Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1992, Page 43

Æskan - 01.07.1992, Page 43
Shakespeare og A. Lloyd Webber. En rithöfund og skáld? Halldór Laxness og Stephan King. í hverju er starf leikara fólg- ið? Hvað gera þeir milli sýn- inga? Leikari þarf að geta sett sig í spor annarra og geta búið til nýja persónu sem á eigið líf og tilfinningar (en leik- arinn fær „að láni“ margt úr eigin lífi til að geta skilið tilfinningar persón- unnar betur). Svo lærir maður text- ann sinn og kemst að því hvar á að standa (ganga, sitja o.s.frv.) í leik- ritinu. Síðan lætur maður persónuna sína gera þetta allt. Ef sýnt er tvisvar á dag reynir „Ég lék fyrst Tótu litlu í Fjalla-Eyvindi. Ég var fimm ára þegar við byrjuðum en orðin sex þegar við hæltum. “ maður að hvíla sig á milli. Ef langt er á milli sýninga, kannski vika eða meira, þá er gott að setjast niður fyr- ir sýninguna og „fara í gegnum hana“ í huganum - því að oftast ger- ir maður eitthvað allt annað á milli. Hvað finnst þár skemmtileg- ast í starfinu? Að reyna að finna persónuna. Það er ýmist auðvelt eða erfitt en þegar maður hefur fundið hana þá veit maður það (og það er alltaf góð til- finning)! Hefur þú lært söng - eða á hljóðfæri? Ég er enn að læra söng (- hef lok- ið 5. stigi). Ég lærði á blokkflautu og síðan klarinett (en er búin að gleyma öllu núna). Ég byrjaði að læra á píanó og er að æfa mig á því aftur núna. Ertu gift - áttu börn? Ég giftist Torfa Geirmundssyni 22. ágúst sl. Hann á fjögur börn og tveir synir hans eru hjá okkur, þeir Mikael (18 ára) og Ingvi Reynir (22 ára). Við kynntumst í Söngvaseiðn- um svo að það má segja að ég hafi haldið hlutverkinu áfram! í hvaða skólum varstu? Ég byrjaði í Mýrarhúsaskóla úti á Nesi, fór svo í Melaskólann og það- an í Hagaskóla. Ég varð stúdent úr Verslunarskólanum og fór síðan til Bandaríkjanna í leiklistina. Þegar ég kom heim fór ég í Leiðsögumanna- skólann. Hvað fannst þér skemmtileg- ast á skóiaárunum? Að Ijúka prófum! - og vera í kór (Sólskinskórnum í„Meló“ og Versl- unarskólakórnum). Hvað gerðir þú helst f tóm- stundum? Ég var skáti og starfaði mikið. Úti- legurnar voru skemmtilegastar! Ég fór líka á skíði (en er ekkert sérstak- lega leikin) og oft í leikhús. Ég sá Fló á skinni yfir 50 sinnum! Hvað starfaðir þú á sumrin meðan þú varst í skóla? Allt mögulegt. Ég var sendill hjá frænda mínum, eitt sumar í sveit og vann hjá Vífilfelli hf. (Kók). Hver eru aðaláhugamál þín? Listir. Hefur þú ferðast víða? Já, meira eða minna um allt ís- land (Ég er leiðsögumaður á sumr- in) - um Norðurlöndin, mikið í öðr- um Evrópulöndum (var eitt ár sem skiptinemi í Þýskalandi), um Sovét- ríkin gömlu allt til Bajkal-vatns (í Sí- beríu við landamæri Kína og Mongól- íu), um Norður-Ameríku og Mexíkó. Hvað hefur þér þótt athyglis- verðast á ferðum þínum? Að sjá hvað landamæri geta breytt miklu hjáfólki. Maður gengur yfir ó- sýnilegt strik og allt í einu talar fólk öðruvísi, lítur öðruvísi út og hugsar allt öðruvísi. Hvaða staður, sem þú hefur komið til, þykir þér fallegast- ur? Skaftafell. Hvaða matur þykir þér bestur? Austurlenskur. Eldar maðurinn þinn? Hvað er hann leiknastur við að búa til? Maðurinn minn eldar oftast heima enda er hann mjög góður kokkur. Og best tekst honum upp með ind- verskan mat. Stundar/hefur þú stundað f- þróttir? Ég syndi mikið og geng mikið. Ég æfði einu sinni handbolta hjá KR en var ekkert góð svo að ég hætti. Hver er eftirlætisfþróttagrein þfn - og íþróttamenn? Mér þykir gaman að handbolta og er afar stolt af landsliðinu okkar. Hvað ráðleggur þú þeim börn- um og unglingum sem langar til að verða leikarar? Að drífa sig í leiklist í skólanum eða félagsmiðstöðinni. Þó að þau séu feimin gerir það ekkert til því að það er öðruvísi í leiklistinni. Leikar- inn getur verið feiminn sjálfur en það er þara ekki hann sem er á sviðinu heldur þersónan hans. Áttu eftirlætismálshátt? Betra er seint en aldrei. „Leikari þarf að geta settsig í sgor annarra og geta búið til nýja persónu sem á eigið líf og tilfinn- ingar..." Æ S K A N 4 7

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.