Æskan - 01.10.1989, Page 25
dýnur. Ég lagðist á eina og áður en ég
vissi var ég steinsofnuð.
Ég opnaði augun hægt og leit í
kringum mig. Kertið var horfíð og
einnig allt dótið. Á miðju gólfinu sat
lítil telpa, á að giska 6-7 ára. Hún var
með mikið dökkt hár og að mér sýndist
blá augu. Það vantaði aðra framtönnina
°g andlitið var freknótt.
Hún hélt á brúðu sem ég kannaðist
yið. Þegar ég hugsaði mig betur um sá
ég að þetta var brúðan sem ég hafði
fundið fyrir skemmstu.
Litla stúlkan leit upp en virtist ekki
verða vör við mig. Ég sat og horfði á
ituna þar sem hún sat og talaði við
brúðuna sína.
Ég áttaði mig ekki á því hvað hún
var að segja en mér fannst það ekki
skipta máli.
Þegar stúlkan hafði leikið sér svolitla
stund, lagði hún brúðuna frá sér og
stóð upp.
Hún brosti til mín og gekk í áttina að
®ér. Ég vissi hvað hún vildi. Ég seild-
lst ofan í vasann og náði í hálsmenið.
Eg rétti henni það og hún tók við
Því. Hún lagði það um háls brúðunnar
°g hélt áfram að leika sér.
Smám saman lokuðust á mér augun
°S allt rann saman í eitt.
Eg vaknaði upp við að um mig fór
brollur. Það var slokknað á kertinu og
tttyrkur grúfði yfír öllu. Ég fikraði mig
niður stigann og í átt að eldhúsinu.
Einkennilegur draumur hugsaði ég
°g sá telpuna ljóslifandi fyrir mér.
Klukkan var orðin hálf ellefu þegar
aiUma loksins kom. Vegna þess hve við
Vorum báðar orðnar þreyttar ákváðum
Vlð að hittast daginn eftir.
Eegar ég var komin að útidyrahurð-
11101 mundi ég eftir hálsmeninu. Ég
Seildist ofan í vasann til að ná í það.
Mér brá. Hvar var hálsmenið? Ég
^ér í alla vasa en fann það hvergi.
Eg var viss um að ég hafði tekið
Pað. . .
Eg hugsaði ekki meira um það held-
Ur hélt af stað inn í myrkrið.
Vetrarkyrrðin var óbreytt. Snjórinn
Sbtraði og ég varð aftur ein í heimin-
°m.
Eg leit sem snöggvast til baka að
hsinu. Hvort sem það var ímyndun
eða ekki sá ég sem snöggvast litla
stúlku veifa mér út um þakgluggann.
(S^
ar ®an Waut aukaverðlaun í samkeppni Æskunn-
°8 Barnaútvarpsins 1988)
Ásta rsa ga
- eftir Brynju Einarsdóttur.
Þegar við vorum stelpur gerðum við \
allt eins. Við áttum eins kjóla, eins skó \
og vorum stundum báðar skotnar í f
sama stráknum. Þegar við eltumst I
fengum við báðar kettlinga. Þeir voru |
að sjálfsögðu kynntir: Minn hét Herra |
Níels og hennar Fröken Pálína. |
Fljótlega tókst mikil vinátta með |
ketdingunum. Þeir voru saman öllum f
stundum. Þegar ég leit í körfuna hans I
Níelsar sá ég Páhnu þar iðulega líka. Á |
morgnana kom hún og spurði eftir f
honum. Hún kom inn um gluggann og 1
vakti hann. Ef hún fann hann ekki |
mjálmaði hún við þvottahúshurðina j
þar til einhver heyrði og hleypti henni |
inn. Ef Níels var ekki heima dvaldist %
henni ekki. í
Það var gaman að horfa á leiki |
•i
i
I
þeirra, sjá þau kútveltast eins og kett-
lingum einum er lagið, lepja úr sömu
skálinni og leggjast til svefns í sömu
körfunni. Stundum lágu þau í eins
konar faðmlögum. Dýrin hegðuðu sér
eins heima hjá vinkonu minni og oft
furðuðum við okkur á framkomu
þeirra.
Tíminn leið og kisurnar stækkuðu,
urðu kynþroska. Pálína var svohtið
lauslát. Níels auminginn varð ákaflega
niðurdreginn. Að lokum fór hann líka
að stunda næturlífið. En aldrei fann ég
þó aðra en Pálínu í körfunni hjá honum
á morgnana.
Oft er heilsuspillandi að stunda hið
ljúfa líf og Herra Níels fór flatt á því.
Eftir nokkurra daga slark dróst hann
„hundveikur“ heim og lagðist fyrir.
Hann át ekkert, drakk tæplega og fór
ekki langt frá bæli sínu. Pálína stund-
aði hann af nákvæmni. Það furðulega
var að hún vék varla frá sjúkrabeði
hans. Þrátt fyrir ýmsar lækningatil-
raunir elnaði Níelsi sóttin. Og einn
morguninn var hann dáinn. Pálína
hafði verið hjá honum um kvöldið og
fram eftir nóttu en var ekki hjá honum
þegar við komum að honum dauðum.
Níels var jarðaður með viðhöfn í feg-
ursta blómabeði garðsins. Pálína var
ekki viðstödd. Hún sást aldrei framar
hvorki hjá mér né heima hjá sér. Mikið
var leitað án árangurs.
Kannski geta dýr dáið af harmi. Eða
stakk hún bara af og valdi hið ljúfa líf?
(Brynja Einarsdóttir er hjúkrunarforstjóri á
Heilsugæslustöðinni á Akranesi. Hún hefur
stundað ritstörf í allmörg ár og hafa ljóð og sögur
eftir hana birst í ýmsum blöðum)
Æskan 25