Æskan - 01.01.1994, Síða 41
Pabbi: Hvernig fellur þér
við nýja kennarann?
Árni: Hann er afskaplega
strangur.
Pabbi: En veistu hvernig
honum líkar við þig?
Árni: Já, hann sagði að
annar eins drengur og ég
væri ekki á hverju strái.
Pabbi: Já, það var ágætt.
Sagði hann meira?
Árni: Sem betur fer -
bætti hann við.
♦>
Það er fyrsti dagur í skól-
anum eftir áramótin. Kenn-
arinn ávarpar börnin hátíð-
lega:
„Gleðilegt nýár, börnin
góð! Ég vona að þið verðið
miklu duglegri og miklu sið-
samari á þessu nýbyrjaða ári
en þið voruð á hinu liðna.“
„Þökk, sömuleiðis, þökk,
sömuleiðis!" svöruðu börnin
ósköp kurteis.
*>
Dómarinn: Nú, hvað fór
ykkur á milli, yður og á-
kærða, í þessu máli?
Kærandi: Þrír diskar,
súpuskál, tvær kartöflur og
ein gulrót.
*>
Pabbi (önugur): Ég er ekki
ánægður með þennan vitn-
isburð sem þú kemur með
úr skólanum.
Kári: Nei, það hélt ég líka
og sagöi kennaranum það
en hann varð bara vondur
og vildi ekki laga hann.
Amma: Hvernig gekk
honum Gísla litla í sögupróf-
inu?
Mamma: Æ, hálfilla, en
það var ekki honum að
kenna, strákanganum.
Kennarinn var alltaf að
spyrja um það sem gerðist
löngu áður en hann fæddist.
*>
Addi: Ég orgaði ekki hjá
tannlækninum, pabbi!
Pabbi: Það var gott hjá
þér, vinur minn! Hérna færðu
hundrað krónur fyrir að vera
svona duglegur. En var það
ekki sárt?
Addi: Nei, nei, læknirinn
var ekki heima.
*>
Ókunnur maður stendur
lengi við dyr og ber. Loks
snýr hann sér að smástrák
og segir:
„Þú sagðir að pabbi þinn
væri heima en það gegnir
enginn hér.“
„Pabbi er heima en við
eigum ekki heima í þessu
húsi,“ svaraði strákur.
*>
Maður nokkur kom inn í
fiskbúð og ætlaði að fá sér í
soðið. Honum sýndist fisk-
arnir ekki vera nýir, laut nið-
- Veistu af hverju Hafnfirð-
ingar hafa alltaf með sér bílhurð
þegar þeir ferðast um eyði-
mörkina?
- Til að geta skrúfað rúðuna
niður þegar þeim verður of heitt.
ur og ætlaði að þefa af
þeim. Fisksalinn varð
hræddur um að rækileg at-
hugun kæmi sér illa og sagði
byrstur:
„Leyfirðu þér að þefa af
fiskinum mínum?“
„Ég var ekki að þefa af
honum. Ég var að tala vjð
hann,“ svaraði maðurinn.
„Um hvað varstu að tala
við hann?“
„Ég var að spyrja hvað
væri að frétta úr sjónum."
„Og hvað sagði hann?“
„Hann sagðist ekki kunna
neinar nýjar fréttir því að það
væru þrjár vikur síðan hann
fór úr sjónurn."
Tveir drengir áttu í erjum
og flugust á eins og hanar.
Gamall maður kom þar að
og ávarpaði þá:
„Skammist þið ykkar,
strákar, að fljúgast svona á.
Hafið þið ekki heyrt að mað-
ur á að elska óvini sína?“
„Jú,” svaraði annar
þeirra, „en við erum ekki ó-
vinir, við erum bara bræður."
*>
Gömul kona spurði Tóta
litla hve mörg þau væru
systkinin.
„Við erum tíu, strákarnir,
og eigum eina systur hver.“
„Ja, hérna, eruð þið þá
tuttugu?"
„Ónei,“ svaraði Tóti og
brosti. “Við eigum allir eina
og sömu systurina."
*>
Svör á prófum:
Indíánar eru vanir að ferð-
ast í barkarbátum um fljót
sem þeir búa til sjálfir...
Filippus postuli fann Fil-
ippseyjar og íbúarnir þar eru
kallaðir Filistear...
Fólkið, sem bjó í Egypta-
landi í fornöld, er kallað
múmíur...
Besta ráðið til þess að
mjólk súrni ekki er að geyma
hana í kúnni...
Á landamærum Frakk-
lands og Spánar er fjallgarð-
ur mikill sem heitir pýramíd-
ar...
Kettirnir eru ferfætlingar
og venjulega eru fæturnir
hver í sínu horni líkamans...
Einu sinni var meydrottn-
ing í Englandi og hét Elísa-
bet. Henni þótti svo vænt
um fötin sín að hún sást
aldrei öðruvísi en í þeim.
Hún var rauðhærð og
freknótt og falleg og vitur...
Maginn í flestum dýrum
er skammt sunnan við rifin...
Vinstra lungað í mannin-
um er dálitlu minna en það
hægra af því að sálin er hjá
því...
Maðurinn er eina dýrið á
jörðinni sem kann að kveikja
Ijós og ekkert annað dýr
kann heldur að snýta sér...
Naut er kýr sem ekki get-
ur eignast kálf...
Hænur eru fallegir fuglar.
Þær eru búnar þannig til að
aðrar hænur liggja á eggjum
og unga þeim út...
Og sá boðskapur kom til
Abrahams að hann myndi
ala son en Sara sat á bak
við hurðina og skellihló þeg-
ar hún heyrði það...
Öll dýr eru ófullkomin
nema maðurinn. Hann einn
er fullkomin skepna...
Æ S K A N 4 1