Æskan - 01.03.1994, Side 28
Svar:
Þeir eru báðir á lífi þegar
þetta er ritað. Ray mun
raunar hafa lent i bilslysi i
fyrrahaust en er gróinn sára
sinna.
Eflaust verður á næst-
unni sagt enn fleira frá
Metallica en gert hefur verið
i Æskunni. Veggmynd fylgdi
1. tbl. 1991. Hana hafið þið
fengið senda. Póstfang að-
dáendaklúbbs hljómsveitar-
innar skulum við birta enn
einu sinni og vonum að hann
sé starfandi:
Metallica, c/o Q Prime,
729 7th Avenue,
16th Floor,
New York, N.Y. 10019,
Bandarikjunum.
LEIKLI5T 06
LEIKARAR
Kæra Æska!
Ég þakka frábært blað
og bið þig að svara þremur
spurningum.
1. Getið þið birt heimil-
isfangið hjá aðdáenda-
klúbbi Macauley Culkin?
2. Hvernig er hægt að
verða leikari meðan maður
er krakki?
3. Getið þið birt vegg-
myndir af Júlíu Roberts og
Mason Gamble?
Auður.
Svar:
1. Við vitum þvi miður
ekki hvert er heimilisfang
klúbbsins. Gaman væri að fá
vitneskju um það ef einhver
lesandi veit betur en við.
Grein um strákinn var í 4.
tbl. Æskunnar í fyrra og
veggmynd af honum fylgdi
þvi blaði.
2. Krakkar geta tekið þátt
í leiklistarklúbbum sem
starfa i mörgum skólum.
Stundum sýna leikfélög leik-
rit þar sem krakkar fá hlut-
verk. Stöku sinnum eru
gerðar kvikmyndir hér á
landi með þeim í aðalhlut-
verkum. Þá kemur fyrir að
auglýst sé í dagblöðum eftir
leikurum.
Kramhúsið, Skólavörðu-
stig 12 i Reykjavík, s. 15103,
efnir til leiklistarnámskeiða
fyrir börn og unglinga (7-9,
10-12 og 13-15 ára).
3. Júlía var á veggmynd í
6. tbl. Æskunnar 1992. Við
bætum Mason á óskalist-
ann.
.. OC RÓSIR
Æskupóstur!
Ég þakka gott blað.
Getið þið sagt frá Guns
N’Roses og birt veggmynd
af þeim?
Hvenær er Axl Rose
fæddur? Hver stofnaði
GN’R? Hvert er heimilis-
fang aðdáendaklúbbsins?
Aðdáandi.
Hljómsveitin var á vegg-
mynd sem fylgdi 1. tbl. 1990.
Hún er reyndar ófáanleg og
athugandi að birta aðra. í
Poppþættinum hefur marg-
sinnis verið sagt frá hljóm-
sveitinni en þess má vænta
að hennar verði getið enn
einu sinni á næstunni.
Axl Rose (William (Bill)
Bailey) er fæddur 6. febrúar
1962. Hljómsveitin var stofn-
uð i júní 1985 og hélt hljóm-
leika strax i þeim mánuði.
Hún hefur notið mikilla vin-
sælda og liðsmenn hennar
hafa samið ýmist kraftmikil
rokklög eða Ijúfar ballöður.
Löngum fylgdi þeim óhamin
vímuefnaneysla og gróf
framkoma. Raunar setti Axl
hinum skilyrði vegna þessa
og varð Steven Adler að
vikja 1990. Matt Sorum kom
í hans stað. Hann hefur it-
rekað varað unglinga við
neyslu vimuefna. Gilby Clark
gítarleikari tók við af Izzy
Stradlin 1991. í hljómsveit-
inni >ru einnig Slash (Soul
Hudson), Duff Mc Kagan og
Dizzy Reed.
Póstfang aðdáenda-
kiúbbs:
Guns N’Roses,
PO Box 1644,
Los Angeles, CA 90067,
Bandaríkjunum.
AÐDÁENDA-
KLÚBBAR
Kæri Æskupóstur!
Ég þakka frábært blað.
Getið þið birt eitthvað með
Guns N’Roses? Hvernig
starfar aðdáendaklúbbur
hljómsveitarinnar? Hvað
kostar að vera í honum.
Birtið líka eitthvað með
Rage Against The
Machine, Whitney Houston
og Metallica. Og það
mætti vera dálítið meira
um NBA körfuboltann.
Eyþór.
Svar:
Þú hefur þegar lesið
nokkur fróðleikskorn um
GN’R. Við vitum ekki hvert
félagsgjaldið er eða ná-
kvæmlega hvað klúbburinn
sendir félögum sínum en oft-
ast eru það myndir og annað
smálegt. Rita verður bréf
með fyrirspurn um starfsem-
ina og senda tvö alþjóðleg
svarmerki með.
Hljómsveitin RATM var
ýtarlega kynnt á bls. 57 í 5.
tbl. Æskunnar í fyrra og
veggmynd af henni fylgdi.
Einnig sagði umsjónarmaður
Poppþáttarins frá tónleikum
hennar í Kaplakrika 12. júní
1993 (7. tbl. 1993, bls. 44).
Whitney Elizabeth Hou-
ston var í poppskjalasafninu
í 5. tbl. 1993, ábls. 57. Frá
henni hefur oft verið sagt -
en ástæða er til að bæta ein-
hverju við það fljótlega. Hún
fékk nýlega Grammy-verð-
launin sem besta söngkon-
an. Lagið, Ég mun alltaf
elska þig („I Will Always
Love You“), sem hún söng í
kvikmyndinni, Lífverðinum,
var valið vinsælasta lag árs-
ins 1993 (Dolly Parton samdi
það 1974 en Whitney söng
það í nýrri útsetningu) - og
plata samnefnd kvikmynd-
inni („The Bodyguard") var
kjörin besta plata ársins.
Hún hefur selst í ellefu millj-
ónum eintaka.
Við þökkum öllum
sem senda okkur bréf.
Gætið þess að rita fullt
nafn og póstfang undir
þau. Nefnið líka hvort
þið eigið ekkert efni
um það vinsæla fólk
sem þið biðjið um
fréttir af. Við kunnum
að geta bætt úr því.
Flestir þeirra sem for-
vitnast er um hafa ver-
ið á síðum Æskunnar -
eins og sjá má á svör-
um í þessum þætti.
ÆSKU
PÓSTUR
28 ÆSKAN