Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1994, Page 16

Æskan - 01.01.1994, Page 16
ALLI NALLI SÍÐRÍKUR PÁLL eftir Særúnu Ósk Gunnarsdóttur. „Amma, hvenær koma pabbi og mamma?" kallaði Pétur. Hann og systir hans lágu næstum því úti í glugga með nefið klesst við rúðuna. „Þau koma eftir svona þrjá klukkutíma," svaraði amma. „Leið- ist ykkur?" „Nei, nei," svaraði Pétur. „Amma, hvar er sjónvarpið þitt?" spurði Kristín. „Sjónvarpið mitt er hjá Jóhanni frænda ykkar." „Af hverju er sjónvarpið þitt þar?" spurði Pétur. „Nú, hans tæki var bilað og ég lánaði honum mitt á meðan hans er í viðgerð." „Amma, leiðist þér ekki þegar þú hefur ekkert sjónvarp? Ekki gæti ég verið án sjónvarps," sagði Kristín. „Ekki það, Kristín mín. Hvað horfir þú á í sjónvarpinu?" „Ég horfi á barnaefnið á laug- ardögum og sunnudögum, svo horfi ég á Stundina okkar. Mér finnst hún ofsalega skemmtileg." „Stundin okkar, iss, hún er svo barnaleg. Bara fyrir smábörn," sagði Pétur rogginn með sig enda átta ára, bráðum níu eins og hann sagði þó að það væri reyndar ekki fyrr en eftir fjóra mánuði. „Ég er ekkert smábarn." Rödd Kristínar var byrjuð að hækka. „Ég er fimm ára og ekkert smábarn." „Iss, fimm ára. Þú ert ekki einu sinni byrjuð í skóla, kannt ekki stafina. Iss, þú ertsmábarn." Kristín ætlaði að rjúka í bróður sinn en amma stöðvaði hana. „Svona, svona, þið þurfið nú ekki að rífast, þaðan af síður að fljúgast á. Komið þið! Við skulum athuga hvor ég á ekki einhverja köku og kex." Þau voru ekki orðin alveg sátt en fóru með ömmu fram í eld- hús. Hún gaf þeim brúnköku og súkkulaðikex. Þau fengu heitt kakó að drekka. Amma fékk sér kaffi og kandís. „Amma, er kandís góður?" spurði Kristín. Hún vonaðist eftir því að amma gæfi sér mola. „Já, rýjan mín, kandís er góður. Þó hugsa ég að hann sé ekki mjög hollur fyrir tennurnar." Kristín horfbi á ömmu sína og svo á kandísmolana. Amma sá hvab stelpan vildi og bauö henni og Pétri mola. Þau fengu sér tvo mola. „Vib skulum gæta þess ab skilja eftir mola handa pabba ykkar. Honum þykir svo góbur kandís," sagði amma. Þegar þau voru búin að drekka og hjálpa ömmu að ganga frá fóru þau aftur inn í stofu. „Amma, hvab er klukkan núna?" Pétur var að horfa út um glugg- ann. „Pétur minn, leiðist þér svona? Klukkan er hálf þrjú. Þau koma um fimm leytiö." Pétur fór frá glugganum og gekk ab bókahillunni. Hann stóð þar og las bókatitlana. „Amma, áttu enga bók um Tinna?" „Hver er Tinni?" spurbi amma. „Æi, hann er í sjónvarpinu, of- bobslega spennandi teikni- mynd." „Nei, rýjan mín, ég á enga bók um Tinna. Þetta eru allt bækur sem hann afi þinn átti." „Las afi svona mikið?" spurbi Kristín. Aðdáunin skein úr augum hennar. Hana langaði svo að læra

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.