Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1991, Side 48

Æskan - 01.04.1991, Side 48
Fátækur flakkari eftir Auði Drynjólfsdóttur 10 óra. Hann gengur á alla bæi, hræddur um að allir hlæi. Það er vetur; ver honum ekki liðið getur. Hann er fölur með bauga en enginn gefur honum auga. Hann er í sumarfötum, berfættur á frosnum götum, kaldur og dofinn, illa sofinn, engan mat hefur fengið, getur varla gengið. Hann er svangur og veikur, vindurinn kvöl hans eykur, víð eru á honum fötin og mörg eru götin. Enn þá úti gengur aðeins sjö ára drengur, hefur gengið í marga daga svangur með sártóman maga. En allt í einu sér hann skýli. Hver á heima í þessu býli? Hann sér gamlan mann, gráhærður er hann. Kvöldið líður, maðurinn er hlíður, tekur ekki til orða en gefur honum að borða, leyfir honurn að sofa,- loks hefur flakkarinn fundið hlýjan kofa. Drengurinn sem logði sig í lífshæftu eftir Eydísi Dirtu Jónsdóttur 9 óra. Bjartur Bjarnason er þrettán ára drengur. Hann missti rnóður sína er hann fæddist. Hann á heima hjá pabba sín- um. Þeir eru bara tveir. Það var vetur. Eina nóttina snjóaði mikið. Bjartur kom elcki í skólann. Þannig var það í þrjá daga. Einn daginn sagðist Stebbi hafa séð Bjart fara til Dýrafjarðar til að ná í lyf fyrir pabba sinn. Áhyggjusvipur var um allan skólann. Skólstjórinn sagði að skriða gæti fallið. Bjartur var á leiðinni heim. Klukkan var hálfníu. Allt í einu heyrðist hvellur og Bjartur þeyttist út í buskann. Þegar hann rankaði við sér var allt hvítt. Þá mundi hann snjóflóðið. Hann reyndi að róta snjónum frá með berum höndum. Neglurnar rifnuðu og snjórinn varð blóðugur. Loks tókst honum að komast upp úr snjónum. Hann var eklci mjög djúpt niðri í. Honum var fagnað mjög mikið er hann kom heim. 52 Æskan

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.