Æskan - 01.03.1994, Qupperneq 60
Umsjón: Hafþór Kristjánsson 15 ára.
PRÓFRAUN HETJUNNAR
(„Hero’s Quest -
Quest for Glory“)
Leikir frá Sierra eru margir góðir en að
mínu mati eru prófraunaleikirnir bestir
(„Quest for Glory"). Ég ætla að fjalla
bæði um nýju og gömlu útgáfuna af
Prófraun hetjunnar, 1. hluta.
Sú gamla er frá 1989 og var þá meðal
þeirra leikja sem seldust mest hjá fyrir-
tækinu. Nýja útgáfan er frá 1992. Hún er
í VGA-grafík en sú fyrri í EGA.
Ég tel að leikurinn hafi verið gefinn út
að nýju til þess að nýta þær vinsældir
sem fyrri útgáfan naut, líklegt hafi þótt
að þeir sem höfðu keypt eða reynt hana
vildu kaupa þá nýju. Mér finnst hún
raunar miklu betri en sú gamla.
Munurinn er sá að áður þurfti að
skrifa allt það sem óskað var að persón-
an gerði en nú er músin aðallega notuð
eins og í flestum nýjum Sierra-leikjum.
Sagan er sú sama í báðum leikjunum.
Hún fjallar um mann sem hefur það hlut-
verk að útrýma öllum stigamönnum úr
ríki Stefáns baróns og að fella vondu
nornina Baba Yaga. Að öðru leyti má
segja að leikandinn ráði hvað hann gerir.
í byrjun leiksins má velja á milli þess
að verða bardagamaður, töframaður eða
þjófur. Sjálfur vel ég þjófinn. Bardaga-
maðurinn er sterkastur og bestur í ná-
vígi, töframaðurinn vitrastur og getur lagt
álög á óvini í fjarlægð. Ólíkt bardaga-
manninum, sem berst með sverði og ver
sig með skildi, berst hann með hnífi í ná-
vígi (það gerir þjófurinn líka). Þjófurinn er
lævís og leikinn við að spenna upp læst-
ar dyr og læðast fram hjá óvinunum til
að forðast bardaga.
Eftir valið er æskilegt að gefa persón-
unni nafn. Þú mátt auka við hæfileika
hennar ef þú vilt en það er raunar óþarft
í byrjun því að hún eflist eftir því sem líð-
ur á leikinn og þeim mun meira sem hún
æfist í því sem tekist er á við. Tilvalið er
að æfa hana áður en lagt er í hætturnar,
t.a.m. með því að klifra í trjám eða klett-
um.
Þegar allt er tilbúið getur leikurinn
hafist. Þá er byrjað í Leikjaborg („Spiel-
burg“).
Ég get leiðbeint áhugasömum byrj-
endum við að verða sér úti um peninga í
leiknum á auðveldan hátt:
Ein leiðin, sem fara á, liggur út úr
borginni og áfram upp frá henni. Þá
koma í Ijós gamalt hús og stórt tré með
hreiðri. í gömlu útgáfunni þarf að rita
„climb tree“ ef þjófurinn er á ferð, „cast
fetch“ eða „throw rock“ ef það er töfra-
maðurinn, „throw rock“ ef bardagamað-
urinn er staddur þar. I nýju útgáfunni
þarf einungis að skipa með músinni og
velja helgimyndir.
í hreiðrinu er hringur. Ef þér tekst að
ná honum áttu að fara með hann inn í
húsið og láta konuna þar hafa hann. Þá
færðu sex gullpeninga.
Önnur leið er sú að fara út úr bænum
og inn í skóg og fella svartálf eða mann
sem ræðst á þig með spjóti; hirða síðan
fé þeirra.
Einnig dugar að fá vinnu í kastalanum
- og enn fremur að tína sveppi og blóm
og selja konunni í húsinu hjá trénu á
hverjum degi sem líður í leiknum.
Ó, fyrirgefið! Þetta minnir mig á að
segja ykkur frá því að í leiknum líða dag-
ar og nætur eins og í raunveruleikanum.
Persónan þarf að sofa um nætur og
nærast á daginn. Hún getur líka lagt sig í
10, 30 eða 60 mínútur ef með þarf.
Ég held að þetta nægi og þið verðið
reiðubúin til leiks ef færi gefst!
6ETRAUN
Dregið verður
í janúar-getrauninni
fyrir 4. tbl.
TIL LE5ENDA
Sendið mér bréf um allt sem
ykkur þykir mega betur fara í
þættinum - hvort ykkur finnst
eitthvað vanta og einhverju eigi
að breyta. Ég mun gera mitt
besta til að bæta úr því.
Ef þið eigið myndir eða Ijósrit
af myndum úr leiknum „Quest
for Glory ll“ bið ég ykkur að Ijá
mér þær.
Látið mig vita ef þið viljið að
ég fjalli um einhvern sérstakan
leik eða tölvu. Sendið mér þá
gjarnan myndir og dæmi um
brögð í leiknum.
Ykkur er ávallt frjálst að teikna
og lita myndir úr tölvuleikjum og
senda mér til birtingar í Æskunni
(en ég get ekki lofað að birta
þær allar).
Hafþór Kristjánsson,
Sjávargötu 5,
225 Bessastaðahreppi.
6 0 Æ S K A N