Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1994, Blaðsíða 3

Æskan - 01.04.1994, Blaðsíða 3
Lýðveldisafmælisins minnst i skóium - bls. 14-15. Kæri lesandi! Fram undan er þjóöhátíð og haldin að venju 17. júní. Nú verða hátíðahöld enn veglegri en venjulega því að fagn- að er fimmtíu ára afmæli íslenska lýð- veldisins. í tilefni þess hefur í skólum verið fjallað um stofnun lýðveldis á Þingvöll- um 1944 og sjálfstæðisbaráttuna. Nemendur hafa orðið margs vísari um hvernig við íslendingar fengum smám saman úr hendi Danakonungs réttindi til að ráða málum okkar sjálfir að nýju. í þessu tölublaði verður á ýmsan hátt vikið að því sem tímamótunum tengist: Forseti íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir, ritar ávarpsorð til æsku (slands. Birtur er hluti greinar um lýðveldis- stofnunina eftir Guðjón Guðjónsson fyrrum ritstjóra Æskunnar en hún var í blaðinu fyrir fimmtíu árum. Saga Hrafnseyrar, fæðingarstaðar Jóns Sig- urðssonar, er rakin af Halldóri Krist- jánssyni - en hann getur jafnframt helstu áfanga í sjálfstæðisbaráttunni. Þá er sagt frá því, einkum í myndum, hvernig skólar hafa minnst afmælisins. Ótalmargt annað er að sjálfsögðu í blaðinu. Til að mynda er sagt frá fjöl- skylduskemmtunum og söngvara- keppni Æskunnar sem Fjörkálfarnir, Hermann Gunnarsson og Ómar Ragn- arsson, halda víða um land í samvinnu við Æskuna. Þar fá börn og unglingar tækifæri til að stíga á svið og syngja lag að eigin vali. Þetta tvennt tvinnast saman á for- síðumyndinni. Hún er tekin á Þingvöll- um, hinum fornhelga stað, þar sem enn verður efnt til samkomu á mark- verðum tímamótum 17. júní nk. Þar verður fjöldi fólks á öllum aldri og meðal þess eflaust stúlkur í þjóðbún- ingum. Á skemmtunum Fjörkálfanna veröur líka áreiðanlega margt um manninn, ekki síst unga kynslóðin. Skemmtum okkur vel á þjóðhátíð - með virðingu fyrir því sem heiðrað er og minnst! Gleðilega hátíð! Karl Helgason. 23,121 Reykjavik • 5. tbl. kemur út 20. júlí. • Ritstjóri og 7 • Framkvæmdastjóri: Guðlaugur Fr. Sigmundsson • Útlit og umbrot: A FJÓRiR (Hjörtur Guðnason) • Teikningar: Halldár Þorsteinsson • Litgrein- ingar og filmuvinna: Offsetþjánustan hf. • Prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. • Útgefandi er Stórstúka íslands I.O.G.T. • Æskan kom fyrst út 5. október 1897. 520 kr. • ábyrgðarmaður: Á forsiðu eru Fjörkálfarnir, Hermann Gunnarsson og Ómar Ragnarsson. Með þeim eru (f.v.) Egill Björg- vinsson, Margrét Hugadóttir; - barnabörn Ómars: Hinrik Örn og Rúrik Andri Þorfinnssynir og Lilja Sól- ey Hauksdóttir; - HlynurAtli Magnússon, Björg Hermannsdóttir (Gunnarssonar), Margrét Fides Hauksdóttir, Máni Björgvinsson og Guðný Halla Hauksdóttir. Ljósmynd: Odd Stefán. EFNI5VFIRLIT ÁVARP, VIÐTÖL OG GREINAR 4 Lýöveldisstofnunin 5 Lýðveldi á l’slandi 50 ára - ávarp forseta íslands 8 Heimsmeistarar! 11 Jón Sigurösson forseti - frá Hrafnseyri í Arnarfirði 18 Fjörkálfar með fjölskylduskemmtun og söngvarakeppni Æskunnar 35 Besti varnarmaðurinn 48 Slæmu strákarnir! 50 Sigrað á sólarströnd SÖGUR OG LJÓÐ 6 Verðlaunaljóð 1993 20 Llrukassinn 43 Of venjulegt — eöa ... TEIKNIMYNDASÖGUR 29 Eitt lítið dagsverk 46 Dagbók Berts 56 Eva og Adam ÞÆTTIR 7 Heilsuefling Magnúsar Schevings 10 Okkará milli 12 Frá Unglingareglunni 22 Lágfóta landvörður 26 Æskupósturinn 36 Tölvuþátturinn 37 Æskuvandi 40 Poppþátturinn 42 Mérfinnst, ég tel, ég vil... 45 Frímerkjaþáttur 52 Skátaþáttur 53 Dýrin okkar ÝMISLEGT 13 Skrýtlur 14 Lýðveldisafmælis minnst í skólum 16,17, 38,39 Prautir 23 Úrslit áskrifendagetraunar Æskunnar 24 Sþurningaleikur 44 Pennavinir 54 Samkeppni: ísland - sækjum það heim 58 Við safnarar 58 Ráðgátan 59 Lestu Æskuna? 60 Ljósmyndakeþpnin 1993 62 Verðlaunahafar og lausnir á þrautum í 2. tbl. VEGGMYNDIR Stúlkna- og unglingalandsliðið í körfuknattleik 1993-1994 Bad Boys Inc. Hakeem Olajuwon Æ S K A N 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.