Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1991, Blaðsíða 26

Æskan - 01.10.1991, Blaðsíða 26
Hvab gerbir þú í sumar? skeib. Svo vorum við strákarnir stundum a& dorga niöur við höfn. Einn daginn var mokafli hjá okkur; við fengum 20-30 fiska. Þetta eru aðallega smáseibi sem veiðast hérna. Nei, ég fór ekkert á skak í sumar. Þegar afi minn var eitt sinn trillukarl fór ég oft meb honum í róðra. Við veiddum helst í nágrenni Papeyj- ar og fengum marga þorska og Krakkará landsbyggöinni svara Elín Elísabet meö Hugrúnu Heibu, systur sinni, en hún fékkst alls ekki til oð horfa framan í myndavélina Elín Elísabet Hreggvibsdóttir 10 ára, Höfn í Hornafirbi: Eg var að passa systur mína, Hugrúnu Heiðu, í allt sumar. Það gekk vel því að hún var oftast mjög þæg við mig. Ég fékk 5000 krónur í kaup á mánuði og lagði það mestallt inn á bankabók. Ég er ekki enn búin að ákveða í hvað ég eyði því. Ég fór oft í útreiðartúra. Ég á helming í hesti á móti mömmu og pabba. Hann heitir Muggur og er bæði fallegur og góbur. Auk þess að hafa áhuga á hesta- mennsku þykir mér gaman að synda og passa börn. Ég hef átt heima á Höfn frá því að ég var tveggja ára og lík- ar það mjög vel. Bestu vinkon- ur mínar heita Þorbjörg og Rakel. Ég á tvö yngri systkini, Önnu Lilju 8 ára og svo Hugrúnu Heiðu. Ég býst ekki vib að ég búi á Höfn í framtíðinni. Mig langar miklu frekar að eiga heima á Pat- reksfirði. Ég veit ekki af hverju. Bara! Gunnar Sigurbsson 12 ára, Djúpavogi: Af öllu því sem ég gerði í sumar stendur aðeins eitt upp úr: Sigl- ing með flutningaskipinu Hvíta- nesi til Portúgals, Spánar og Frakklands. Ég var mánub í túrn- um. Frændi minn, skipstjórinn á skipinu, baub mér með. Ég var dálítið sjóveikur fyrstu dagana en það rjátlaðist fljótt af mér. Ég hafði aldrei áður komið til út- landa. Af þessum þrem löndum, sem vib sigldum til, fannst mér skemmtilegast að koma til Portú- gals. Við stönsuðum þar í fjóra daga og lágum á ströndinni helming tímans. Ég gæti vel hugsað mér að fara í aðra slíka siglingu síðar. Hérna á Djúpavogi hafbi ég nóg fyrir stafni í sumar eins og aðrir krakkar á mínu reki. Ég fór oft í sund og sótti sundnám- G unnar á fáki sínum ufsa. Svo fór ég líka oft með honum að veiða lunda í eynni. Mér þykir sá fugl herramanns- matur! Unglingar, 12 ára og eldri, eiga nokkuð gott með að fá vinnu á Djúpavogi á sumrin. Margir 15 og 16 ára krakkar gera að fiskinum sem togarinn Sunnu- tindur kemur með að landi. Yngri krakkar starfa stundum í frysti- húsinu. - í framtíðinni get ég vel hugsab mér að ráða mig á togar- ann. Mig langar þó ekki til ab verða skipstjóri eða stýrimaður heldur aðeins venjulegur háseti. Eygló Svava Kristjánsdóttir 14 ára, Vestmannaeyjum: Ég vann ífiski hjá Hraðinu (Hrað- frystistöðinni) í sumarfrá kl. 7 til 5 alla virka daga - og fékk 209 krónur á tímann. Þab var dálítið erfitt að þurfa að vakna svona snemma en þab hafðist með hörkunni. Það var frekar auðvelt fyrir minn aldurshóp að fá vinnu 2 6 Æ S K A N ífiskvinnslustöðvunum. Vib átt- um ekki kost á því að fara í ung- lingavinnuna; vorum orðin of gömul fyrir hana. í ágúst fór ég til Benidormar á Spáni með mömmu og pabba og þá kom sér vel að hafa unn- ið mikiö í sumar. Ég notabi kaup- ib mitt til að kaupa