Æskan - 01.05.1989, Qupperneq 19
Amma var í nýjum kjól
°g mamma líka.
Litlu tröllin voru líka fín.
~ Og svo hegðið þið ykkur
eins og almennileg tröll,
sagði pabbi þeirra hvass.
~ Engin áflog eða læti,
þá sendi ég ykkur heim!
~ Auðvitað, sögðu strákarnir.
En þeim kom ekki til hugar
að gegna honum.
Fyrst var drukkið kaffi.
Eað tók langan tíma
því að tröllin voru mörg
°g borðuðu mikið.
Svo var farið í trölla-leiki.
Tröll hafa gaman af að leika sér,
sérstaklega gömul tröll,
°g þau léku sér svo lengi
að tröllaballið gat ekki byrjað
fyrr en seint um kvöldið.
Ln þá var nú líka fjör!
dönsuðu úti í skógi.
Sólin var löngu sest
^g tunglið komið upp.
^að þótti tröllunum skemmtilegt
Pví að þau eru svo rómantísk.
^óniasína litla
§®úi pakkanna hans afa.
Hún taldi þá
^g skrifaði upp
vað hann fékk frá hverjum
Pví að hún skrifaði
®ói fljótt og vel.
^akkarnir voru 636!
Seinna um nóttina
tók Tómasína eftir því
að þeir voru aðeins 630.
Hinir voru horfnir.
Tómasína sótti Tyrfing
og þau fylgdust með gestunum.
Þá sáu þau
að Teddi gamla-tröll
laumaðist í burtu
með fulla vasa.
Tyrfingur stökk af stað.
- Grípið þjófinn!
skrækti Tyrfingur
og hljóp á eftir Tedda gamla.
Nú varð mikill
handagangur í öskjunni.
Teddi gamli var króaður af
og gjafirnar teknar af honum.
Hann bara grét og grét.
- Mig iangaði svo í gjafir!
Ég á aldrei afmæli! snökti hann.
Afi vorkenndi Tedda gamla.
- Eigðu þetta, gamli jaxl,
sagði afi bara.
- Ég á svo mikið.
Svona var trölla-afi góður!
En það voru ekki allir góðir.
Margir vildu rífast
og enn fleiri vildu fljúgast á.
Og fyrr en varði
logaði allur skógurinn
í áflogum.
Teikningar: Níu ára börn í
Grundaskóla á
Akranesi
Tröllabörnin urðu hálf-hrædd.
Þau stóðu bara og horfðu á.
Tröllin voru svo æst,
sérstaklega gömlu tröllin.
Borð og bekkir voru brotin,
kökur og kaffi sópaðist
niður á jörð.
Tómasína og Tyrfingur
sáu pabba sinn
inni í miðjum hópnum.
Hann var rauður í framan
og flaugst á eins og hann
ætti lífið að leysa.
- Sjáðu pabba,
hvíslaði Tyrfingur.
- Hann bannaði okkur
að fljúgast á
og er svo ekkert betri sjálfur!
Tómasína og Tyrfingur
tókust í hendur
og flýttu sér heim á leið.
Á leiðinni litu þau við
og sáu skóginn loga
af áflogum.
Mikið gátu fullorðin tröll
annars verið skrýtin!
ÆSKAN 19