Æskan - 01.10.1989, Qupperneq 4
Æskan hefur gefið út bókina Brúðan
hans Borgþórs eftir Jónas Jónasson
útvarpsmann. Það er afar skemmtileg
saga semfjallar umfólk í Ljúfalandi;
einkum um Borgþór smið, Ólínu konu
hans, brúðuna Hafþór skipstjóra,
Heiðu litlu og borgarstjórahjónin Jör-
und og Kolfmnu. - Sigrún Eldjárn
teiknaði myndir semfalla vel að efni
sögunnar.
í 2.kafa segir frá því er Jörundur
borgarstjóri kemur að gosbrunninum
á torginu. . .:
Börn léku sér oft í og við gos-
brunninn á torginu. Stundum fóru
þau úr skóm og sokkum og strák-
arnir brettu upp buxnaskálmarnar
en stelpurnar gættu þess vel að
bleyta nú ekki pilsfaldana. Svo var
buslað og skvett svo að hornsílin,
sem bjuggu í vatninu, urðu skelf-
ingu lostin og syntu í allar áttir.
Fullorðna fólkið, sem leið átti
um torgið, nam staðar til að horfa á
um stund, brosti og veifaði til þess-
ara ungu „vaðfugla“ því að sjálft
hafði það einu sinni verið ungt og
baðað fætur sína í þessum gos-
brunni.
Dag nokkurn stansaði borgar-
stjórinn við brunninn og þegar
hann sá börnin vera að leika sér,
sum með litla kubba sem flutu eins
og alvörubátar, gleymdi hann því
að hann var á leið heim til að borða
tj
i
C
r
í
c
t
i
í-
g
'l
t
l'
y
lr
i
í!
5
1
f
t.
I!
í.
íi
hádegisverð og af því að það var svo
mikið sólskin gat borgarstjórinn
ekki stillt sig um að fara úr jakkan-
um og skónum og sokkunum, setti
það snyrtilega frá sér á bekk við
brunninn, bretti upp ermarnar og
klifraði svo með erfiðismunum yfir
brunnbarminn og óð fagnandi til
barnanna sem klöppuðu borgar-
stjóranum sínum lof í lófa og brátt
fylltist loftið af hlátri og gleðihróp-
um barna og borgarstjóra sem varð
eldrauður í framan af ákafa og kát-
ínu, svitnaði á skallanum svo að
droparnir láku niður á hárkragann í
hnakkanum; augu hans ljómuðu
skærar en þau höfðu gert lengi.
Kona borgarstjórans, sem var
röggsöm og stjórnaði manni sínum
af jafnmikilli festu og hann stjórn-
aði borginni, kom nú að í þessu.
Hún var á leiðinni að sækja mann-
inn sinn á skrifstofuna en það gerði
hún gjarnan ef hann var seinn heim
í matinn. Hann átti það til að
gleyma að koma heim á réttum
tíma; honum þótti svo gaman í
vinnunni. Konan hans nam staðar
við brunninn og horfði á þennan
vamsleik og reyndi eins og hún gat
að vera ströng á svip og missa ekki
varir sínar í bros. Gleraugun henn-
ar, sem alltaf sátu framarlega á
hvössu nefinu, földu kátínuna í
augunum og af því að hún var í
leikfélaginu og þótti ágætur leikari,
í
í
i
1
1
f<
I
r.
I
fl
H
i
I
einkum í hlutverkum frekra kvenna
og ráðríkra, bjó hún til strangleik í
róminn og kallaði:
- JÖRUNDUR!
Berfætti borgarstjórinn heyrði
ekki því að það ískraði í honum
hláturinn og hann var lafmóður af
ákafanum. Hann lyfti fótunum til
skiptis hátt upp og stappaði þeim
svo fast niður í vatnið að gusurnar
gengu í allar áttir, aðallega yfir
börnin og hann sjálfan, og þá skelli-
hló allur hópurinn en hæst hló þó
borgarstjórinn. Borgarbúar, sem á
horfðu, tóku undir svo að torgið
varð ein hlátursamkoma og berg-
málaði í veggjum húsanna og
gluggarúðurnar titruðu en á bak við
þær sáust andht forvitinna íbúa sem
virtu fyrir sér þetta hláturlíf í borg-
inni sinni.
Borgarstjórafrúin kallaði enö
hærra:
- JÖRUNDUR!!
Nú heyrði borgarstjórinn og leú
upp, sá konu sína og veifaði til
hennar og hrópaði:
- Ertu þarna, Kolfinna mín. Ho>
hó og hæ! Viltu koma að vaða?
Kolfinna lyfti brúnum og andar-
tak var hún næstum búin að gleyffl3
að hún var borgarstjórafrú og virt
leikkona í þessari borg og var undir
niðri til í svolítið glens í öllu þessu
sólskini og alls ekki búin að gleym3
því hvað það var gott að vaða ber-
fætt í svalandi vatninu. En það var
komið hádegi, kartöflurnar soðnar
og hún átti eftir að steikja kjötboll'
ur en fátt þótti borgarstjóranum
eins gott og bollurnar hennar Kol'
finnu, steiktar í lauk og með brúnni
sósu, rækilega kryddaðri. PesS
vegna hrópaði hún:
- JÖRUNDUR ! Nú kemur þú»
borgarstjóri eða ekki borgarstjon-
Heyrirðu það? Nú kemur þú ®
þurrt ef þú vilt fá kjötbollur-
STRAX! Eða engar kjötbollur.
Borgarstjórinn stóð snöggvast a
veg kyrr með annan fótinn hatt
lofti, buxnaskálmunum hélt hann
uppi fyrir ofan hné en vatnið na
vel upp fyrir kálfa. Hann horfði a
börnin sem voru hætt ærslum
4 Æskan