Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1994, Page 27

Æskan - 01.01.1994, Page 27
En ekki liöu margir dagar þar til ég sá að báðar íbúðirnar höfðu verið reyndar og fljótlega þar á eftir voru þær orðnar fastir svefnstaðir og einnig dvalar- og hvíldarstaðir á daginn þegar hlé varð á ýmsum önnum og viðfangsefnum. Fannst mér ekki lítið gaman að koma við þar eftir að veður fór að versna og klappa á kolla og strjúka um bök. í ullina voru komnar djúpar holur og líkamshitinn frá þeim hélst stöðugur umhverfis þær. Ég veit ekki enn í dag hvort þær voru nokkuð glaðari en ég yfir þessari framkvæmd. Og ekki veit ég heldur hvort það var vegna þessa húss eða ekki að kisa fór að sýna mér enn þá meiri vinsemd en áður. Þannig hagaði til að í hvarfi frá bænum heima í tæplega kílómetra fjarlægð var gamalt fiskverkunarhús þar sem geymt var úthey handa kindunum af því að ekki var rúm fyrir það í hlöðunni. Það var eitt af mínum daglegu skyldustörfum að fara þangað meðan dagur var á lofti og sækja vel fullan, stóran strigapoka og bera hann heim dagskammt kindanna. Gi aubvitað einu hvernic vibrabi. Einn dag varð ég alveg hissa. Þegar ég var langt kominn ab fylla pokana smeygbi Kisa sér inn til mín og fór vinsamlega fram á klapp og atlot og endurgalt að sínu leyti og leib okkur báðum vel. Svo fylgdi hún á hæla mér á heim- leibinni. Og svo varð þetta ab reglu hjá henni. Hún fór að koma til mín á hverjum degi en fylgdi mér ekki á leið minni til hússins. Aldrei varb ég þess var að hún elti mig ef ég var að fara eitthvað annað , t.d. á aðra bæi eba í kaupstaðinn. Annaöhvort hefur tómur strigapokinn sýnt henni hvert ég var ab fara eða hún skynjað þab á annan hátt. En einu sinni elti hún mig þó annað, sem sé upp á fjall sem heitir Kubbi og er fyrir ofan bæinn. Þá varð ég ekki lítið hissa. Það er sagt vera tæplega 500 metra hátt! Mig minnir að þetta væri seint í nóvember eba snemma í desember. Veðrið var norbaustan stinningskaldi og nokkurra stiga frost og allmikill snjór. Var þetta því ekki nein hlýleika ferð heldur farin af því að tveir eba þrír gemlingar komu ekki til húss með kindunum kvöldinu áður. Þótti líklegt að þeir væru einhvers staðar uppi á Kubbanum. Ég fór að loknum morgun- verkum nokkru fyrir hádegib og flýtti mér svo sem ég frekast gat, vissi að upp á fjallsbrún yrbi ég um það bil hálfa klukkustund. A þessum árstíma fer að skyggja upp úr klukkan tvö eftir hádegi og ekki síst þegar dimmt er í lofti eins og var þennan dag. Ég leit ekki um öxl á leiðinni upp og varð meira en lítiö undrandi þegar upp var komið og ég var að hefja gönguna eftir fjallinu - að heyra kallab „mjá" nokkuð ab baki mér. Aubvitab stansaði ég og leit til baka og í því kom Kisa í Ijós á fjallsbrúninni. Ég settist og hún kom hlaupandi í fangið á mér. Mér var vel heitt eftir gönguna upp eftir og tók af mér hægri ullarvettlinginn og ætlaði að smeygja afturfótum hennar í hann og hlýja henni á framfótunum meb hendinni en hún kunni ekki við vettlinginn. Aftur á móti mátti ég hafa allar tær hennar í hægri lófa mínum og svo tók ég vinstri vettlinginn ofan líka og fór að strjúka henni og hugsa hvernig framhald ferðarinnar yrbi. Ég var í samfestingi utan yfir ullarskyrtu, milliskyrtu og ullar- nærbuxum, eins og algengt var að menn klæddust þar á þeim tíma. Mér kom til hugar hvort ég gæti borið Kisu undir sam- festingnum en hann var alltof þröngur til þess. Ég vissi ab mjög erfitt og kalt yrbi fyrir hana að fylgja mér áfram í þó nokkrum snjóþæfingi sem var á fjallinu. Því yrði ég ab skora sem fastast á hana að snúa vib. „Heim, Kisa! Heim, Kisa!" var fyrirskipunin. Ég sneri mér við og benti á bæinn og hálfhljóp síðan af stað til að leita að gemlingunum. Ég gleymdi satt að segja Kisu. Mig minnir ab ég hafi haft uppi á gemling- unum fyrir myrkur en man það þó ekki með fullvissu. En ég man vel ab ég fór ekki fleiri feröir á fjallið. Það var orðið koldimmt þegar ég kom heim. Þá stóðu hestarnir fyrir utan lokabar hesthúsdyrnar. Ég lét þá inn og lá þá næst fyrir ab ég færi inn í bæ og fengi mér kaffi. Þá mundi ég eftir Kisu. Hvar skyldi hún vera? Ég kallaði hátt: „Kis, kis, ég er kominn heim, komdu, kis, kis." Æ S K A N 2 7

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.