Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1991, Blaðsíða 12

Æskan - 01.04.1991, Blaðsíða 12
Eðvarð og st atkvæði! I 9. og 10. tbl. Æskunnar 1990 efndum við til kosninga! Lesend- um var gefið tækifæri til að láta í Ijós skoðun sína á því hverjir ættu að skipa ráðherrasæti í „gamanstjórn og glettilega góðri stjórn Æskunnar og æskunnar!" Raunin varð sú að atkvæði dreifð- ust ákaflega mikið. Til að mynda fékk enginn svo mörg atkvæði sem aðalráðherra að hægt væri að úr- skurða hann sigurvegara. Fjöldi „fólks" fékk nokkur atkvæði. Af þeim má nefna Afa, Mikka mús og Æðsta-Strump! Sama er að segja um íþróttaráð- herra. Knattspyrnu- og handknatt- leiksmenn fengu meiri stuðning en aðrir en enginn bar þar af. Hins vegar var glöggt að Eðvarð Ingólfsson átti mestum vinsældum að fagna sem lestrarráðherra. Hann hlaut 40 af hundraði atkvæða. Þátttakendur í kosningunum voru ekki heldur í neinum vafa um hver væri heppilegasti vasapeningaráð- herrann! Jóakim aðalönd fékk 55% greiddra atkvæða! Einungis einn treysti „pabba" til þeirra starfa. Lík- lega hafa kjósendur fremur verið að hugsa um varðveislu vasapeninga en úthlutun þeirra! 33% þeirra sem atkvæði greiddu vildu að Jóakim gegndi líka embætti „annarra peninga ráðherra". Aðal- öndin hafði einnig sigur í þeirri kosningu! Hljómsveitin Stjórnin situr sam- eiginlega í stól tónlistarráðherra - en hlýtur að biðja Bubba að gegna stööu ráðuneytisstjóra því að hann fylgdi þétt á eftir. Andrés önd var kjörinn foreldra- málaráðherra! Tommi og Jenni og Ragnar Reykás fengu einnig stuðn- ing. Laddi og Ómar Ragnarsson fengu jafnmörg atkvæði sem skemmtiráð- herra. Ekki er að vita nema þeir gegni stöðunni til skiptis af því að þeir eru önnum kafnir menn! Sigurður Sigurjónsson var talinn ágætastur sem fjör- og frækniráð- herra - en „Eygló systir tveggja ára" og páfagaukurinn Pási voru meðal þeirra sem atkvæði fengu! Ýmsir góöir kennarar þóttu geta gegnt embætti málverndarráðherra - einnig Bubba á Brávallagötunni ... Stjórnmálamenn fengu fá at- kvæði. Steingrími Hermannssyni var þó gefið eitt atkvæði sem aðalráð- herra, Þorsteini Pálssyni sem friðar- ráðherra en Davíö Oddssyni sitt at- kvæðið í hvora stöðuna, annarra peninga- og náttúruverndarráð- herra. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, átti stuðning bæði sem barna- og náttúruverndarráð- herra. Við hétum því að tíu kjósendur hlytu verðlaun - þrjár útgáfubækur Æskunnar. Þessir voru heppnir: Þórarinn A. Olafsson, Höskuldsstööum, 560 Varmahlíö. Audur Magnúsdóttir, Garðaflöt 29, 210 Garðabæ. Sandra Steingrímsdóttir, Jörundarholti 222, 300 Akranesi. Daði Örn og Kári Freyr Jenssynir, Holtagerði 22, 200 Kópavogi. Elísabet Anna Vignir, Hvassaleiti 68, 103 Reykjavík. Hulda Jónsdóttir, Skagfirðingabraut 29, 550 Sauðárkróki. Ingi Freyr Sigvarðsson, Borgarsandi 4, 850 Hellu. Ingólfur H. Hermannsson, , Logafold 19, 112 Reykjavík Ingvar Skúlason, Höfða, Vallahreppi, 701 Egilsstaðir. Berglind Einarsdóttir, Fannafold 148, 112 Reykjavík. 1 2 Æskan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.