Æskan - 01.10.1991, Side 42
Sigurvecjararnir í skólaþríþraut
FRI og Æskunnar, þau:
Ellen Dröfn Björnsdóttir 12 ára frá Laugarbakka,
Dabi Sigurþórsson 12 ára frá Stykkishólmi,
Jóhanna Ósk Jensdóttir 13 ára úr Kópavogi,
Höröur Már Gestsson 13 ára úr Mosfellsbœ,
Aöalheibur Auöur Bjarnadóttir 14 ára frá Hafnarfiröi - og
Daníel Pétursson 14 ára frá Hvammstanga
fóru í keppnis- og skemmtiferö til
Helsingjaborgar í Svíþjóö 10.-14.
júlí sl. Feröasagan fer hér á eftir.
Viö flugum til Kaupmannahafn-
ar á miövikudegi, geymdum far-
angurinn á brautarstööinni og
skelltum okkur íTívolí. Krakkarnir
keyptu sér kort sem gilti ótakmark-
aö í öll tæki sem voru vélknúin.
Þeir fóru því í alla rússíbanana
(hraöbrautirnar) og strákarnirfóru
sex sinnum í röö í eina! Voru sum-
ir orönir ansi ringlaöir eftir allar
þessar dýfur og sveiflur.
Mac Donalds hamborgararnir
á Strikinu voru ekkert stærri eöa
betri en hamborgararnir okkar hér
heima þó að foreldrar okkar hefðu
lýst þeim fjálglega. Og ekki gekk
vel að drekka mjólkurhristing meö
tvöföldum „big Mar", oj!
Til Helsingjaborgar komum viö
seint um kvöldið eftir rútuferö og
siglingu yfir Eyrarsund. Vésteinn
Hafsteinsson, íslandsmethafi í
kringlukasti, og Anna Östenberg
sambýliskona hans lánuöu okkur
íbúðina sína og þar sváfu allir í
einni flatsæng í stofunni.
Á fimmtudeginum var völlur-
inn skoðaður og æft lítið eitt. Síö-
an fóru allir á ströndina í góðu
veöri og syntu í sjónum. Eftir það
litum við aðeins í bæinn og versl-
uöum. Stelpurnar keyptu föt á út-
sölunum en strákarnir voru hrifn-
astir af alls konar skrípadóti.
Alvaran tók síðan við á föstu-
deginum, Eyrarsundsleikarnir sjálf-
ir. Þarna voru 2500 þátttakendur
frá 12 löndum. Þetta mót á sér 25
ára hefð og er eitt stærsta og vin-
sælasta frjálsíþróttamótið sem
haldið er í Svíþjóð. Keppt er í ald-
ursflokkum frá 10 ára og yngri upp
í 22 ára, einnig í nokkrum greinum
karla og kvenna. (Vésteinn sigraði
t.d. í kringlukasti karla) Þátttaka
íslendinga vakti mikla athygli og
vorum viö sérstaklega boðin vel-
komin.
Krakkarnir stóðu sig vel í keppn-
inni. Yfirleitt voru 70-100 keppend-
ur í hverri grein í þeirra flokkum.
Undankeppni var í flestum grein-
um árdegis og svo úrslit síðdegis.
4 6 Æ S K A N