Æskan - 01.03.1994, Side 26
9t*«UO
PðSTUR
- pósthólf 523,
121 Reykjavík
BÍTLARNIR
Elsku, besti Æskupóst-
ur!
Ég vil byrja á því að
segja að mér finnst Æskan
alveg ofsalega skemmtileg
og Eva og Adam eitt það
skemmtilegasta í henni.
Gætuð þið birt vegg-
mynd og einhverjar upplýs-
ingar um Bítiana og 4 Non
Blondes?
Ég vildi gjarna fá senda
veggmynd af Bítlunum ef
þeir hafa verið áður.
Blómabarnið.
Svar:
Veggmynd af Bítlunum
fylgdi 8. tbl. Æskunnar 1991.
Við höfum sent þér hana.
Ýmsir fróðleiksmolar um
hljómsveitina hafa verið i
pistlinum, Sögu rokksins, en
athugandi er að rita grein
um hana. Sama gildir um
hina sveitina sem þú nefnir.
Þakka þér fyrir upphafs-
orðin!
DÝRAÞÁTTUR
Kæra Æska!
Getið þið líka haft dýra-
þátt í blaðinu, t.d. um ketti,
hunda, hesta, kanínur,
páfagauka - og birt vegg-
myndir af þeim?
Viljið þið hafa veggmynd
með Brandon (Jason
Priestley)?
Getur maður verið með í
frímerkjaklúbbi Æskunnar?
Þarf að borga eitthvað fyrir
það?
Embla Dimma.
Svar:
Já, við hljótum að fjalla
um dýr að nýju. Margir hafa
beðið um það undanfarið
eins og þið hafið séð i bréf-
um sem birt hafa verið í
þessum þætti. 1990-1991 var
þátturinn, Dýrin okkar, á sið-
um blaðsins. Þar var sagt ýt-
arlega frá þeim tegundum
sem þú nefnir - og fleirum.
Við munum segja frá öðrum
á næstunni - og þeim sem
þú nefnir á annan hátt en
fyrr.
Veggmynd af Jason fylgdi
10. tbl. 1992.
Áskrifendur Æskunnar
geta orðið félagar í frí-
merkjaklúbbnum með þvi
einu að rita bréf til umsjón-
armanns hans, Sigurðar
Þorsteinssonar, Laugarhóli,
510 Hólmavik. Ekkert félags-
gjald þarf að greiða. Nafn
þitt er komið á skrá yfir fé-
laga! (Sjá Frimerkjaþátt á
bls. 37).
FRAMHALD5-
SACAN OC
ÆSKUVANDI
Kæra Æska!
Ég á heima í Sviþjóð og
er áskrifandi að Æskunni.
Ég fæ blaðið oft svo seint
að ég get ekki sent kafla í
framhaldssöguna, Of
venjulegt - eða ... Mér
finnst það dálítið leiðinlegt.
Þið sem sendið bréf til
þáttarins Æskuvanda:
Hvernig væri að hætta
að skrifa: „Hvað lestu úr
skriftinni? Hvað heldur þú
að ég sé gömul/gamall?“?
Það er ekki auðvelt að
geta sértil um aldur.
Kannski væri betra fyrir
umsjónarmanninn að leið-
beina þeim sem skrifa ef
þeir nefndu hve gamlir þeir
eru. Lesendur geta ekkert
frekar giskað á hver sendir
bréfið þó að sagt sé frá
aldri hans.
„Luxor.“
Svar:
Það er öldungis rétt hjá
þér að fresturinn, sem gef-
inn er til að senda tillögu að
nýjum kafla i framhaldssög-
unni, er afar stuttur, i raun
of stuttur, a.m.k. fyrir áskrif-
endur Æskunnar erlendis.
En hann getur ekki verið
lengri ef við viljum hafa kafla
í hverju blaði.
Við munum gæta þess að
senda þau blöð, sem fara
eiga til útlanda, á undan
öðrum - en ekki er vist að
það nægi til að áskrifendur
okkar þar geti sent sögubrot
nógu tímanlega, þvi miður.
Ábending þin til þeirra
sem skrifa bréf til Æsku-
vanda er á rökum reist.
FÆREY5KIR
PENNAVINIR
Kæri Æskupóstur!
Mig langar mikið til að
eignast pennavini frá Fær-
eyjum. Hvernig fer ég að
því?
Mér finnst Eva og Adam
alveg æðislega skemmtileg
saga.
Halla María.
Svar:
í Færeyjum er gefið út
blað fyrir börn. í því er
pennavinadálkur. Oft má sjá
í honum nöfn islenskra
krakka sem langar til að
skrifast á við færeyska jafn-
aldra sína - enda höfum við
nokkrum sinnum birt póst-
fang blaðsins. Það er:
Barnablaðið,
póstrúm 202,
110 Tórshavn,
Færeyjum.
Þú fékkst þessar upplýs-
ingar og Ijósrit úr blaðinu i
bréfi frá okkur löngu áður en
þetta birtist - en eflaust
verða einhverjir lesendur
Æskunnar fegnir að sjá
heimilisfangið. Færeysk
börn skilja dönsku og ensku
en geta ef til vill líka lesið ís-
lensku - og þið færeysku!
5ITTAF HVERJU
Kæri Æskupóstur!
Þökk fyrir gott blað. Ég
vildi gjarnan fá upplýsingar
um Sigríði Beinteinsdóttur
og Grétar Örvarsson. Líka
væri gaman að fá enn fleiri
veggmyndir en þið hafið
birt, til dæmis með Bruce
Willis eða Whitney Hou-
ston.
Má senda þrautir til
ykkar?
Mér finnst Eva og Adam
skemmtileg saga.
ÁK
Svar:
Við höfum oft sagt frá
Siggu og Grétari. Veggmynd
af henni og fróðleikskorn um
hana voru birt i 1. tbl. þ.á.
Whitney var á veggmynd
sem fylgdi 4. tbl. Æskunnar
1993. Við skulum hafa Bruce
i huga.
5TRANDVERÐIR
Kæri Æskupóstur!
Viljið þið segja eitthvað
frá Matt í Strandvörðum?
Hann er svo sætur. Hvert
er heimilisfang aðdáenda-
klúbbs hans?
Hafmeyjan.
Svar:
Grein um David Charvet,
sem leikur Matt, er i 1. tbl.
2 6 Æ S K A N