Æskan - 01.01.1994, Qupperneq 8
MÉR FINNST ROSALEGA
GAMAN AÐ SMÍÐA
Rætt við Rúnar Pál Rúnarsson 9 ára
- sigurvegara í uppfinningakeppninni 1993.
„Hann kom haustið 1992 með
strákum sem höfðu verið á nám-
skeiðinu. Þá var hann átta ára en
aldursmarkið var tíu ár. Ég ætlaði að
segja honum að hann yrði að bíða í
eitt eða tvö ár eftir að taka þátt í
námskeiði en gerði það þó ekki.
Hann sat þarna ósköp rólegur og
fylgdist með og fór svo eitthvað að
dunda sér. Ég lét gott heita að hann
kæmi aftur. Hann er skemmtilega
íhugull og hugmyndaríkur strákur. Ég
fann fljótt að hann átti fullt erindi til
okkar. Enda fór svo að hann vann
fyrstu verðlaun í uppfinningakeppn-
inni í fyrra! Og við áttuðum okkur á
að rétt væri að lækka aldursskilyrðið
- úr tíu í átta ára! Já, það væri tilvalið
að ræða við Rúnar Pál. “
Þetta sagði Gísli Þorsteinsson,
smíðakennari í Foldaskóla og einn
leiðbeinenda í námskeiðum í ný-
sköpun - þegar ég bað hann að
benda mér á einhvern til að spjalla
við um nýsköpunarkeppnina. Hún
fer fram nú í vor í þriðja sinn og er
tvískipt: Uppfinningakeppni - og út-
lits og formhönnunarkeppni (sjá
kynningu á bls. 24).
KASSI UNDIR SÍMASKRÁ
Ég renndi upp í Foldahverfi og
rabbaði við Rúnar Pál, fjörlegan,
skýran og hressilegan strák. Fyrst
lék mér forvitni á að vita hvernig
honum hefði dottið í hug að fara á
nýsköpunarnámskeiðið í hittifyrra...
„Ég hitti ellefu ára vin minn sem
var að fara þangað. Við frændi hans,
sem er jafngamall mér, ákváðum að
fara með honum. Mér finnst rosa-
lega gaman að smíða.“
- Hefur þú fengist mikið við smíð-
ar?
„Já, já. Ég fer oft til Sauðárkróks
og er þá oftast heima hjá Davíð Þór
frænda mínum, syni systur mömmu.
Hann er jafnaldri minn. Við erum
alltaf að smíða eitthvað saman,
báta, ramma til að byggja hús og
margt fleira. Stundum er ég líka hjá
afa og ömmu fyrir norðan. Afi lánar
okkur oft verkfæri. Þegar ég var
yngri var ég líka mikið á smíðavellin-
um. Þar máttum við byggja hús.“
- Hvaða hlut smíðaðir þú á nám-
skeiðinu og fékkst verðlaun fyrir í
nýsköpunarkeppninni?
„Ég fór að spá dálítið í þetta og
hugsa. Þá datt mér í hug að búa til
kassa undir símaskrá. Ég smíðaði
hann.“
- Hver voru verðlaunin?
„Tulip RC-tölva. Það voru allt í
einu komnar tvær tölvur í húsið því
að systir mín var nýbúin að kaupa
Ambra tölvu. Bróðir minn er með
mína tölvu inni hjá sér. Það er ekki
pláss í herberginu mínu.“
- Notar þú tölvuna dálítið?
„Já, ég bý oft til sögur og skrifa á
hana. Helst draugasögur."
- Hefur þú lesið þær fyrir krakka
til að hræða þá?
„Nei, þær eru nú ekki svo skelfi-
legar! Ég les þær að gamni fyrir
mömrnu."
- Ferðu líka í tölvuleiki?
„Sjaldan. Maður þarf að vera
pottþéttur í ensku til að geta notað
leiki. En bróðir minn á Nintendo tölv-
ur sem ég leik mér að.“
Rúnar með borðtennishlifina sem hann
smiðaði eftir að hann skar sig á
járnfestingunni
Einbeittur uppfinningamaður
8 Æ S K A N