Æskan - 05.10.1987, Síða 50
Ríkissjónvarpið verður með
fjölbreytt efni fyrir börn og unglinga
alla daga vikunnar kl. 18.
Stundin okkar verður að venju á
sunnudögum. Umsjón hennar annast
Helga Steffensen — sem allir þekkja
að góðu fyrir leik í Brúðubílnum —
og Andrés Guðmundsson kennari. Þá
tekur við framhaldsþátturinn Tripots
og loks Á framabraut. Óhætt er að
segja að sú þáttaröð njóti einstakra
vinsælda og ófáir setja sig í spor
þeirra sem feta framabrautina. Hún
er að sjálfsögðu ógreið á köflum og
því nauðsynlegt að gæta vel að hvar
og hvernig stigið er niður. Þar duga
ekki víxlspor og ekki greiðir fyrir að
leggja lykkju á leið sína með einum
eða öðrum hætti. Heiðarleiki,
einbeitni og ástundunarsemi stuðla
best að því að tryggja gott gengi unga
fólksins í þáttunum — eins og
hvarvetna á leiksviði lífsins.
Á mánudögum verður áfram
skyggnst um Töfragluggann.
(Endursýnt frá miðvikudegi vikuna á
undan) Handritið semur Sigrún
Eldjárn, umsjón hefur Árný
Jóhannsdóttir og Tinna Ólafsdóttir
kynnir eins og áður. Ný vera kemur
arnaefni Stöðvar 2 verður áfram á
augardags- og sunnudagsmorgnum
ra kl. 9-12 og síðdegis alla virka daga
verða ýmist leiknar barna- og
Unglingamyndir eða teiknimyndir.
A laugardagsmorgnum frá 9-10.30
'srður barnatími fyrir yngstu
’ynslóðina. Kallast hann „Með afa“.
Afí ' •
,* sýnir börnunum skemmtilegar
|e'knimyndir, sem allar verða með
's*ensku tali, ásamt ýmsu öðru
arnaefni, innlendu og erlendu. Þar
^ nefna teiknimyndaþættina „Litli
®linn minn“ (My little pony). Örn
rnason leikur afann sem er mikill
yravinur og safnar og hænir að sér
a Is konar gæludýr.
A sunnudagsmorgnum verður
andað barnaefni, svo sem
prumuketúna
Or þáttunum
hörkuspennandi teiknimynd,
„Þrumukettirnir“, og einnig
skemmtileg teiknimynd um Albert
feita og félaga. Þrumukettirnir eru að
hálfu menn og hálfu leyti kettir og
eiga heimkynni sín í frumskógi. Þeir
Rasningjar aftur komnir á kreik
fram —en ekki má segja hver það
er. . .
Erlendir myndaflokkar verða
sýndir á þriðjudögum — Villi spæta
og Súrt og sætt. Töfraglugginn er
frumsýndur á miðvikudögum; Stundin
okkar endursýnd á fimmtudögum og
auk þess birtast þá „kátínuormarnir“
— litlir álfar sem eru söguhetjur í
teiknimyndaflokki.
Nilli Hólmgeirs sér um að kæta
krakka á öllum aldri á föstudögum og
þegar hann hefur kvatt koma til
sögunnar ýmsir skemmtilegir þættir,
til að mynda Galdrakarlinn í Oz og
sígildar sögur um Heiðu.
Af laugardagsþáttum má nefna
Kardimommubæinn eftir Þorbjörn
Egner — í íslenskum búningi. Róbert
Arnfinnsson verður sögumaður en
Klemens Jónsson stjórnar. Allir
kannast við Kasper, Jesper og
Jónatan, þrjótana þá. Raunar reynast
þeir hin bestu skinn og enda sem nýtir
menn í hinu einstaka bæjarfélagi sei
sagan greinir frá. Margir muna
ræningjana á sviði Þjóðleikhússins c
kætast eflaust yfir að sömu leikarar
fóru síðast með hlutverk þeirra mui
syngja og tralla í þessum þáttum-
Stundargaman er á dagskrá á
laugardögum sem fyrr. Þórunn
Pálsdóttir, kennari og leikari. sér ui
Þá‘ ð
Þulir lesa íslenskan texta meo
myndum — eins og verið hefur um
sinn og þó enn oftar en til þessa.
siáum við folana fljúgandi, glóálfana gullnu og kartöflukrakkana — söguhetjur í vinsæl
teiknimyndaþáttum.
l' \j— i-r-;
r\st
gæta meistara síns og töfrasverðs hans
sem margir reyna að stela. Þættirnir
eru gerðir með ráðgjöf
barnasálfræðinga. Enda þótt
söguhetjurnar séu síst venjulegar
útlits og oft sé hart barist er áhersla
lögð á jákvæðan boðskap.
Ævintýri H. C. Andersens verða
áfram á fimmtudögum og Hímann
(He-man) á þriðjudögum.
Ætlunin er að setja íslenskt tal inn
á sem flestar teiknimyndir og
framleiða fleiri þætti fyrir börn en til
þessa hefur verið unnt. Meðal þess
efnis sem unnið er að má nefna
Ömmuna í garðinum. Það eru 10
mínútna langir leiknir þættir sem Saga
Jónsdóttir leikkona hefur samið og
leikur hún ömmuna. Ymislegt óvænt
og ótrúlegt hendir ömmu og vini
hennar; Dúfu, Pósa póstkassa og
fleiri.
Þá verða gerðir þættir um starf
skáta að Úlfljótsvatni; Reiðskólann í
Víðidal og Siglingaklúbbinn í
Nauthólsvík sem Æskulýðsráð
Reykjavíkur starfrækir.
Þrír leikarar hafa verið fastráðnir til
að setja tal við teiknimyndir og annað
efni. Það eru Guðrún Þórðardóttir,
Saga Jónsdóttir og Júlíus Brjánsson.
Örn Árnason sem afinn
Margt verður því til að gleðja augu og
eyru þeirra er tylla sér fyrir framan
sjónvarpsskjáinn. Þegar ég sit við
tölvuskjáinn og lýk við að letra þetta
á hann verður mér á að leiða hugann
að því hve afar ótrúleg fyrstu
lesendum Æskunnar hefði þótt sú spá
að þetta ætti eftir að bjóðast barna-
barna-barna-börnum þeirra!
50
51