Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1992, Page 26

Æskan - 01.07.1992, Page 26
AÐDÁANDI MARGRÉTAR Elsku Æskupóstur! Mér finnst afar gaman að leika á sviði fyrir fjölda fólks. Eftirlætis- leikkona mín er Margrét Kristín Pétursdóttir. Hún lék aðalhlutverk- ið í Söngvaseið og nú er hún að leika vinnukonuna Línu í leikritinu Emil í Kattholti. Viljið þið biðja hana að svara aðdáendum og birta góðar mynd- ir af henni? Hún leikur og syngur afskaplega vel. Ég fór þrisvar á Söngvaseið og er búin að sjá Emil í Kattholti tvisvar. Ég býst við að fara aftur í haust að sjá það leik- rit. Leikhúsaðdáandinn. Svar: Við höfum orðið við beiðni þinni og annarra aðdáenda Mar- grétar Kristínar - og hún við ósk okkar. Sjá bls. 46. TÖLVUNÁMSKEIÐ - OG HRAFNHILDUR Kæra Æska! Hér eru nokkrar spurningar: 1. Eru einhvern tíma haldin tölvunámskeið í strjálbýli - fyrir 13- 14 ára krakka. 2. Hvað hafa komið út margar bækur eftir Hrafnhildi Valgarðsdótt- ur? 3. Er ekki hægt að hafa fleiri viðtöl í Æskunni? Róló. Svör: 1. Tölvuskóli Islands hefur haldið námskeið fyrir börn og unglinga. í Reykjavik en ekki utan borgarinnar. Skólinn er hins vegar reiðubúinn til að standa fyrir námskeiðum ann- ars staðar í samvinnu við heima- menn. Þá er samkomulagsatriði hvað kennt verður og hve lengi námskeið verða. Tölvuskóli Reykjavíkur hefur efnt til námskeiða allvíða um land - en þau eru fyrir 16 ára og eldri. Námskeiðin eru auglýst á þeim stöðum þar sem þau eru haldin. Heimamenn í ýmsum kaup- stöðum eru að athuga mögu- leika á að efna til námskeiða og ekki er ólíklegt að við getum sagt frá því síðar. 2. Barnabækur: Kóngar í ríki sínu - Kóngar í ríki sínu og prinsessan Petra. Unglingabækur: Leðurjakk- ar og spariskór - Púsluspil - Unglingar í frumskógi - Dýrið gengur laust (Æskan gefur út bók eftir Hrafnhildi íhaust...) Smásagnasafn: I rangri ver- öld. 3. Við reynum að hafa sitt lít- ið afhverju - og höfum talið við- töl hæfilega mörg... GEFÐU ÞIG FRAM ... Góöa Æska! Ég lýsi eftir pennavinkonu minni. Hún sendi mér bréf en skrif- aði hvorki nafn né heimilisfang undir það. Hún skrifaði „bless“ lóð- rétt aftan á blaðið - með stórum stöfum. Ég vona að hún lesi þetta. Nanna Karen Alfreðsdóttir, Háleitisbraut 153, 108 Reykjavík. HLJÓMSVEIT Kæra Æska! Þökk fyrir gott blað. Ég ætla að stofna hljómsveit en mig vantar krakka í hana. Þess vegna bið ég lagvísa hljómlistar- krakka í Reykjavík að hafa sam- band við mig í síma 674083. Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, Rafstöðvarvegi 6, 110 Reykjavík. BARNAGÆSLA Kæri Æskupóstur! Fyrst vil ég þakka gott blað. Getur þú þirt fróðleiksmola um barnagæslu, eldamennsku og slíkt? Ég sendi þér líka gátur: 1. Hver er það sem fer alltaf umhverfis tréð en verður þó aldrei þreyttur? 2. Dís ein sat í tré í rauðri kápu. Hjarta hennar var úr steini. Hver var hún? 3. Hver hefur höfuð en engin augu eða eyru? Heiðdís Ragnarsdóttir, Ránargötu 9,101 Reykjavík. Svar: íþættinum Heil á húfi, bls. 20, er fjallað um námskeið í barna- gæslu. Svör við gátunum eru á bls. 62. UM KETTI Kæri Æskupóstur! Ég ætla að spyrja þig þessa: 1. Dreymir ketti? 2. Hafa kettir sjötta skilningarvitið? 3. Er nauðsynlegt að baða ketti? Magga. Svör: 1. Það þykir mjög líklegt. Ýmsar hreyfingar þeirra og hljóð upp úr svefni benda til þess. Svo er og um ýmis önnur dýr. 2. Heyrn og lyktarskyn dýra er mun næmara en manna. Þau geta því skynjað ýmislegt sem við megnum ekki. Væntanlega er af þessari ástæðu talað um að sum dýr hafi „sjötta skilning- arvitið“ (Eitthvað meira en sjón, heyrn, ilman, bragð og tilfinn- ingu). 3. Kettir sjá yfirleitt nægilega vel um að þrifa sig sjálfir - en forðast vatn. En þau kattakyn sem eru hreinræktuð og mjög loðin (t.a.m. persakettir) þarfn- ast sérstakrar feldhirðingar. Þau þarf að baða. NÝJU KRAKKARNIR Æskupóstur! Við erum tveir ákafir aðdáend- ur Nýju krakkanna. Við ætlum að stofna klúbb og biðjum því alla að- dáendur hljómsveitarinnar að senda okkur bréf með upplýsingum um nöfn sín og heimilisföng. Þá verða þeir félagar í klúbbnum. Það eru meiri líkur á að hijóm- sveitin komi hingað ef hún fær að vita af íslenskum aðdáendaklúbbi sínum. Við skrifum öll nöfnin í bók og sendum aðdáendaklúbbi þeirra. Þið megið gjarna safna undir- skriftum aðdáenda og senda okk- ur. Við höldum áfram bréfaskrift- um til allra þeirra sem senda okk- ur upplýsingar. Brynja og Freyja, Lyngheiði 6, 810 Hveragerði. Kæra Æska! Mig langar til að biðja krakka um að senda mér texta með vin- sælum lögum Nýju krakkanna: Ég mun elska þig að eilífu (I ‘II Be Lov- ing You for Ever) - Ég þarfnast þín (I Need You) - Ég vildi að þú elskaðir mig (I Wanna Be Loved by You) - Komdu vel fram við mig (Treat Me Right). Ásta Soffía Lúðvíksdóttir, Gerðavölium 48 b, 240 Grindavík. 2 6 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.