Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 44

Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 44
R O K K W ÍSLENSK ROKKSKÁLDSAGA SJÁLFSÆVISAGA TÍNU TURNER Titill: Tvær grímur Höfundur: Valgeir Guö- jónsson Tvær grímur er skáldsaga með sannsögulegu ívafi. Nafngreindar persónur úr ís- lenskri rokksögu skipa stóran sess í frásögninni. Aðrar per- sónur eiga greinilega fyrir- myndir í raunveruleikanum. Aðalsöguhetjan, rokkstjarnan Grímur Kamban, á t.a.m. margt sameiginlegt með bókarhöfundi, Valgeiri Guð- jónssyni, en raunar einnig með Agli Ólafssyni og fleiri Stuðmönnum. Tvær grímur birtir Ijóslif- andi mynd af ungum drengj- um sem fylgjast með Bítla- æði sjöunda áratugarins. Á þann hátt er bókin fróðleg fyrir áhugafólk um íslenska poppmúsík. En hún er líka bráðskemmtileg. Sagan geislar af hnyttinni frásagnar- gleði Valgeirs. Umsjónar- maður Poppþáttarins stóð sig að því að skella upp úr á stöku stað við lesturinn. Með því að draga úr orðaflaumi gæti Valgeir komist í þann flokk úrvalsrithöfunda sem Pétur Gunnarsson og Einar Kárason teljast til... Oft kemur fram í frásögn- um íslenskra poppara að Æskan sé einn liðurinn í til- veru þeirra. Þetta er staðfest í bók Valgeirs. Bent er á til vitnis um glæsilegan feril rokksöngvarans Gríms Kam- bans að viðtal við hann hafi birst í Æskunni... Titill: Ég, Tína Þýðandi: Ásgeir Tómas- son Hörundsdökki indíáninn Tína Turner hefur verið í hópi vinsælustu rokksöngkvenna í þrjá áratugi. Samt eru ein- ungis nokkur ár síðan hún kynntist hamingjunni. Æsku- árin voru henni erfið og ást- laus. Þá tók við tveggja ára- tuga hjónaband með ofbeld- isfullum fíkniefnaneytanda, hljómsveitarstjóranum Ike Turner. í bókinni segir Tína að í hennar sporum flýi margir á vit áfengisneyslu eða notkunar annarra fíkni- efna. En með því fara þeir úr öskunni í eldinn, sökkva enn dýpra í óhamingjufen- ið og eiga síður björgunarvon en ella. Tína var svo heppin að snið- ganga alla tíð tóbak, á- fengi og önnur ávanaefni. Sá lífsstíll hennar er tví- mælalaust veiga- mikill þáttur í langvar- andi og sívaxandi vin- sældum þessarar hálfsextugu ömmu. hennar og plötur sí£ áratuginn bergmála lífs gleði og þrótt. 1984 kom hún í fyrsta skipti lagi í efsta sæti banda- ríska vinsældalistans. 1989 náði plata með henni í fyrsta sinn efsta sæti breska vinsældalistans. Á sama tíma er fyrrum eiginmaður hennar, Ike Turner, löngu útbrunninn rokkari. Spilagleðin, andagiftin og lífsgleðin hafa hopað fyrir vímuefnafíkninni. Nafn Ikes væri að mestu gleymt ef ofurvinsældir Tínu minntu ekki óbeint á það. Bókin, Ég, Tína, gefur ágæta mynd af lífi popp- stjörnunnar að baki sviðs- Ijósanna, skuggahliðum sem sjaldan er fjallað um þegar vinsælustu lögin eru kynnt. Athyglisvert er að lesa um áhrif Pinetops Perkins á pí- anónám Ikes. Pinetop hefur oft spilað og sungið hérlend- is. Hann gerði til að mynda eina plötu með Vinum Dóra. 4 4 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.