Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1992, Qupperneq 27

Æskan - 01.07.1992, Qupperneq 27
ÁSTRALSKIR LEIKARAR Kæra Æska! Pökk fyrir gott blað. Ég er mikill aðdáandi Kylie Minogue og langar til að fá vegg- mynd af henni. Nokkrar spurningar: Hvert er heimilisfang aðdá- endaklúbbs Kylie? Eru Jason Donovan og hún kærustupar? Getið þið birt veggmynd af naggrís? Getur fólk verið lipurt þó að það sé feitt? Spurul. Kæra Æska! Getur þú sagt mér eitthvað um Jason Donovan? Mig langar einkum að vita hvort hann og Kylie eru gift eða í sam- búð. Rakel. Svör: Lesið þáttinn Leikarakynn- ingu. í 5. tbl. 1991 var sagt frá naggrísum íþættinum Dýrunum okkar. Ef til vill verður siðar veggmynd af þeim dýrum. Já, fólk getur verið liðugt í ýmsum hreyfingum þó að það sé feitlagið. Margir eru til að mynda fimir og léttir í dansi þó að þungir séu á vog. LEIKLIST, DANS OG SÖNGUR Kæra Æska! Ég hef mikinn áhuga á söng, dansi og leiklist og langar til að verða söngkona, dansmær, leik- kona - eða þetta allt. Mig langar til að byrja strax að læra þetta en veit ekki hvert ég á að snúa mér. Ég fór einu sinni í Rokklingaskól- ann en þar var sagt að það væri aldrei of seint að byrja. Getur þú hjálpað mér? Söng-, dans- og leikkona. Kæra Æska! Ég hef mikinn áhuga á leiklist og að syngja. Ég er alltaf syngj- andi. Hvernig er hægt að komast í söngprófun hjá Rokklingunum? Hvar er auglýst þegar leitað er eft- ir leikurum fyrir kvikmyndir og leik- rit? Ég tek þátt í öllu sem ég get og tengist leiklist eða söng. Ég veit að ég hef hæfiieika á þessum sviðum og ég er alls ekki feimin við að koma fram. En það er ekkert leik- félag þar sem ég á heima. Ein með söng- og leiklistaræði. Svör: Lesið svör í Æskupósti í 1. og 3. tbl. 1992, bls. 20 í báðum blöðunum! Þar er nefnt að líklegast sé að tækifæri gefist til að koma fram á vegum leiklistarklúbba í félagsmiðstöðvum og skóium. í Reykjavík starfar Gamanleikhús- ið, leikfélag barna og unglinga. Einnig má benda á Kramhúsið, dans- og leiksmiðju, að Skóla- vörðustíg 12 í Reykjavík (s. 15103). Kennsla fer fram í leiklistar- skólum - en inngöngu í þá fá nemendur að loknu stúdents- prófi - og inngönguprófi. Góður undirbúningur er nám í fimleikum, bailett og söng (söng- og tónskólar) ;enn frem- ur þátttaka í kórsöng. Auglýsingar, þar sem óskað er eftir ungum leikurum, eru birt- ar í dagblöðum - e.t.v. einnig í hljóð- og sjónvarpi. Rokklingaskólinn auglýsir starfsemi sína einnig í dagblöð- um. KVIKMYNDA- EÐA LEIKARAÞÁTTUR Kæri Æskupóstur! Getið þið ekki haft kvikmynda- og/eða leikaraþátt í Æskunni? Þar gætu verið fróðleiksmolar um fræga leikara - og nýjar (eða gaml- ar) kvikmyndir. Hann gæti verið svipaður Poppþættinum. Þið mættuð líka hafa fleiri kvik- mynda- og sjónvarpsþáttastjörnur á veggmyndum en hafa verið. Æskan er frábært blað og ég er ekkert að kvarta þó að ég biðji um þetta. K.H. Kæra Æska! Gætuð þið haft þátt svipaðan Poppþættinum en um leikara? Hvar getur maður fengið er- lenda pennavini? Kostar það eitt- hvað? Útvegið þið pennavini frá öðrum löndum öðru vísi en með því að birta nöfn í pennavinadálk- unum? Pósturinn Páll. Svör: Vicl höfum annað veifið sagt frá vinsælum leikurum í blaðinu - í sérstökum þætti og Æsku- póstinum. í þessu tölublaði kynnum við Kylie Minogue, söng- og leikkonu. Einnig má búast við fróðleiksmolum í nýj- um þætti, Héðan og þaðan. I 6. tbl. Æskunnar 1992 var birtur listi yfir alþjóðlega penna- vinaklúbba. Þar var sagt frá því hvernig fara skal að þvíað óska eftir erlendum pennavinum og hver kostnaður fylgir því. í flestum tölublöðum birtum við nöfn útlendra barna og ung- linga sem hafa hug á að skrifast á við Islendinga. - Við útvegum ekki pennavini með öðrum hætti. PABBAR Kæra Æska! Hér er lýsing á pabba mínum: Pabbi er fyndinn og skemmti- legur. Hann er alltaf að gera að gamni sínu. Hann getur varla sagt eina setningu án þess að grínast. Það eina sem hann eldar er „spag- hettí“. En það hefur hann svo sterkt að ég get ekki borðað það. Pabbi hefur ekkert tímaskyn. Hann kemur alltaf u.þ.b. klukku- stund of seint. Ef hann einsetur sér að koma í tæka tíð kemur hann oft- ast klukkustund of snemma, bíð- ur, fer aftur og kemur klukkustund of seint! Mína mús. PÁFAGAUKAR OG GLEYMSKA Hæ, kæra Æska! Viltu láta veggmynd af páfa- gauki fylgja Æskunni? Er þátturinn Dýrin okkar hætt- ur? Ef svo er ekki viltu þá láta fjalla um þáfagauka. Skrýtla: Hjón voru í flugvél á leið til út- landa. Konan: Hver skollinn! Heldurðu að ég hafi ekki gleymt að taka straujárnið úr sambandi? Maðurinn: Það erallt í lagi! Það getur ekkert brunnið því að ég gleymdi að skrúfa fyrir kalda vatn- ið. Kara. Svar: Frá páfagaukum var sagt í 8. tbl. 1990. Veggmynd fylgdi. (Kara hefur fengið blaðið). FRAMHALDSSAGA Halló, Æskupóstur! Er til aðdáendaklúbbur Simp- sons-fjölskyldunnar? Ef svo er hvernig kemst maður í hann? Ég vil taka fram að ég er sam- mála B.H. um að í blaðinu verði framhaldssaga sem lesendur semja. Þökk fyrir gott blað og vegg- myndina með hryssunni og folald- inu. Valgerður Bjarnadóttir. Svör: Við vitum ekki hvert er heim- ilisfang aðdáendaklúbbs fjöl- skyldunnar. Getur einhver gef- ið okkur upplýsingar? Við erum líka sammála því. Lestu byrjun hennar á bls. 25. „Þetta erum við Blesi.“ - Sendandi: Eydís Ósk Indriða- dóttir níu ára. Þökk fyrir bréfin! Þeir sem hyggjast skrifa Æskunni verða að muna að rita fullt nafn og heimilisfang undir bréfin. Önnur verða ekki birt. ÆSKU PÚSTUR Æ S K A N 2 7

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.