Æskan - 05.10.1987, Blaðsíða 22
Ort um Æskuna
Möppur undir Æskuna
Kæri Æskupóstur!
Ég er hér ein sem er áskrifandi að
Æskunni og mig langar til að spyrja
hvort þið seljið möppur undir blaðið.
Ef svo er hvað kosta þær?
Kær kveðja,
Berglind Antonsdóttir,
Deildarfelli, Vopnafirði
Svar: Möppur undir Æskuna fást í bóka-
búð okkar, Laugavegi 56, og kostar hver
þeirra 375 kr. Þeir sem eiga heima úti á
landi geta hringt og pantað þœr gegn
póstkröfu.
Viltu eignast
pennavin?
Þessi 9 ára stelpa á heima í Svíþjóð
og hana langar til að eignast pennavin á
íslandi. Hún heitir Jenný og á heima í
nágrenni Stokkhólms, höfuðborgar
landsins. Hún á tvær systur og þær
heita Helena og María. Þær eiga hund
saman. Áhugamál Jennýjar eru knatt-
spyrna og poppstjömur.
Hún vill skrifast á við krakka á aldr-
inum 8-11 ára. Hér er heimilisfang
hennar fyrir þá sem hafa áhuga á að
skrifa henni:
Jenny Kagested,
Björnskogsgrand 185,
162 46 Vállingby, Sverige.
Vísa um Buslu
Busla hún er besta skinn,
best af öllum hundum.
Glöð hún matinn gleypir sinn
gjarnan öllum stundum.
Sendandi: María H. Valberg,
Auðkúlu 2,
A-Húnavatnssýslu.
Bréf úr sveitinni
Kæra Æska!
Ég hef skrifað þér einu sinni áður.
Ég ætla að segja þér frá því hvemig er
að búa hérna í sveitinni. Við höfum
kindur, kýr, endur, hund og kött. Égfæ
200 kr. á mánuði fyrir að reka kýrnar á
sumrin.
Ég er í skóla en hann er mjög lítill.
Við erum aðeins 14 í honum. Við leik-
um okkur mikið saman. Ég á systur
sem heitir Ingunn. Við emm búin að
eignast folald og afi okkar líka. í vor
fengum við 240 lömb.
Nú hef ég ekki meira að segja.
Þórey Bjarnadóttir 9 ára,
Kálfafelli 2, 781 Höfn.
Hæ, hæ, kæra Æska! gn
Ég hef aldrei skrifað þér á u
vona að þetta ljóð verði birt.
Þetta blað er Æskan.
Það er rosa skemmtilegt.
Lestu það nú, gæskan,
þú finnur ekkert leiðinlegt. u
Svo langar mig til að óska V1” ^ur
minni til hamingju með litla r ^
sinn. Hún heitir Edda og á heim
Sauðárkróki.
Þökk fyrir birtinguna.
K. Massa í Kefló.
Uppskrift að kókos-
bollum
Kæri Æskupóstur! • j
Ég hef verið áskrifandi að ^skutl
eitt og hálft ár. Mér finnst hún ta}
skemmtileg. Ég á í fórum mínum g
uppskrift að kókosbollum ef þið V1
birta. Hún er svona:
100 g smjörlíki
2-4 dl haframjöl
1 msk. kakó
2-4 msk. sykur , ,.,j
Síðan er allt hnoðað vel saman ís'
Deigið er mótað í bollur og þeirn v
upp úr kókosmjöli.
Mig langar að síðustu að spyrja el
ar spurningar. Hvenær hóf Bjössi 0
göngu sína í Æskunni?
Með kærri kveðju,
Þorvaldur Pálsson 12 ára,
Fitjum, Kinn,
S-Þingeyjarsýslu.
Veggmynd af EuroPe
Kæra Æska! 9
Getur þú birt veggmynd af ^ur°P^’
Ég veit að hljómsveitin á marga að
endur hér á landi og enn fleiri en áðu
eftir að hún hélt hljómleika hér ísUfll
ar. Vinsamlegast athugið málið.
Evrópu aðdáandi
ÆSKUPÓST LJRINN
22