Æskan - 01.07.1992, Qupperneq 23
NY TEIKNIMYND MEÐISLENSKU TflLI
PRINSESSAN OG
DURTARNIR
FRUMSÝND í SEPTEMBER
/ lok september mun kvikmyndahúsið Regnboginn frumsýna nýja
teiknimynd með íslensku tali. Hún hefur hlotið nafnið Prinsessan og
Durtarnir. Myndin er byggð á þekktu ævintýri eftir George McDonald
og varþað fyrstgefið útárið 1871. ÞórhallurSigurðsson erleikstjóri
og meðal leikara má nefna Sigurð Sigurjónsson, Örn Árnason, Guð-
rúnu Þ. Stephensen, Kristbjörgu Kjeld, ArnarJónsson og Pálma Gests-
son. Ólafur Haukur Símonarson þýddi.
Prinsessan og Durtarnir er æv-
intýri um dularfulla atburði og sak-
lausa rómantík. írena er ung
prinsessa sem hefur alla ævi sína átt
heima innan veggja kastala þar sem
ekkert slæmt gat komið fyrir hana.
Hana grunar ekki að skammt frá
kastalanum, í iðrum jarðar, eigi
vondar skepnur, Durtarnir, bústað
sinn. frena veit satt að segja
ekki neitt um veröldina um-
hverfis kastalann.
Þegar Durtarnir ákveða
að ráðast upp á yfirborð jarð-
ar, hertaka konungdæmið og
gifta prinsessuna hinum mis-
kunnarlausa Froskavör virð-
ist hún varnarlaus. En henni
er komið til hjálpar:
Lang-amma hennar
spinnur henni töfraþráð í
hrörlegum turni kastalans.
Kalli, sonur verkamanns í ná-
grenninu, veit að Durtarnir
hafa veikleika. Þeir skelfast
tónlist! Og þó að höfuð þeirra
sé hart eins og steinn þola þeir ekki
að trampað sé á fótum þeirra. Þá
öskra þeir af sársauka!
Með hjálp þessara vina sinna
tekst frenu að kanna undirheima
Durtanna, komast að hinum illu á-
formum þeirra og að lokum kljást
við þá innan veggja kastalans.
LITASAMKEPPNI
REGNBOGANS, FLUGLEIÐA,
HARDROCKCAFÉ OG ÆSKUNNAR
LITADU PRINSESSUNA
OG FREISTAÐU GÆFUNNAR
/ ✓
\ '
1 /
I /
/ / '\
\
A næstu síðu er mynd af prinsessunni og Durt-
unum. Þú skalt lita hana eins og þér finnst hún fal-
legust og senda barnablaðinu Æskunni. Veittur er
fjöldi verðlauna fyrir bestu myndirnar að mati dóm-
nefndar.
1. Flug til Akureyrar fyrir alla fjölskylduna
2.-6. Matur fyrir fjölskylduna á „Hard Rock Café“að verðmæti 10.000 kr.
6.-13. Þrjár bækur að eigin vali frá Bókaútgáfu Æskunnar.
13.-20. Bókin um Fugfastríðið í
Lumbruskógi.
21.-50. Aðgöngumiði á Prinsessuna
og Durtana.
Lita má myndina með vax-, vatns- eða þekju-
litum - eða á hvern þann hátt sem þér dettur í hug.
Dómnefnd mun dæma myndir eftir vandvirkni,
frumleika og litavali.
Skilafrestur ertil
15. desember 1992.
Póstfangið er:
Barnablaðið Æskan
pósthólf 523,
121 Reykjavík.
Nafn
Aldur
Heimili
Póststöð
Myndin er á næstu síbu
Æ S K A N 2 3