Æskan - 01.10.1991, Qupperneq 23
að lyftast og urðu að stórum fjöllum.
„Allt í lagi," sagði ég. „Ég skal
reyna við þrautina. Hver er hún?"
„Þú átt að hoppa á einum fæti í 10
sekúndur."
Ég gerði það og fékk að fara.
Hindrunarlaust gekk ég lengra og
lengra inn í fjallið. Fram undan var
upplýst borð, sjálfsagt úr skíragulli. í
kringum það voru lítil tré. Á miðju
borðinu var krukka. Það var krukk-
an sem ég átti að sækja. Ég gekk nær.
Allt í einu stóð norn fyrir framan
mig. Mér brá.
„Þetta er síðasta þrautin og sú erf-
iðasta. Ég veit alveg af hverju þú
komst hingað. Til að ná krukkunni,
er það ekki?"
„fú, jú, það er rétt," svaraði ég
norninni sem var með græna bólu á
nefinu og í svörtum flauelsjakka.
„Þú átt að tala um þögnina í 30
sekúndur og þér má ekki fatast."
Ég byrjaði:
„Þögnin, þögnin ..."
„fá, svona byrjaðu nú!"
„Ég var byrjuð. Þú truflaðir. Nú
byrja ég: Þögnin, þögnin er eitthvað
það ..."
„Ef þetta á að vera mjög hátíðlegt
hjá þér þá nenni ég ekki að hlusta,"
sagði hún og sneri sér undan.
„Ef þú grípur einu sinni enn fram
í fyrir mér þá má ég taka krukkuna.
Samþykkt?"
„fá, ég lofa að þegja og segja ekki
neitt."
„Það var eins gott," sagði ég.
„Þögnin er eitthvað það dýrmætasta
sem við eigum því að ef ekki væri
þögn kæmust aðrir ekki að. Allir
myndu tala í sífellu og enginn hlusta.
Þögn er lílca til að aðskilja hljóð ..."
Aftur greip hún fram í.
„Nóg, nóg! Ég nenni ekki að hlusta
á meira."
Hún rétti mér krukkuna. Allt í
einu sat ég á sama bekk og þegar ég
hitti Indiana Jones. Ég leit á klukk-
una. Hún var hálffjögur. Krukkan var
í kjöltu minni og þá rnundi ég hvað
ég átti að gera. Ég opnaði krukkuna
og úr henni fauk sandur sem átti að
stöðva mengunina.
Þessum degi gleymi ég aldrei svo
lengi sem ég lifi. Núna er alls engin
hætta á mengun í mínum heimi.
(Höfundur hlaut aukaverdlaun i smásagna-
keppni Æskunnar og Barnaritstjórnar Rík-
isútvarpsins 1990.)
- Munid skilafrest í smásagna-
keppninni 1991: 1. desember.
Aðalverdlaun eru ferð til Parísar.
Póstfcmg:
Æskan,
pósthólf 523,
121 Reykjavik.
Kæru safnarar!
Ég safna öllu meö Sinead O’Connor, lím-
miðum [ekki haframjöls- eöa auglýsinga-
miöum eöa þeim sem birst hafa í Æsk-
unni), bréfsefnum og munnþurrkum. í stað-
inn læt ég munnþurrkur, límmiöa og bréfs-
efni.
Tinna Siguröardóttir,
Odda, 551 Hella.
Safnarar!
Ég safna alls konar límmiöum, bréfsefni,
öllu meö Stjórninni og New Kids. í staðinn
get ég látiö veggmyndir af Michael Jackson,
Söndru, Elvis Presley, A-Ha, Wham, Rob
Lowe, Bruce Springsteen, Cyndi Lauper,
Oen Harrow, Ouran Duran, Michael J.
Fox, Eurythmics o.fl. og barmmerki meö
Eurythmics og Michael Jackson.
Guörún Lára Róbertsdóttir,
Engihlíö 22, 355 Ólafsvík.
Halló safnarar!
Ég safna erlendum frímerkjum og spil-
um og í staöinn get ég látið munnþurrk-
ur, límmiða, spil, íslensk frímerki, gljámynd-
ir og bréfsefni.
Björk Guðbjörnsdóttir,
Magnússkógum II,
371 Búöardal.
Kæru safnarar!
Ég safna gljámyndum, bréfsefni og alls
konar veggmyndum meö Skid Row, Poi-
son, og Quireboys. í staðinn get ég látið
margar veggmyndir.
Drífa Aöalsteinsdóttir,
Funafold 13, 112 Reykjavík.
Safnarar!
Ég vil fá úrklippur meö efni um Stjórn-
ina. í staöinn get ég látið límmiða og bréfs-
efni.
Ingveldur Þórey Eyjólfsdóttir,
Eystri Pétursey,
871 Vík í Mýrdal.
Æ S K A N 2 3