Æskan - 01.03.1994, Page 18
„Litli stökkvarinn Kalli krútt“ á
brátt að fara í brautina. Hindrunin,
sem hann á að stökkva yfir, er ef-
laust þrisvar sinnum hærri en hann.
En Lillí (það er hann oftast nefndur)
virðist ekki finna fyrir keppnisskjálfta!
Þetta er á sænska meistaramót-
inu í kanínustökkí! Lilli er fimmti í röð
keppenda. Hann er sannarlega lítill
eíns og nafnið bendir til. En hann er
snjall stökkvari og sallarólegur að
sjá.
„Lilla fellur vel að keppa inni.
Þetta gengur áreiðanlega vel,“ segir
Elísabet „mamma“ hans. „Hann
verður vonandi einn af tuttugu
fremstu.“
Lilli situr á ráslínunni og lætur ekki
haggast. Svo skýst hann mjúklega
yfir fyrstu hindrunína.
Þegar horft er á hann stökkva
ímyndar maður sér að þetta sé
ósköp auðvelt. En hann nemur stað-
ar eftir næstum því öll stökkin. Þá
verður Elísabet að hjálpa til svo að
hann haldi áfram.
Hún færir hann lítinn spöl áfram.
Þá tekur hann við sér og stekkur yfir
næstu hindrun.
EINN DRENGUR í
KLÚBBNUM
Lilli og Elísabet eru frá Sandvík.
Þau eru félagar í kanínuklúbbi þar. í
honum eru tuttugu krakkar á aldrin-
um 13-16 ára. Einungis einn þeirra
er strákur!
„í klúbbnum er stjórn sem ákveð-
ur til að mynda hvenær meistara-
keppni hans fer fram,“ fræðir Elísa-
bet okkur um. „Og við gefum út
fréttablað sem kemur út fjórum sinn-
um á ári.“
MJÓLKUR-
FERNU-
HINDRANIR
Félagamir hittast oft á sumrin og
æfa kanínurnar sínar saman. En á
veturna er erfitt að fá nógu stóran
sal.
Sumar kanínur verða óstyrkar
þegar keppt er inni. Þeim líður betur
úti en innanhúss. Þær fella hindran-
imar oftar ef taugar þeirra eru þand-
ar - þó að þær séu
ágætir stökkvarar.
Félagar klúbbsins
taka líka þátt í sveita-
keppni í öllu Gest-
rekalandi. í hverri
sveit eru fjórar kanín-
ur. Besti árangur
klúbbsins, sem Elísa-
bet er í, er sjötta
sæti.
„Það er erfitt fyrir
okkur að verða fram-
arlega því að of fá
mót eru haldin í
Sandvík," segir Elísa-
bet. „Keppnisreynsla
er nauðsynleg til að
ná góðum árangri.“
að þessu sinni, fleiri en nokkru sinni
hafa komið til leiks.
Engin sérstök kanínutegund ber
af öðrum sem stökkvari. Kanínur af
hvaða tegund og stærð sem er geta
því verið með í keppninni. Lilli er
dvergkanína. Þó að hann sé minni
en flestir aðrir keppendur verður
hann að stökkva yfir sömu hindrun.
„Stóru kanínurnar eru miklu
klunnalegri en þær smáu. Þess
vegna stendur Lilli vel að vígi,“ segir
Elísabet.
- Hvernig er farið að því að fá
kanínur til að stökkva?
„Þær verða að hafa gaman af
því,“ svarar Elísabet. „Maður byrjar
með litlar hindranir og hækkar þær
smám saman.
Það er hægt að lokka þær með
góðgæti. Mikilvægt er að hæla þeim
oft. Hægt er að byrja að þjálfa þær
Sænska meistara-
mótið í kanínustökki
var fyrst haldið 1986.
Þá stukku þátttak-
endurnir, 60 kanínur,
yfir hindranir úr
mjólkurfernum! Nú
eru þær smækkaðar
myndir af þeim grind-
um sem notaðar eru
við hindrunarhlaup
hrossa. 160 kanínur
taka þátt í keppninni
Lilli kúrir i fangi Elísabetar „móður" sinnar.
KANÍNUR NOPm
lÁni
18 Æ S K A N