gjaldeyri. Það var mjög gaman í ferðinni. Ég æfbi knattspyrnu með 3. flokki Týs og lék í framlínunni. Vib fórum stundum upp á land til að keppa. Stelpurnar í Eyjum hafa ekki síður áhuga á fótbolta en strákarnir. Við erum meb miklu betra kvennalið en t.d. Þórarar. Þær steinliggja alltaf fyr- ir okkur. Ég get nefnt það til gamans í lokin að ég fór svo að segja dag- lega í sumar í gönguferð með tíkina Tinnu sem frænka mín á. (Þib sjáið hana á myndinni!) Hún Eygló Svava og tíkin Tinna þarf ab hreyfa sig mikið, greyið. Ég átti eitt sinn hund en hann veiktist og það þurfti því að svæfa hann. Þab var mikil sorg að missa hann. Ég get ekki hugs- að mér ab eignast annan hund og verba fyrir sömu reynslu aftur. Marteinn Tryggvi Sigurólason 13 ára, Akureyri: Ég bar út Morgunblaðið í einn og hálfan mánuð. Þetta voru 45 blöð alla daga nema sunnudaga en þá urbu þau 50. Ég fékk um 8000 krónur fyrir mánubinn þegar upp var staðið. Ég bar út í tveim áföngum til ab blaðburð- arpokarniryröu ekki mjög þung- Marteinn Tryggvi ir. Ég er núna hættur í þessu starfi því að útburðartíminn rekst á stundatöfluna mína í skólanum. Ég gekk í skátahreyfinguna í sumar og fór í útilegur meb deildinni minni, Haförnum. Það er gaman að starfa með skátun- um. Farið er í útilegur, a.m.k. einu sinni í mánuði á sumrin. Þá er farið í ýmsa leiki, t.d. ratleiki og þrautakeppni, og svo eru haldnar skemmtilegar kvöldvök- ur. Vib erum svona 11 -15 í Haf- örnum. Skátar tíu ára og yngri eru í sér flokki. Aðaláhugamál mitt er að setja saman lítil plastmódel en því miður gengur það oftast illa hjá mér. Ég hef verið að setja sam- an orrustuflugvélar og flugmóð- urskip en sjaldan getað lokið verkinu. Það er nefnilega erfitt að koma þessu saman. Svo hafa smákrakkar stundum verið ab skemma módelsmíðarnar fyrir mér. Kannski ég snúi mér að ein- hverjum nýjum áhugamálum í vetur. gengur laust nefnist ný unglingabók eftir Hrafnhildi Val- garðsdóttur - höfund verðlaunasögunnar Leðurjakkar og spariskór - og framhalds hennar, Unglingar í frumskógi. Hrafnhildur hefur einnig samið hinar vinsælu barnabækur, Kóngar í ríki sínu - og Kóngar í ríki sínu og prinsessan Petra. í 10. tbl. Æskunnar verður birtur kafli úr bókinni. En hér er rétt að gefa dálitla hugmynd um efni hennar: Kvikmynd verður tekin í þorpinu! Þar sem áður ríkti friðsæld er nú allt í uppnámi. Alla langar til að taka þátt í ævintýrinu. Líka félagana Gústa, Jónas og Þröst sem voru að ljúlca 10. beklc. En eitthvað dularfullt er á seyði. „Nornin" kallar Grjóna til sín: „Sérðu þetta," sagði hún hvasst og benti á spilin á borðinu. „Líttu inn í lcúluna, skoðaðu stöðu spilanna, sjáðu hvað þú orsakar með lcomu þinni hingað, þú hroðalega dýr." Rós, sem er fimmtán ára, á að leika aðal- hlutverk. Gústi verður heillaður af henni: „Hann fann hvernig hjartað barðist um, hvernig það tróð sér upp í hálsinn á honum, fann hvað hann eldroðnaði og varð allur sveittur. Og þegar hann var lcominn alveg að Rós höfðu hnén á honum breyst í bómull." Rætist spádómur nornarinnarl Koma álfar í veg fyrir töku myndarinnari Hvaða vera er á ferlii Er eitraó fyrir dýr - og menni Spurningunum er svarað í spennandi frásögn í bráðskemmtilegri bók. Æ S K A N 2 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.