því þegar
hann uppgötvaði þessa stórkostlegu
Agnesi! Þóra þurfti ekki að minnast á
það einu orði að hann sæi seinni leik-
inn, honum fannst það svo sjálfsagt.
Það er ekki orðum aukið að Svenni
er bálskotinn í Agnesi. Honum finnst
hún beinlínis vera ómótstæðileg og
bera af öðmm stelpum í liði sínu. Ekki
var erfitt fyrir hann að komast að því
hvað hún héti þegar áhangendur Fram-
liðsins vom að hvetja hana áfram í fyrri
leiknum. Þeirhrópuðu: Agnes! Agnes!
þegar hún var með boltann. Eftir leik-
inn gaf Svenni sig á tal við hávaxinn og
hjólbeinóttan Frammara sem fræddi
hann á því að hún væri dóttir Jóns
Bjarnasonar, þjálfara liðsins.
— Þetta er æðislega skemmtileg og
vinsæl stelpa, sagði Frammarinn og var
greinilega stoltur af því að þekkja
hana.
Agnes Jónsdóttir! Svenna fannst
honum verða heilmikið ágengt, hann
gæti auðveldlega flett pabba hennar
upp í símaskránni og komist að því hvar
hún ætti heima.
stefnum(
Næstu daga átti Svenni erfitt með að
sofna fyrir hugsunum um hana. Hann
lét sig dreyma um að þau væru á föstu
og leið þá alltaf svo vel. En svo varð
hann niðurdreginn þegar hann fór að
velta fyrir sér hvernig hann gæti komist
í kynni við hana. Hann hafði fram að
þessu hugsað mörg ráð en misst trú á
þeim öllum. Hann var í stökustu vand-
ræðum!
Þessum seinni leik í A og Fram lýkur
með jafntefli. Akurnesingar geta vel
við unað því að þeir skoruðu jöfnunar-
markið á síðustu sekúndunum. Svenni
er mjög ánægður með úrslitin því að
hann hefði ekki viljað að Agnes tapaði
og ekki heldur óskað systur sinni þess.
Jafntefli er besta niðurstaðan.
Svenni reynir að gleyma Agnesi
næstu daga en getur það ekki. Honum
er farið að líða illa yfir því að finna enga
leið til að kynnast henni. Hann er
búinn að missa trú á að af þvl 'e ^
nokkurn tíma. Hann hefur sig ekk'1 ^
hringja í hana þó að hann viti nUtneuII,
því að hann veit hreinlega ekki
hvað hann á að tala, óttast að húns ^
á sig og haldi að hann sé einhver rn_
dallur! {
Viku eftir að leikurinn fór /ra^6t.
íþróttahöllinni á Akranesi rennir p
urinn nýjustu Æskunni inn um D ^
lúguna heima hjá Svenna. ^annfij;.
áskrifandi að henni. Þóra hefur oft1 ^
ið blaðið þegar hún hefur séð Þa ^
undan honum og lesið þáð án þesS
spyrj a fyrst um leyfi. En nú er þa^ r
sem er fyrri til enda enginn an
heima. Hann er nýkominn úr sk°
um' ' lætur
Svenni nær sér í svaladrykk og -
fara vel um sig með Æskuna uPn^(.
stofusófa. Hann les hverja greinin3 e ^
ir aðra og einnig les hann pennu"
18