Æskan - 01.03.1994, Side 40
MEST SELDU
ROKKPLÖTURNAR
SÉRSTÆÐ
HLJÓMPLÖTUVERSLUN
f Austurstræti 8 lætur hljómplötu-
verslunin Hljómalind lítið yfir sér utan
frá. En þegar inn er komið má finna
þar ýmsar plötur sem ekki fást í öðr-
um reykvískum verslunum. Þar fæst
t.d. geislaplatan Blávatn sem Átak
gegn áfengi gaf út í fyrra. Á henni eru
lög með Mind in Motion, Gal í Leo, T-
World o.m.fl.
( Hljómalind eru einnig finnskar
geislaplötur, s.s. safnplata með „ís-
landsvininum" Keuhkot og fjórum öðr-
um sprækustu nýrokkfyrirbærum
Finnlands. Platan geymir jafnfram
fimm lög með íslenska rokkaranum
Dr. Gunna sem er mikilsvirt rokk-
stjarna i Finnlandi. Hann var áöur
framvörður Svart-hvíts draums og
Bless.
Þá eru grænlenskar rokkplötur
væntanlegar í hillur Hljómalindar (þær
fást líka í Tónveri í Neskaupstað, á-
samt færeyskum poppplötum).
Þegar tíðindamaður Poppþáttarins
fletti geislaplötum í versluninni á dög-
unum var skyndilega gaukað að við-
skiptavinum verslunarinnar ókeypis
safnplötu, „The Wonderful World of
Frealism". Plötunni var ætlað það
hlutverk að kynna ensku danshljóm-
sveitina Freaky Realistic. Sú fjörlega
hljómsveit hefur í tvígang haldið
hljómleika hérlendis að undirlagi
Hljómalindar, í fyrra skiptið með T-
World og í síðara sinnið með
Bubbleflies. Það var einmitt Hljóma-
lind sem gaf út plötu Bubbleflies í
fyrra.
Þess má til gamans geta að eig-
andi Hljómalindar, kallaður Kiddi kan-
ína, er einn af þeim sem standa á bak
við dagskrá útvarpsstöðvarinnar X-
ins.
Tekið skal fram að geislaplata óperu-
söngvarans Kristjáns Jóhannssonar, Af
lífi og sál, seldist mest allra platna í fyrra,
í u.þ.b. 15 þúsundum eintaka. Plata
Bubba Morthens, Lífið er Ijúft, hafði selst
í 13.500 eintökum um áramótin. Sú plata
seldist einnig mjög vel eftir áramót - og
að samanlögðu í rúmlega 16 þúsund
eintökum). Plata Kristjáns hreyfðist lítið
sem ekkert eftir áramót. Hún var að
verulegu leyti seld utan hljómplötuversl-
ana og þess vegna ekki eins áberandi á
vinsældalistum þeirra og sanngjarnt
hefði verið.
Þó að plata Kristjáns sé ekki nein
„aríuplata“ á hún tæpast heima á lista
yfir söluhæstu rokk- og poppplötur
1993. Sá listi er þannig:
1. Lífið er Ijúft - með Bubba (13.500)
2. „Debut“ - með Björk (7.500)
3. Ekki þessi leiðindi - með Bogomil
Font (7.400)
4. Desember - með Siggu Beinteins
(7.300)
5. Spillt - með Todmobile (7.000)
6. „Hotel Föroyar" - með KK-bandi
(6.100)
7. Ef ég hefði vængi - með Rabba
(5.000)
8. Kom heim - trúarsöngvar í flutningi
ýmissa (4.100)
9. Líf - með Stefáni Hilmarssyni
(4.000)
10. Hunang - meö Nýrri danskri
(3.800).
Þess má til gamans geta að plata KK-
bandsins, Bein leið, seldist í 4.000 ein-
tökum í fyrra þó að hún kæmi út 1992.
A.m.k. fjórar erlendar plötur seldust í
6-7 þúsund eintökum hér á landi í fyrra.
Þær eru:
„Unplugged“ (Eric Clapton)
„Automatic For The People" (R.E.M.)
„Rage Against The Machine"
(R.A.T.M)
„Zooropa" (U2)
4 0 Æ S K A N