Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1992, Qupperneq 28

Æskan - 01.07.1992, Qupperneq 28
FRIMERKJAKLUBBUR ÆSKUNNAR Stytta af Leifi heppna Eiríkssyni. Cjöf til ís- lensku þjóöarinnar frá Bandaríkjamönnum. NÝIR FÉLAGAR 67) Haukur Harðarson, Reynigrund 47, 200 Kópavogi. 68) Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, Blöndubyggð 9, 540 Blönduósi. 69) Sandra D. Björnsdóttir, Kárastíg 8, 565 Hofsósi. 70) íris Ósk Pálsdóttir, Löngumýri 7, 600 Akureyri. 71) Arnar Sigurðsson, Öldugötu 50, 101 Reykjavík. 72) Þórunn Harðardóttir, Hellubraut 1,220 Hafnarfirði. 73) Ingunn Berglind Arnardóttir, Borgargerði 16, 755 Stöðvarfirði. 74) Áslaug Ottósdóttir, Steinum 15, 765 Djúpavogi. 75) Eygló Pétursdóttir, Leynisbrún 13, 240 Grindavík. Alla þessa nýju félaga bjóðum við velkomna og vonum að þeir finni sér skiptivini meðal eldri félaga í klúbbnum (- sjá lista í 4. og 5. tbl. 1992). íris Ósk hefur mestan áhuga á austur- lenskum frímerkjum. Arnar safnar aftur á móti dýrafrímerkjum. Valgerður safnar merkjum frá 15 löndum og hefur safnað í tvö ár. Þórunn spyr hvort ekki sé félags- gjald. Nú ætla ég að biðja ykkur að muna vel að klúbburinn okkar hefur ekki félags- gjald en þeir sem vilja fá bein svör við bréf- um verða að senda 30 króna frímerki með sem burðargjald undir bréfið. LEIFUR EIRÍKSS0N Öll hafið þið lært um Leif Eiríksson og jafnvel Eirík rauða, föður hans, en þeir eru taldir mestu landfundamenn íslendinga. Það er þó ekki alls kostar rétt þar sem það var ekki Leifur sem upphaflega fann Amer- íku heldur Bjarni Herjólfsson. Það var hann sem fann þessi lönd sem Leifur og fleiri fóru síðan að leita að. Meðal landnemanna voru svo Leifur Eiríksson og Þorfinnur karlsefni Þórðarson sem síðar bjó í Skaga- firði. Það voru því grænlenskir menn frá íslandi sem fundu Ameríku upphaflega. En áður hafði Norðmaðurinn Eiríkur rauði (frá íslandi!) fundið Grænland og fengið íslend- inga til að byggja það að hluta. Talið er að maður sunnan úr Evrópu hafi frétt af landafundum Leifs og Eiríks er hann fór til írlands og síðan til íslands. Þá vissi hann ekki hvaða lönd þetta gætu ver- ið en taldi að um Indíalönd væri að ræða. Þarna væri því fundin leið til austurstrand- ar þeirra landa. Fyrr á þessu ári létu Færeyingar og ís- lendingar prenta sameiginlega frímerkja- útgáfu til að minnast þess að Leifur Eiríks- son fann Ameríku og að Kólumbus fann hana á ný á fimmtándu öld. Þarna var um tvö frímerki að ræða frá hvoru landi. Ann- ars vegar til að minnast ferðar Leifs og hins vegar til að minnast ferðar Kólumbusar. Furðulegt verður að teljast að Grænland skyldi ekki vera með í þessari útgáfu. Raunar gátu Norðmenn líka verið með því að upphaflega kom Eiríkur rauði frá Noregi til íslands og settist þar að sem flóttamað- ur vegna dóms heima fyrir. Svo braut hann einnig af sér á íslandi og varð þá að flýja á- fram til Grænlands. í LEIFUR EIRÍKSSON ■ UM 1000 EUROPA KRISTÓFER KÓLUMBUS • 1492 EUROPA Póstkort þetta gaf Póst- og símamálastofnunin út í tilefni af landafunda-sýningu í Ameríku. 2 8 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.