Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1991, Page 47

Æskan - 01.04.1991, Page 47
En utan vallar? Já, mjög. Til dæmis hringdi Sturla á hverjum degi í úrslita- keppninni til að hughreysta okkur og gefa góð ráð. Áttu gæludýr? Við áttum fallegan hund; reyndar höfum við átt þrjá. Ég gæti vel hugsað mér að eignast hund aftur. Hvaða matur finnst þár bestur? Islenskt lambakjöt matbúið á alla vegu, frá kjötsúpubitum til lamba- lunda, - og humar. Kanntu að matbúa? Já, ég held bara að ég sé ágætis kokkur. Svo segja vinir mínir og unnusta að minnsta kosti. Hvað heitir hún? Helga Lísa Einarsdóttir. Hvar hefur þér þótt best að eiga heima? Ég hef alltaf átt heima í Njarðvík og líður vel hér. Hvert er fallegasta svæði sem þú hefur séð? Washington-fylki á vesturströnd Bandaríkjanna við landamæri Kanada. Til hvaða lands langar þig mest að ferðast? Af hverju? Bara eitthvað suður í sól. Ég hef aldrei ferðast til sólarlanda þó að ég sé búinn að fara í meira en tutt- ugu ferðir til útlanda. í hvaða skólum hefur þú verið? Ætl- ar þú að læra meira? Grunnskóla Njarðvíkur og Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. - Já, ég hef hugsað mér að læra meira, jafnvel utanlands. Hver fannst þér skemmtilegasta námsgreinin? Það væri lygi ef ég segði ekki leikfimi! Hvað starfar þú? Ég er íþróttaleiðbeinandi við Grunnskóla Njarðvíkur. Hver er eftirlætistónlistarmaður þinn? En hljómsveit? En leikari/leik- kona? David Bowie og Magnús Sig- urðsson. - Vonlausa tríóið. - '91 á Stöðinni, allt liðið með tölu. Áttu eftirlætismálshátt? Skemmtilegasta námsgreinin? ■ Þad væri lygi ef ég segði ekki leikfimi! Ljósmynd: Brynjar Gauti mSSsm ÍSíSÍs! '.'íSAfeír Q Það eru ekki alltaf jólin. Hvað ráðleggur þú ungum íþrótta- mönnum? Að hafa trú á sjálfum sér og æfa vel meó hugann við efnið. Æskan 51

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.