Æskan - 05.10.1987, Side 31
í viðtali
héldu lagi fengju að læra á hljóðfæri og
vera með í hljómsveitinni. Hann rétti
okkur munnstykki og benti okkur síð-
an á að fara út í horn og stæla brunabíls-
hljóð. Margir krakkanna heltust úr
lestinni á þessu prófi en ég komst
áfram. Síðan skoðaði Ólafur á mér
munninn, kjálka og tennur, til að at-
huga hvaða hljóðfæri hentaði mér best.
Ég vildi læra á klarinett en hann vildi að
ég lærði á trompet og það varð úr.“
— Er erfitt að læra á trompet?
„Já, það krefst mikillar vinnu. Ég æfi
minnst eina klukkustund á dag. Þetta
kallar á þrotlausa þjálfun ef maður ætl-
ar að halda sér vel við.“
— Eru fleiri í fjölskyldu þinni sem
kunna eða eru að læra á hljóðfæri?
„Aðeins systir mín. Hún er að læra á
klarinett.“
Bjarni á fimm systkini. Systurnar eru
í meirihluta, þrjár, en þeir bræðurnir
tveir. Eldri bróðir hans er 30 ára.
„Ég kalla hann stundum afa til að
stríða honum af því aldursmunurinn er
mikill á okkur," segir Bjarni og hlær
við.
„Stund sem aidrei gleymist"
En hvernig atvikaðist að Bjarni tók
þátt í Látúnsbarkakeppninni?
„Ég sá auglýsingu um hana í Morg-
unblaðinu kl. 8 einn morguninn," svar-
eföihenna“!
, "Ég var í Hólabrekkuskólaskóla
Pegar ég byrjaði að læra á trompet,“
eg>r Bjarni. „Það vildi þannig til að
^ngkennarinn okkar, Ólafur, kom inn
1 ekkinn og bað þá að rétta upp hönd
^em vildu leika í skólahljómsveit. Við
°rum nokkur sem gátum hugsað okk-
Ur það. Síðan fór hann með okkur nið-
r 1 söngstofu og tilkynnti að þeir sem
ar hann. „Ég gerði þá ekkert í málinu
en hugsaði þó um hana. Nokkru seinna
hringdi vinur minn og núverandi um-
boðsmaður, Hjalti Þorsteinsson, í mig
og kvaðst hafa látið skrá mig að mér
fornspurðum. Við höfðum kynnst vel í
félagsstarfi í Árbæjarskóla.
Svo kom að undankeppninni. Ég
keppti á dansleik í félagsheimilinu
Stapa í Njarðvíkum. Ég veit ekki af
hverju ég var sendur þangað en ekki á
Hótel Sögu þar sem Reykvíkingar
kepptu. Ég hef satt að segja aldrei feng-
ið neina skýringu á því. Við vorum
nokkur sem tókum þátt í undankeppn-
inni og fengum að æfa okkur með
hljómsveitinni sama dag og keppnin fór
fram. Um kvöldið bar ég svo sigur úr
býtum.
Skömmu seinna bað Jakob Magnús-
son mig um að koma fram á Hótel Sögu
og syngja lagið Slá í gegn sem ég hafði
valið mér að flytja í keppninni í Stapa.
Undirtektirnar á Sögu voru alveg frá-
bærar. Ég hafði aðeins sungið fyrstu
línuna þegar fólkið stóð upp og klapp-
aði fyrir mér. Það stóð svo aftur upp
þegar ég söng viðlagið. Þetta var væg-
ast sagt stórkostleg reynsla fyrir mig og
mikil hvatning."
— Af hverju valdirðu lagið Slá í
gegn en ekki eitthvert annað iag?
„Ég ætlaði fyrst að syngja lagið
Taktu til við að tvista en svo fannst mér
röddin njóta sín betur í Slá í gegn. Þeg-
ar ég var búinn að velja lagið endanlega
skrifaði ég textann hjá mér til að læra
hann og pikkaði út hljómana til að geta
leikið með á gítar. Ég fékk síðan lánað
söngkerfið hjá hljómsveitinni okkar og
æfði mig að syngja lagið í herberginu
mínu. Fyrst söng ég það með Agli
Ólafssyni af plötu Stuðmanna en svo án
hans.“
Bjarni segist hafa verið haldinn mikl-
um sviðsskrekk í keppninni, hann hafi
nötrað og skolfið áður en hann fór inn á
Með umboðsmanni sínum og vini, Hjalta
Þorsteinssyni
31