Æskan - 01.04.1991, Side 28
Þið þekkið sjálfsagt Prúðuleikar-
ana, vini okkar úr sjónvarpinu.
Þættir með þessum verum, sem
eru hver og ein með sitt útlit og
einkenni, voru sýndir vikulega.
Fossi er til dæmis björn sem
alltaf er að segja brandara. Eng-
inn hlær að þeim nema Fossi
sjálfur.
Gunnsi hefur bogið nef og
ráma rödd. Dýri er með prakk-
arastrik - nei, það er of langt að
telja þau öll upp sem þarna
koma við sögu.
Þau sem voru í aðalhlutverk-
unum og voru oftast á skjánum
voru Kermit froskur og Svínka.
Svínka er feitlagin, bleik að lit
og með svínstrýni. En hún er
ólík svíni að því leyti að hún er
mjög fín með sig, klæðist bleik-
um síðum kjólum og hefur ljóst
hár.
Kermit er grænn að lit með
froskahöfuð og langa froskafæt-
ur. Hann er stjórnandi þáttanna
og kynnir og hefur mikið að gera
við að halda öllu í röð og reglu.
Það mæðir líka á honum að
Svínka eltir hann sífellt. Hún er
svo skotin í honum að til vand-
ræða horfir fyrir vesalings frosk-
inn. Hann reynir að forðast
Svínku eins og hann getur en
hún er ætíð að tjá honum ást
sína og láta hann taka eftir sér.
Nú ætla ég að segja ykltur frá
tveimur systkinum sem voru
fjögurra og tveggja ára þegar sag-
an af þeim gerðist. Systkinin
hétu auðvitað hvort sínu nafni
en hér verða þau nefnd Systir og
Bróðir því að þau kölluðu hvort
annað þessum nöfnum þegar
þau voru lítil.
Bróðirinn var tveggja ára og
gat reyndar ekki talað mikið en
allir á heimilinu skildu hann þó.
Systir var duglegri að tala og
gera ýmislegt enda fannst henni
hún vera töluvert stór og kunna
meira en bróðir hennar. Þessi
systkin voru ósköp venjulegir
krakkar, svona hæfilega óþeklc
stundum og rifust við og við og
voru með læti svo að mamma
þurfti að stilla til friðar. Eitt var
þó sem fékk systkinin til að vera
til friðs. Þegar Prúðuleikararnir
voru sýndir í sjónvarpinu sátu
þau kyrr og hljóð og horfðu og
hlustuðu.
Þau vissu ekkert skemmti-
legra á skjánum en þessa góð-
vini. Þetta voru sannkallaðir
vinir þeirra, alltaf sniðugir og sí-
fellt með ný uppátæki.
En dag einn var tilkynnt í
sjónvarpinu að nú yrði hlé á út-
sendingum á Prúðuleikurunum.
Þeir yrðu sem sé ekki sjáanlegir
í bili. Það var mikil sorg hjá
systkinunum. Bróðir grét en
Systir reyndi að stilla sig. Nýr
28 Æskan