Æskan - 01.07.1992, Blaðsíða 20
HEILÁHÚFI W®*
BARNAGÆSLA ER ÁBYRGDARSTARF
í sumarfóru margir krakk-
ar víðs vegar á landinu á nám-
skeið hjá Rauðakrossinum og
lærðu um barnagæslu. Nám-
skeiðin eru fyrir krakka á aldr-
inum 11-14 ára. Þegar nám-
skeiðinu lýkur fá þeir skírteini
og margir foreldrar vilja nú
helst ráða krakka, sem hafa
sóft barnfóstrunámskeiðin, til
að gæta barna sinna.
Oessi námskeið eru gagn-
leg en ekki síðurskemmti-
leg. Anna, sem er 13 ára,
fór á námskeið í vor. Við báðum
hana að segja frá því.
„Við komum í fjögur skipti og
vorum í þrjá klukkutíma í hvert skipti.
Við fengum vinnubók með verkefn-
um sem við gerðum í tímunum. Okk-
ur var kennt um þroska barna,
hvernig á að sinna þeim og koma
fram við þau. Það vartalað um leiki,
á hverju börn geta meitt sig og hvað
á að gera ef þau meiða sig. Við feng-
um að æfa okkur að baða börn og
klæða. Við notuðum brúðu sem er
lík litlu barni og okkur var kennt
hvernig á að gefa pela og mata lítil
börn.“
- í vinnubókinni ertalað um rétt-
indi og skyldur barnfóstrunnar. Hvað
var fjallað um þar?
„Þegar við ætlum að fara að gæta
barna er best að ræða við foreldra
barnsins um ýmislegt sem tengist
barnagæslunni. Barnfóstraát.d. að
gera samning um vinnutíma og laun
svo að hún viti að hverju hún geng-
ur. Foreldrar eiga alltaf að skilja eft-
ir upplýsingar um hvar hægt er að
ná í þau. Það þarf að vera skýrt til
hvers er ætlast af barnfóstrunni svo
að ekki komi upp leiðindi og mis-
skilningur. Barnfóstrur eiga að sýna
almenna kurteisi, vera þrifalegar og
þær geta ekki leyft sér, eins og mað-
ur gerir stundum heima hjá sér, að
segja: „Þessu nenni ég ekki."
Foreldrarnir þurfa að láta vita ef
þeir vilja að eitthvað sérstakt sé gert
og ef þeir vilja ekki að farið sé með
barnið á einhverja staði. Það geta
verið staðir eins og bryggjur, sjopp-
ur og miklar umferðargötur. Það er
líka lögð áhersla á að komið sé fram
við barnið eins og vin og að við höf-
um í huga að börn læra það sem fyr-
ir þeim er haft.“
Við þökkum Önnu fyrir.
Þess má geta að Rauði krossinn
hefur haldið barnfóstrunámskeið á
hverju ári mörg undanfarin ár og um
eða yfir 500 krakkar fá skírteini á
hverju ári. Að lokum birtum við upp-
lýsingar úr bæklingi sem afhentur er
á námskeiðinu. Hann heitir „Barna-
gæsla er ábyrgðarstarf".
(Umsjón: Anna María og Sigrún)
RÁÐLEGGINGAR
TIL BARNFÓSTRU
1. Mættu alltaf á réttum tíma.
2. Gættu þess að fá upplýsingar um eftirfarandi:
a) notkun eldavélar, örbylgjuofns eða
annarra tækja sem þú átt að nota
b) hvenær barnið á að fara að sofa
d) hvernig öryggislæsingará rúmi,
barnastól og öðrum útbúnaði eru
e) hvað þú átt að gera ef barnið kastar upp eða
grætur stanslaust
f) hvar bleyjur, föt og rúmföt eru geymd
g) hvar eftirlætis leikföng og bækur barnsins eru.
3. Fáðu upplýsingar um hvort barnið þurfi
einhverja sérstaka meðhöndlun.
4. Stilltu ekki útvarp, sjónvarp eða hljómflutningstæki
það hátt að þú heyrir ekki ef barnið kallar eða grætur.
5. Líttu til barnsins við og við jafnvel þó að það sé
sofandi til þess að kanna hvort allt sé í lagi.
6. Bjóddu vinum þínum eða vinkonum aldrei til
þín nema með leyfi foreldra.
7. Fáðu upplýsingar um hvort von sé á einhverjum.
Hleyptu aldrei ókunnugum inn.
8. Mikilvægt er að vita nokkurn veginn hvenær von
eráforeldrunum heim.
2 0 Æ S K A N