Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 45

Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 45
NÓBELSVERÐLAUN í BÓKMENNTUM Það var snögglega brugðist við hjá sænsku Póstmálastofnuninni á síðastliðnu ári þegar Nóbelsverð- launum í bókmenntum var úthlutað. Þau komu að þessu sinni í hlut afrísk-ameríska rithöfundarins Toni Morrison. Hún er ekki aðeins þekkt fyrir skáldsögur sínar heldur ekki síður fyrir greinar og smásögur. í greinargerð sænsku Akademíunnar segir meðal annars að hún hafi með snilld sinni í frásögnum, sem blandnar eru skyggnum vitrunum og Ijóðrænum krafti, útskýrt sterkan þátt í bandarískum veruleika. Öll þekkið þið ýmsar bandarískar myndasögur fyrir börn og unglinga. Þær sjáum vió oft í sjónvarpinu. Það er einmitt það sem býr að baki þessum sögum sem Toni hefir verið að lýsa í bókunum sínum. Því er ekki ónýtt að lesa sumar sögur hennar til að kynnast þessu öllu betur. Ég er samt fyrst og fremst að hugsa um það að Svíar hafa nú ann- að árið í röð brugðist snögglega við og gefið út frímerki með mynd verð- launahafans sama árið og verðlaunin hafa verið veitt. Sú skýring var gefin að það hafi vakið mikla undrun að valin hafi verið þeldökk kona. Hún var að vísu heimsfræg fyrir bækur sínar - en enginn bjóst við að Aka- demían veldi höfund sem er kona, þeldökk og ekki af evrópskum upp- runa! Það er mikil hátíð þegar Nóbels- verðlaunum er úthlutað. Athöfnin fer fram í ráðhúsi Stokkhólmsborgar og verðlaunin eru afhent af Svíakonungi sem við vorum einmitt með mynd af í jólablaðinu. Nú birtist annað frí- merkið í samstæðunni og er að þessu sinni með mynd af ráðhúsinu og turni þess. Hin myndin er af verð- launahafanum sem er hugsi með hönd undir kinn. Það var ekki mikill tími til að teikna og grafa frímerkin svo að fjórir menn voru fengnir til verksins. A. Pram og H. Marcus voru fengnir til að teikna og Piotr Naszarkowski og Lars Sjöblom til að grafa myndina í prentstálið. Þetta má sjá á frímerkj- unum sjálfum. Nafn þess sem teikn- ar er prentað vinstra megin neðst en nafn þess sem grefur neðst til hægri. Svona má lesa í frímerki. Gleðilegt nýtt ár, með þökk fyrir þau liðnu. Sigurður H. Þorsteinsson. ÚTVEGAR FRÍMERKI Þættinum hefur borist bréf frá norskri stúlku. Hún segist geta út- vegað frímerki víðsvegar að úr heiminum - gegn greiðslu. Fyrir tíu frímerki þarf að greiða þrjú alþjóð- leg svarmerki sem fást á pósthús- um. Ef hún er beðin að útvega sérstök frímerki kostar það fimm slík svarmerki. Hún segist senda frímerki til baka ef alþjóðlegu svar- merkin eru send henni. Við getum ekki fullyrt að um sé að ræða traustan sölumann en birtum þó nafn stúlkunnar: Sonja Johansen, Dusavikhagen 22, N-4028 Stavanger, Noregi. Æ S K A N 4 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.