Æskan - 01.06.1988, Síða 32
Kæra Æska!
Þökk fyrir „æðislega“ gott blað.
Mér fmnst samt að Æskupósturinn
ætti að birta fleiri bréf frá krökkum
sem vilja skýra frá vandamálum sín-
um og að Æskan ætti að taka svo sem
eina til tvær blaðsíður undir vanda-
málaþátt.
Mig langar til að segja þér frá
vandamáli sem ég á við að glíma:
Hvernig á ég að gera upp á milli
tveggja stráka sem ég er hrifin af? Ég
er alveg ráðþrota. Ég veit eiginlega
ekki hvað ég geri ef þú birtir ekki
svar.
Langnesingur
Þegar einhver reynir að gera upp
á milli tveggja eða fleiri einstakl-
inga sem vakið hafa hrifningu hans
(hennar) teljum við að mestu skipti
að líta til þess hvor sé betri drengur.
(Orðtakið góður drengur á jafnt við
pilta og stúlkur) Oft er það útlitið
sem fyrst heillar en varast ber að
einblína á það. Reynið að ráða í
hvem mann sá hefur að geyma sem
athyglin beinist að. Kemur hann vel
fram við þá sem eru minni máttar,
„teknir eru fyrir" eða lagðir eru í
einelti? Er hann skilningsríkur, al-
úðlegur og kurteis - þolinmóður,
hjálpsamur og hreinskiptinn? Ekki
sakar að hann hafi kímnigáfu.
Margir unglingar virðast gera sér
þœr grillur að þeir séu að minni ef
þeir eru ekki „á föstu“ á unga aldri.
Það er bábilja. Hafið engar áhyggj-
ur af þó að samband ykkar við hitt
kynið falli ekki undir það hugtak.
Og trúið ekki öllum sögum sem
sagðar eru! Margir skrökva eða
auka að minnsta kosti við þegar
þeir lýsa „afrekum“ sínum á þessu
sviði. En alltaf er gott að eiga góð-
an vin og heilan.
Sýnið að þið séuð trausts verð og
verið einlœg og sönn í framkomu.
Þá er ekki að efa að þið tengist góð-
um einstaklingi af gagnstœðu kyni
traustum böndum - fyrr eða síðar.
Ekkert liggur á! Þó að allt virðist
einskis vert um stundarsakir ef
„draumaprins“ eða ,,-prinsessa“
lítur ekki við ykkur eða gefur öðrum
meiri gaum en ykkur fœr tilveran
tilgang aftur fyrr en varir!
Pennavinir
Svar:
Alþjóðlegir pennavinaklúbbar S
greitt úr vanda ykkar. Við h°J
oft birt heimilisföng slíkra ^
vegna þess að áskrifendum fj°
iRR-
ar ört skulum við endurbirta ?l0.
ur:
Intemational Relationships>
Porsvágen 6,
S-302 40 Halmstad - Sverige.
Klúbburinn tekur einn Ban^g
ríkjadal fyrir birtingu á nafm
heimilisfangi. Best er að senda a
þjóðleg svarfrímerki að þeirri uP
heeð.
Við fengum nýlega heimifsfa
alþjóðlegs pennavinaklúbbs:
Correspondence Club Scandinav'a’
PB 1, 4330 Hvalsp, Danmark■
pennavina hefur boðið:
Svar:
í Æskupóstinum höfum við birt
nokkur bréf með lýsingu á vanda-
málum líkum þeim er þú segir frá
og reynt að hughreysta bréfritara og
ráða þeim heilt. En allir sjá að erf-
itt er um vik að ráða fram úr
vandamáli sem ekki er lýst nánar -
og raunar getum við aldrei betur
gert en að birta almennar hugleið-
ingar og vangaveltur þó að ná-
kvœmlega sé sagt frá málavöxtum.
Við munum svara fáeinum bréf-
um af þessu tagi í Æskupóstinum,
e.t.v. helga því eina eða tvœr blað-
síður annað veifið, en ekki í föstum
þœtti.
Það sem fer hér á eftir mega því
margir, sem hafa lýst vandamálum
sínum lauslega fyrir okkur, líta á
sem svar:
Kæra Æska!
Við erum tveir þrettán ára Hafn-
firðingar. Okkur langar mikið til að
fá pennavini í mjög fjarlægum lönd-
um, svo sem Angóla, Tansaníu,
Kongó, Suður-Afríku, Egyptalandi,
Saúdí-Arabíu og Alaska. Viltu vera
svo góð að birta heimilisföng penna-
vinaklúbba í þessum löndum?
Krakkar! Ef þið hafið hugmynd
um pennavinablöð, klúbba eða eigið
pennavini í þessum löndum og vilja
skrifast á við fleiri íslendinga - viljið
þið þá vera svo elskuleg að skrifa til
okkar?
Guðný Hrund Þórðardóttir,
Klausturhvammi 6, 220 Hafnarf.
og
Ema B. Jónmundsdóttir,
Bröttukinn 16, 220 Hafnarf.
Rut Jakobsdóttir,
Aðalgötu 25, 625 Ólafsftðt-
llfjí
Sendið henni upplýsingar ^
ykkur og óskir ykkar - og rv° ^
þjóðleg svarfrímerki (þau faS‘ L
pósthúsum) þá annast hún aW
ykkur.
oí
Alþjóðlegt pennavma-
safnaratímarit getið þið líka /f ^
frá mexíkönskum manni - fyn‘r. -r
alþjóðleg svarfrímerki. Hartn
nöfn og heimilisföng ykkar an
urgjalds. Utanáskrift er:
Jaime López Tiro,
P.O. BOX 770,
06000 México 1, D.F-
- Mexico.
fíf
Við minnum einnig á ^tsía.'allri
nokkra pennavinaklúbba en
birtum við í 9. tbl. 1987, á bls■