Æskan - 05.10.1987, Blaðsíða 32
Bjami látúnsbarki í viðtali
sviðið. En það hvarf fljótt þegar hann
byrjaði að syngja.
— Hvernig leið þér svo þegar ljóst
var að þú hafðir unnið Látúnsbarka-
keppnina?
„Það er varla hægt að lýsa því með
orðum. Þetta er einstök stund sem
aldrei gleymist. Ég var alveg uppi í
skýjunum."
— Hafðirðu gert þér vonir um sigur
fyrirfram?
„Nei, því að ég vissi að róðurinn yrði
erfiður. Þegar ég heyrði í hinum kepp-
endunum fannst mér þeir alveg meiri-
háttar!"
Fer&alögin þreytandi
Bjarni starfaði í sumar hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands. Morguninn eftir
keppnina mætti hann til vinnu eins og
ekkert hefði í skorist. En friðurinn var
fljótt úti. Hann gat ekkert unnið allan
daginn fyrir blaða- og útvarpsmönn-
um. Þeir ýmist hringdu eða komu til
hans á vinnustað. Hann var varla kom-
inn í gúmmívettlingana aftur eftir við-
tal þegar hann þurfti að sinna því
næsta. Hann var ánægður með allt sem
blaðamennirnir skrifuðu nema þegar
þeir voru að tala um að hann hermdi
ágætlega eftir Agli Ólafssyni.
„Ég er engin eftirherma," segir
Bjarni hálfreiður. „Ég er sjálfstæður
söngvari."
Eftir Látúnsbarkakeppnina hefur
verið nóg að gera hjá Bjarna við að
syngjaog skemmta. Hann hefurferðast
víða um land í sumar og haust, annað
hvort einn eða með hljómsveit sinni
sem heitir Vaxandi. Hún var stofnuð
fyrir ári.
„Það er gaman að skemmta fólki en
það er ótrúlegt hvað maður þreytist
fljótt á því að ferðast," heldur Bjariíi
áfram. „Ég hef farið út á land nánast
um hverja helgi eftir að ég sigraði."
Ég spyr næst hvort hann verði fyrir
miklu ónæði frá aðdáendum sínum.
„Ég get ekki neitað því. Stundum
hringja stelpur í mig án þess að eiga
nokkurt erindi. Nýlega hringdi ein sem
vildi bara fá að vita hvort einhver hefði
boðið mér með sér á bíó þá um kvöldið!
Ég sagðist ekki vita til þess og þá kom
stutt þögn og svo kvaddi hún. Þegar ég
kem heim á kvöldin bíður eftir mér
langur listi með nöfnum fólks sem hef-
ur hringt um daginn. Flest af því er
kannski að reyna að fá mig til að
skemmta. Ég vísa alltaf á umboðs-
manninn í þeim tilvikum. Hann skipu-
leggur þetta fyrir mig og hljómsveit-
ina.“
— Áttu þér einhverja eftirlætistón-
listarmenn?
„Já, Elvis Presley. Mér finnst hann
stórkostlegur. Ég og vinur minn höfum
kynnt okkur öll lög hans og texta. Vin-
urinn keypti 26 plötur með Presley í
London í sumar og þú getur rétt ímynd-
að þér hvort þá hefur ekki verið veisla
hjá okkur.“
Bjarni kveðst hafa dálæti á margs
konar músík, hann hlusti á flestar teg-
undir tónlistar og hafi t.d. mjög gaman
af tónlist eftir þá snillinga Mozart og
Beethoven.
Verölaunaferöin skemmtileg
Eftir að leitin að Látúnsbarkanum
hafði borið árangur söng Bjarni þrjú
lög inn á plötu sem gefin var út í tilefni
söngvakeppninnar. Lögin Þú og ég og
Slá í gegn trónuðu lengi efst á vinsælda-
listum útvarpsstöðvanna. í Réttó er á
uppleið.
Fyrir að sigra keppnina fékk Bjarni
farmiða fyrir tvo til Lundúna. Hann
dvaldist þar í 8 daga. Hvað getur hann
sagt okkur frá þeirri ferð?
„Með mér í för voru þrír vinir mínir,
Hjalti umboðsmaður og trommu- og
gítarleikarar i Vaxandi. Ég bauð tveim
þeirra að skipta öðrum miðanum 111 in'
um á milli sín. Við gistum á mjög glæsi-
legu hóteli og nutum margs af þvísetT1
London hafði upp á að bjóða. Við iót-
um t.d. á söngleikinn Time sem er a -
veg frábær! Allt húsið er notað til a
gera leikinn sem bestan. Ljósabúnaður
er um allt og meira að segja rúður og
speglar á hliðarveggjum notuð. S\o
fórum við á indverskan matsölustað.
Gaman var að sjá hvernig Indverjar
höguðu sér við matargerðina. Við for-
um líka á unglingaskemmtistað sem
nefnist Sjöundi himinn. Okkurundraði
að sjá þar ekki vín á nokkrum unglingr
Og það í stórborg! Svo get ég nefnt a
við hittum Jakob Magnússon þarna og
fórum m.a. með honum á góða djass-
tónleika. Því miður komumst við ekki á
hljómleika með Stevie Wonder en þeir
voru haldnir í London daginn eftir að
við flugum heim. Ferðin var mjog
skemmtileg í alla staði."
— Framtíðin?
„Ég horfi björtum augum til framtí
arinnar og hlakka til að takast á við þan
verkefni sem bíða mín. Mig langar ti
að halda áfram að læra á trompet og
svo gæti ég best trúað að ég lærði em-
hveija iðn. Það verður allt að koma i
ljós.“
— Að síðustu: Margar stelpur fýslf
sjálfsagt að vita hvort látúnsbarkinn se
á föstu?
Það koma vöflur á Bjarna.
„Vil ekkert láta hafa eftir mér!“ svar-
ar hann glottandi. „Það skiptast á skm
og skúrir í heimi ástamálanna eins og
allir vita.“
Viðtal: Eðvarð Ingólfsson
32